Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2008, Qupperneq 35
XVIII. ÞING FÉLAGS ÍSLENSKRA LYFLÆKNA
FYLGIRIT 57
síðar er konan við góða heilsu og einkenni æsivaxtar hafa að
hluta til gengið til baka. S-VH gildi hafa lækkað úr 21,4 ng/ml í
0,8 ng/ml (0,5-5 ng/ml) og IGF-1 er nú eðlilegt.
Alyktanir: Þetta tilfelli sýnir að æxli utan heiladinguls geta
framleitt vaxtarhormónakveikju og valdið æsavexti. Um afar
sjaldgæft fyrirbæri er að ræða og aðeins nokkrum tugum til-
fella hefur verið lýst til þessa. Hjá sjúklingum með æsavöxt er
mikilvægt að hafa krabbalíki í lungum í huga, sérstaklega ef
niðurstöður myndgreiningarrannsókna á heiladingli eru ekki
afgerandi.
V 22 Algengi og nýgengi samfallsbrota í hrygg meðal
sjötíu og fimm ára kvenna
Díana Óskarsdóttir11 Gunnar Sigurðsson1-2'3
'Læknadeild HÍ, 2innkirtla- og efnaskiptasjúkdómadeild Landspítala,
3Hjartavemd
mariah@landspitali.is
Inngangur: Samfallsbrot í hrygg eru ein algengustu beinþynn-
ingarbrot meðal kvenna eftir 65 ára aldur. Algengi þeirra er
hins vegar ekki ljóst þar sem einungis hluti þessara einstaklinga
er greindur með brot. Konur með samfallsbrot eru í aukinni
hættu á frekari brotum. Með nýjustu dual energy X-ray absorp-
tiometry (DEXA) tækjum er hægt að meta útlit hryggjarliðbola
með álíka gæðum og með venjulegri röntgenmynd. Markmið
rannsóknarinnar var að kanna algengi og nýgengi samfallsbrota
samkvæmt DEXA-myndum hjá 166 konum 75 ára, á fjögurra ára
tímabili með tveimur mismunandi aðferðum. McCloskey-aðferð
sem er bein hæðarmæling á hryggjarliðbolum og algorithm-based
qimlitative method (ABQ).
Efniviður og aðferðir: Hryggjarmynd af brjóst- og lenda-
liðbolum (hliðarmynd L4-T4) var gerð með DEXA - Hologic
QDR 4500 árið 2003 og að nýju 2007 á beinþéttnimælistofu
Landspítala háskólasjúkrahúss. Brotin voru skilgreind sjálfstætt
með hvorri aðferð fyrir sig; McCloskey-brotin voru staðfest ef
lækkun á liðbol var >20%, ABQ byggir á sjónrænu mati á aflög-
un hryggjarliðbola.
Niðurstöður: Samkvæmt McCloskey var algengi samfallsbrota
meðal kvennanna 29% árið 2003 en 41% árið 2007. Nýgengi á
rannsóknartímabilinu var 17%. Samkvæmt ABQ var algengi
brotanna 32,5% 2003 en 38,5% 2007. Nýgengi á rannsókn-
artímabilinu var 9%.
Ályktanir: Hryggjarmyndir má auðveldlega framkvæma
í kjölfarið á beinþéttnimælingum í DEXA. Þar sem algengi
samfallsbrota, samanber niðurstöður rannsóknarinnar, var
um 30% og nýgengi á rannsóknartímabilinu um 17% sam-
kvæmt McCloskey-greiningu eru slíkar mælingar ákjósanlegar
viðbótarmælingar meðal eldri kvenna við heildarmat á bein-
þynningu. Svo virðist sem samfallsbrot greinist fyrr með ABQ
aðferðinni og því er vert að gera frekari athugun á samræmi
milli þessara tveggja aðferða.
V 23 Hvaða þættir tengjast styrk kalkkirtlahormóns í blóði
við D-vítamín skort?
Örvar Gunnarsson', Ólafur Skúli Indriðason1, Leifur Franzson2, Gunnar
Sigurðsson1
'Lyflæknasviði 1,2rannsóknarsviði Landspítala
orvarg@gmail. com
Inngangur: Þó samband styrks kalkkirtlahormóns (PTH) og D-
vítamíns (25(OH)D) í blóði sé vel þekkt er töluverður breytileiki
í styrk PTH sem ekki skýrist eingöngu af D-vítamínstöðu ein-
staklingsins. Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða hvaða
þættir tengjast PTH-styrk við 25(OH)D skort.
Efniviður og aðferðir: Þetta var þversniðsrannsókn sem tók til
516 karla og kvenna á aldrinum 30-85 ára með D-vítamín skort,
skilgreint sem 25(OH)D <45 nmól/L. Hópnum var skipt í fernt
eftir PTH-styrk í blóði og hæstu og lægstu fjórðungarnir bornir
saman. Við notuðum þrepaskipta, fjölþátta lógistíska aðhvarfs-
greiningu til að ákvarða hvaða þættir hefðu sjálfstæð tengsl við
PTH-stöðu. Allur samanburður var gerður fyrir karla og konur
sérstaklega.
Niðurstöður: Karlmenn með PTH-gildi í lægsta fjórðungnum
reyndust vera marktækt (p<0,05) yngri, með minni orkuinntöku,
lægri líkamsþyngdarstuðul (Body Mass Index, BMI) og betri
nýrnastarfsemi samanborið við hæsta fjórðunginn. Þeir voru
með hærri gildi jónaðs kalsíum, Insulin-like Growth Factor 1
(IGF-1), testósteróns og voru líklegri til að reykja. Konur með
PTH-gildi í lægsta fjórðungnum voru yngri, höfðu lægri lík-
amsþyngdarstuðul og magnesíumgildi en hærri gildi IGF-1 og
voru líklegri til að reykja. Aðhvarfsgreining leiddi í ljós að IGF-1,
testósterón og líkamsþyngdarstuðull höfðu marktæk sjálfstæð
tengsl við PTH-gildi hjá körlum (R2=0,472) en reykingar, líkams-
þyngdarstuðull og nýmastarfsemi hjá konum (R2=0,362).
Ályktanir: Niðurstöður okkar benda til þess að við D-vítamín
skort hafi aðrir þættir en D-vítamín áhrif á styrk PTH og geti
bætt upp þann skort. Þessir þættir virðast vera ólíkir milli karla
og kvenna. Þannig höfum við hjá körlum fundið áður óþekkt
tengsl IGF-1 og testósteróns við PTH og meðal kvenna höfum
við staðfest niðurstöður fyrri rannsókna er sýna tengsl reykinga,
líkamsþyngdarstuðuls og nýmastarfsemi við PTH-styrk.
V 24 Háþrýstingur í börnum og marklíffæraskemmdir á
fullorðinsárum
Ásthildur Erlingsdóttir' Ólafur Skúli Indriðason2, Viðar Öm Eðvarðsson3
'Læknadeild HÍ, 2lyflæknasviði 1,3Barnaspítala Hringsins Landspítala
olasi@landspitali.is
Inngangur: Hár blóðþrýstingur í börnum getur verið áhættu-
þáttur fyrir háþrýstingi og aukinni tíðni hjarta- og æðasjúkdóma
síðar á ævinni. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna
tengsl blóðþrýstings á barnsaldri við hjarta-, æða- og nýrna-
sjúkdóma á fullorðinsaldri.
Efniviður og aðferðir: Við fundum einstaklinga undir 18 ára
aldri, sem lögðust inn til valaðgerða eða rannsókna á sjúkrahús-
in í Reykjavík á árunum 1950-67, þar sem blóðþrýstingur hafði
verið mældur. Við könnuðum afdrif þeirra og kölluðum þá inn
LÆKNAblaðið 2008/94 35