Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2008, Blaðsíða 20

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2008, Blaðsíða 20
XVIII. ÞING FÉLAGS ÍSLENSKRA LYFLÆKNA FYLGIRIT 57 látnir, 12,5% á lífi með sjúkdóm og 28,7% á lífi án sjúkdóms. Ályktanir: Fyrstu niðurstöður samrýmast rannsóknum erlend- is. Frekari niðurstöður verða kynntar á þinginu. Sérstaða rann- sóknarinnar er að hún endurspeglar heila þjóð í stað afmarkaðs hóps einstaklinga sem eru meðhöndlaðir á einni stofnun. E 14 Aukið algengi sjálfsofnæmissjúkdóma á meðal einstaklinga með IgA skort og fyrstu gráðu ættingja þeirra Guðmundur H. Jörgensen1'5, Ingunn Þorsteinsdóttir2, Sveinn Guðmundsson3, Lennart Hammarström4, Björn R. Lúðvíksson1'5 'Læknadeild HÍ, 2rannsóknarstofnun Landspítala, 3Blóðbanki íslands, 4ónæmisfraeðideild Karolínska sjúkrahússins, Huddinge, Svíþjóð, 5ónæmisfræðideild Landspítala gudmhj@landspitali. is Inngangur: Sértækur skortur á mótefnaflokki A (IgA) er skil- greindur sem magn IgA í sermi <0,07g/L og eðlilegt magn IgG og IgM. Sértækur IgA skortur (IgAD) er einn algengasti með- fæddi ónæmisgallinn í mannfólki með algengið um 1:500 í N- Evrópu. Tengsl IgAD við sjúkdóma eru ekki ljós en aukin tíðni sýkinga, ofnæmis, astma og sjálfsofnæmissjúkdóma er talin vera til staðar. Algengi sjálfsofnæmissjúkdóma í vestrænum löndum er talið 3-5%, en á meðal einstaklinga með IgAD er algengið á bilinu 7-36%. Orsakatengsl IgAD við sjálfsofnæmissjúkdóma eru ekki ljós en hugsanleg skýring er að báðir sjúkdómamir eigi að ein- hverju leyti sameiginlegan erfðafræðilegan bakgrunn. Markmið rannsóknarinnar er að meta algengi sjálfsofnæmissjúkdóma á meðal fyrstu gráðu ættingja einstaklinga með IgAD. Þetta er hluti af stærri rannsókn á IgAD á íslandi. Efniviður og aðferðir: Alls 43 einstaklingar með IgAD, úr blóð- bankaskimunum (16) og frá Rannsóknarstofnun Landspítala (27) á tímbilinu 1992-2006, vom kallaðir inn til skoðunar. Tekin var ýtarleg saga og fjölskyldusaga um sjúkdóma og í kjölfarið framkvæmd læknisskoðun og rannsóknir. Fyrstu gráðu ætt- ingjar voru kallaðir inn til blóðpmfu og sjúkdómasaga tekin og fjölskyldusaga staðfest. Niðurstöður: Alls voru 18,6% (8/43) IgAD einstaklinga með sjálfsofnæmissjúkdóma og 25% (8/32) af fullorðnum IgAD einstaklingum. Þeir IgAD einstaklingar sem jafnframt höfðu sjálfsofnæmissjúkdóm reyndust í 62,5% tilfella (5/8) eiga fyrstu gráðu ættingja með sjálfsofnæmissjúkdóm. Af 269 fyrstu gráðu ættingjum reyndust 10% (27/269) vera með sjálfsofnæmissjúk- dóm sem er tvöfalt hærra en áætlað algengi í þjóðfélaginu. Ályktanir: Sterk tengsl eru milli IgAD og sjálfsofnæmissjúk- dóma. Þar sem um vemlega aukna tíðni sjálfsofnæmissjúkdóma meðal ættingja IgAD einstaklinga er að ræða, þá benda nið- urstöður til sameiginlegs erfðafræðilegs bakgrunns þessara tveggja sjúkdóma. E 15 Rófecoxíb, en ekki celecoxíb, eykur áhættuna á hjartaáföilum meðal yngri einstaklinga samkvæmt lyfja- gagnagrunni Landlæknisembættisins Bjöm Guðbjömsson1, Sigurður B. Þorsteinsson2, Helgi Sigvaldason5, Rannveig A. Einarsdóttir2, Magnús Jóhannsson4, Kristinn Jónsson5, Helga Zöega5, Matthías Halldórsson5, Guðmundur Þorgeirsson3 ’Rannsóknarstofu í gigtarsjúkdómum, 2deild lyfjamála/lyflæknasviði Landspítala, 4lyfjafræðideild HÍ, 5Landlæknisembættinu Inngangur: Markmið rannsóknarinnar er að kanna áhættu fyrir hjarta- og æðasjúkdómum meðal notenda coxíb- og NSAID-lyfja (M01A). Efniviður og aðferðir: Nafnalisti úr lyfjagagnagrunni Landlæknisembættisins um notendur bólgueyðandi lyfja á árunum 2001-2004 var samkeyrðar við sjúkdómaskrá Landlæknisembættisins og dánarmeinaskrá Hagstofunnar með tilliti til hjarta- og æðasjúkdóma ásamt skyndidauða. Niðurstöður: Alls fundust 108.700 einstaklingar, þar af 78.539 (163.406 sjúklingaár) sem notuðu eingöngu eina tegund þessara lyfja. Alls 426 einstaklingar þörfnuðust sjúkrahúsvistar vegna hjarta- eða æðasjúkdóma eða höfðu látist skyndidauða. Miðað við díklófenak var hlutfallsleg áhætta, leiðrétt fyrir aldur og kyn, marktækt hærri meðal rófecoxíb notenda; heilaáföll 2,13 (CI 1,54-2,97; p<0,001), hjartadrep 1,77 (CI 1,34-2,32; p<0,001) og hjartaöng 1,52 (CI 1,01-2,30; p=0,047). Fyrir naproxen notendur var marktækt meiri áhætta á hjartadrepi miðað við þá er notuðu díklófenak (1,46; CI 1,03-2,07; p<0,03). Þeir sem notuðu íbúpróf- en höfðu marktækt minni áhættu á hjartadrepi (0,63; CI 0,40- 1,00; p<0,05). Enginn munur var á þeim sem notuðu celecoxíb eða díklófenak. Yngstu notendur rófecoxíbs (undir 40 ára) höfðu hlutfallslega mestu áhættuna (hazard ratio) fyrir hjarta- og æðasjúkdómi (8,34; p<0,001). Ályktanir: Þessi rannsókn, sem byggir á skráningarkerfum Landlæknisembættisins, og Hagstofunnar telur um 78.000 ein- staklinga eða 160.000 sjúklingaár, sýnir aukna áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum meðal þessara einstaklinga, sérstaklega meðal ungra einstaklinga sem notuðu rófecoxíb. 'Læknadeild HÍ, 2brjóstholsskurðdeild, 3rannsóknarstofu í meinafræði, 4lungnadeild Landspítala Inngangur: Nákvæm greining sjúkdóma í millivef lunga (int- erstitial lung diseases, ILD) er afar mikilvæg og er sýnataka með skurðaðgerð talin besta greiningaraðferðin. Lítið er vitað um árangur og fjölda þessara aðgerða á íslandi. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er aftursýn og náði til allra sjúklinga sem gengust undir lungnasýnatöku með skurðaðgerð á íslandi 1986-2007, alls 80 einstaklinga (47 karla, meðalaldur 57 ár, meðaleftirfylgd 78 mánuðir). bjomgu@landspitali.is ggudmund@iandspitaii.is E 16 Sýnataka með skurðaðgerð breytir greiningu og meðferð á sjúkdómum í millivef lungna Martin Ingi Sigurðsson1, Tómas Guðbjartsson1'2, Helgi J. ísaksson3, Gunnar Guðmundsson1'4 20 LÆKNAblaðið 2008/94

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.