Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2008, Síða 33

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2008, Síða 33
XVIII. ÞING FÉLAGS ÍSLENSKRA LYFLÆKNA FYLGIRIT 57 voru 35 og konur 32. Svörun spumingalista var 80%. Ekki náðist eftirfylgd hjá fjórum sjúklingum. Flestir sjúklinganna, eða 31, höfðu blóðdílasótt (idiopathic thrombocytopenic purpura) og voru 30 á sterameðferð fyrir aðgerð. Miltistaka skilaði fullum bata hjá 60% (18/30) og nokkrum bata hjá 23% (7/30). Fimm sjúklingar vom með hnattrauðkomablóðleysi (spherocytosis) og fengu allir fullan bata. Enginn þriggja sjúklinga með sjálf- næmisrauðalosblóðleysi (autoimmune hemolytic anemia) fékk bata. Hjá sjúklingum með illkynja sjúkdóma var erfiðara að meta árangur. Sjúklingar voru bólusettir gegn pneumókokkum í 92% (61/66) tilvika. Endurbólusetning hafði verið gerð hjá 44% (14/32). Einungis 41% (14/34) töldu sig hafa fengið góða fræðslu um hugsanlegar afleiðingar miltisleysis. Alvarlegir bráðir fylgikvillar komu fram hjá 16% (10/64) sjúklinga. Einn sjúklingur með útbreitt lungnakrabbamein og blóðflögufæð lést stuttu eftir aðgerð. Síðkomnir fylgikvillar komu fram hjá fimm sjúklingum. Tveir fengu pneumókokka- sýklasótt, annar þeirra var óbólusettur og hinn hafði ekki fengið endurbólusetningu á tilskildum tíma. Ályktanir: Miltistaka skilar góðum langtímaárangri hjá sjúkling- um með blóðdílasótt og hnattrauðkornakvilla. Tíðni fylgikvilla er há. Vinnureglur um undirbúning, bólusetningar, eftirfylgd og fræðslu sjúklinga gætu fækkað fylgikvillum og bætt útkomu. V 17 Þróun meltuónota hjá íslendingum á tíu ára tímabili Linda B. Ólafsdóttir1, Bjami Þjóðleifsson2, Hallgrímur Guðjónsson2 ’Sjálfstætt starfandi í Reykjavík, 2Landspítali Hnda04@ru.is Tilgangur: Meltuónot (functional dyspepsia) eru algengur sjúkdómur og eru einkennin oft langvarandi. Tilgangur rann- sóknarinnar var að kanna þróun meltuónota hjá íslendingum á 10 ára tímabili og kanna tengsl þeirra við einkenni frá öðrum líffærakerfum og við lyf. Efniviður og aðferðir: Spumingalisti var sendur til 2000 manna úrtaks íslendinga á aldrinum 18-75 ára árið 1996. Tíu árum síðar, 2006, var rannsóknin endurtekin á sama úrtaki íslendinga og að auki úrtaki um 300 einstaklinga á aldrinum 18-27 ára. Spurningalistinn innihélt 46 spumingar um einkenni frá melt- ingarfæmm og 42 spumingar um einkenni sem tengdust öðrum líffærakerfum og einnig lýðfræðilegum og sállíkamlegum þát- tum. Niðurstöður: Árið 1996 var svarhlutfall 67% sem er um 1% íslensku þjóðarinnar á aldrinum 18-75 ára. Árið 2006 var svar- hlutfallið um 50% sem sýnir svipaða þróun í svörum og í öðram póstlistarannsóknum á íslandi. Meltuónot voru greind með einkennalista sem innihélt 19 mismunandi einkenni. Árið 1996 voru 17,8% með meltuónot (15,3% karla, 24,0% kvenna) en 22,4% árið 2006 (17,1% karla, 26,9% kvenna). Meltuónot eru marktækt algengari hjá yngri einstaklingum. Ekki era tengsl milli þyngdar og meltuónota. Einstaklingar með meltuónot eru marktækt líklegri til að missa úr vinnu vegna veikinda en aðrir. Tengsl eru á milli töku aspiríns, parasetamóls og verkjalyfja almennt og gigtarlyfja og einkenna meltuónota. Tengsl era á milli kviðverkja í æsku og einstaklinga með meltuónot. Einstaklingar með meltuónot leita oftar til læknis en aðrir og oftar vegna kviðverkja. Ályktanir: Meltuónot eru algeng á íslandi. Einstaklingar sem greindir era með meltuónot eru líklegir til að hafa sömu ein- kenni eftir 10 ár. Ekki er munur á milli kynja. Meltuónot hafa áhrif á lífsgæði einstaklinga, þeir nota heilbrigðiskerfið í meira mæli en aðrir, bæði á sviði lækninga og lyfjanotkunar. V 18 Faraldsfræðileg rannsókn á brjóstsviða á íslandi, tíu ára eftirfylgni Linda B. Ólafsdóttir', Hallgrímur Guðjónsson2, Bjami Þjóðleifsson2 'Sjálfstætt starfandi í Reykjavík, 2Landspítali Iinda04@ru.is Tilgangur: Brjóstsviði er algengur kvilli í þróuðum löndum og er hann oft langvarandi. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna þróun brjóstsviða hjá íslendingum á 10 ára tímabili og kanna tengsl við einkenni frá öðrum líffærakerfum og við lyf. Efniviður og aðferðir: Spurningalisti var sendur til 2000 manna úrtaks Islendinga á aldrinum 18-75 ára árið 1996. Rannsóknin var endurtekin 2006 á sama úrtaki og að auki úrtaki um 300 einstaklinga á aldrinum 18-27 ára. Spurningalistinn innihélt 46 spumingar um einkenni frá meltingarfærum og 42 spurningar um einkenni sem tengdust öðrum líffærakerfum, lýðfræðilegum og sállíkamlegum þáttum. Niðurstöður: Árið 1996 var svarhlutfall 67% en 50% árið 2006. Brjóstsviði var greindur með sjálfsmati einstaklinga. Árið 1996 sögðust 43,1% einstaklinga vera með brjóstsviða en 45,1% 2006. Tveir þriðju sem skráðu brjóstsviða 1996 voru einnig með brjóstsviða 2006, ekki var munur á aldri. Nær allir sögðu að lyf við brjóstsviða hefðu áhrif á einkennin. Fjórðungur er á stöðugri lyfjameðferð við brjóstsviða. Aðrir taka lyf við einkennum brjóstsviða í hvert skipti. Lyfjanotkun við brjóstsviða eykst með hækkandi aldri. Marktæk tengsl reyndust á milli brjóstsviða og meltuónota hjá einstaklingum bæði 1996 og 2006. Einstaklingar með of háan eða of lágan líkamþyngdarstuðul eru líklegri til að fá brjóstsviða en aðrir. Einstaklingar með brjóstsviða eru líklegri en aðrir að fara til læknis og fara oftar. Reykingar auka tíðni brjóstsviða. Þriðjungur telur brjóstsviða hafa áhrif á matarlyst og 20% segjast sleppa ákveðnum fæðutegundum og áfengi. Helmingur telur brjóstsviða hafa áhrif á svefn. Ályktanir: Brjóstsviði er algengur á íslandi. Líkur eru á að ein- staklingar með brjóstsviða séu með sömu einkenni eftir 10 ár. Brjóstsviði hefur áhrif á lífsgæði einstaklinga og notkun þeirra á heilbrigðiskerfinu og lyfjum er meiri en annarra. LÆKNAblaðið 2008/94 33

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.