Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2011, Síða 6

Frjáls verslun - 01.10.2011, Síða 6
6 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 iPad 2 Smáralind Opnunartímar: Virka daga 11-19 | Fimmtudaga 11 - 21 | Laugardaga 11 - 18 Sunnudaga 13 - 18 | Sími 512 1300 | www.epli.is Laugavegi 182 Opnunartímar: Virka daga 10-18 | Laugardaga 11 - 16 Sími 512 1300 | www.epli.is Leiðari N ýlega héldu stjórnvöld og Al þjóða gjald ­ eyrissjóðurinn mikla og glæsilega ráð ­ stefnu í Hörpu um það hvernig til hefði tekist í efna hagsmálum þjóð ar innar eftir hrun. Öllu var tjaldað til; margir þekktir íslenskir og útlendir fræðimenn sóttu Hörp una heim þennan dag. Meðal annars komu tveir virtir nóbelsverðlaunahafar í hagfræði, þeir Paul Krugmann og Josep Stiglitz. Tilgangur ráð stefnunnar af hálfu stjórnvalda var að hæla sér af hinu mikla þrekvirki sem þau telja sig hafa unnið í samvinnu við Alþjóða gjald eyrissjóðinn eftir hrunið. Á ráðstefnunni reynd ist hins vegar Geir H. Haarde sigur vegari. Það sem stóð upp úr var að neyðarlög Geirs hefðu bjargað Íslendingum og það hefði verið gæfa þjóð arinnar að fara þá leið sem við fórum. Það væri hluthafa og lánar drottna einka banka að taka á sig skellinn. Og viti menn; allt í einu var þetta rétti strengurinn í hörpunni; álit þremur ár um eftir hrun, stutt af tveimur erl endum nóbels verð launahöfum. Sá, sem setti neyðarlögin, hefur hins vegar að frumkvæði stjórnvalda verið settur á saka ­ mannabekk og geta þau Steingrímur J. Sigfússon, með harm í hjarta, og Jóhanna Sigurðar dóttir, sem greiddi raunar atkvæði á móti sakfellingunni, aldrei krafsað sig frá því. Þetta óhæfuverk er á ábyrgð ríkisstjórnar Jóhönnu. Búsáhaldabyltingin, sem til var komin vegna banka ­ hrunsins og skuldavanda heim ila, splundr aði ríkisstjórn Geirs. Samfylkingin fór á taug um og sveik hann þeg ar á reyndi. Á erfiðum haust dögum fyrir þremur árum, þegar taka þurfti erfiðar ákvarðanir á nokkrum klukkustundum við fall bankakerfisins, var gert grín að Geir vegna hinna fleygu orða hans; Guð blessi Ísland. Þegar Geir var spurður að því í beinni útsend ingu í breska þættinum HardTalk á BBC, eftir að Bretar settu á okkur hryðju verka lög og ráku endanlega naglann í líkkistu banka kerfisins, hvort hann hefði ekki hringt í Gordon Brown kvað Geir svo ekki vera. Þegar gengið var á hann af þáttarstjórnandanum um hvort hann hefði ekki átt að gera slíkt svaraði hann; kannski ég hefði átt að gera það; maybe I should have. Þetta svar hans komst á hundruð kröfuspjalda. Íslendingar hlógu og fannst Geir hafa orðið sér til skammar á alþjóðlegum vettvangi fyrir að hafa ekki hringt í skúrkinn Brown; eins og það hafi staðið upp á hann að gera slíkt. Vinstri­grænir studdu ekki setningu neyðarlaganna á sínum tíma. Hrun íslenska bankakerfisins í kjölfar þess að al­ þjóð lega útlánabólan sprakk haustið 2008 var ekki íslenskum stjórnmálamönnum að kenna. Stundum er á sumum að skilja að Ísland sé slíkur nafli alheimsins að hin al þjóð lega fjármálakreppa sé sprottin frá Ís landi; heimatilbúin þar. Ingibjörg Sólrún Gísla dótt ir sagði eitt sinn að við kæmum fram á erlend um vett vangi eins og sakamenn vegna banka hrunsins. Þar hafði hún mikið til síns máls. Geir H. Haarde og forverar hans í starfi hafa verið gagnrýndir fyrir að leyfa íslenska bankakerfinu að verða tíu sinnum stærra en lands framleiðslan – og hafa ekki nægi lega gott fjármálaeftirlit. Kerfið stækkaði taumlaust vegna EES­samningsins sem kveður á um frjálsa fjár ­ magns flutninga á milli landa. En hvernig áttu stjórn ­ málamenn að koma í veg fyrir að bankamenn og útrásarvíkingar fengju lán í stærstu bönkum Evrópu. Átti að banna þeim það? Hvað hefði þá verið sagt? Enda hvað kom almenningi það við þótt stærstu bankar Evrópu væru svona vitlausir að lána íslenskum athafnamönnum? Var það ekki þeirra einkamál? Varð ekki að virða einkaeignarétt þeirra? Áttu ekki útlendu bank arnir að hafa mesta og besta eftirlitið, þetta var þeirra fé sem þeir jusu í bank ana á Íslandi? Að vísu er hægt að taka undir að það hefði verið þarft verk að aðskilja almenna innlánastarfsemi frá fjárfestingastarfseminni og draga þannig úr áhættunni gagnvart al mennum innlánum. En gamla tuggan um að þetta sé allt þeim að kenna sem seldu gömlu ríkisbankana fyrir níu árum er of ódýr. Þá fyrst báru þeir ekki ábyrgð á þeim. Það var ekki þeirra að bank ­ arnir stökkbreyttust. Ekki seldu þeir Kaupþing, Íslandsbanka og Straum sem þöndust út vegna þess að erlendir stórbankar dældu í þá fé ­ eða Icebank, SPRON og Sparisjóðinn í Keflavík. Skulda vand inn í kjölfar útlánabólunnar hefur magn ast upp og skekur núna fjármálakerfi heims ­ins. Ekki sér fyrir endann á þeim hildarleik. Erl­ endu bönk un um var bjargað tímabundið fyrir þremur árum en skuldavandinn skil inn eftir í píp un um. Núna hafa helstu seðlabankar heims keyrt hreyflana í botn til að bjarga Evrópu og fjármála kerfi heims ins frá falli af bjargbrúninni. Útlána bólan og afleiðingar hennar felldi Geir H. Haarde úr embætti og hún hefur að sögn New York Times fellt átta ríkisstjórnir í Evrópu og fleiri fylgja líklega í kjölfarið, jafnvel í Frakk landi, Þýskalandi og Bandaríkjunum á næsta ári. Ríkisstjórnirnar átta, sem hafa fallið að mati blaðsins vegna óánægju kjósenda með aðhaldsaðgerðir og óvissu, eru á Írlandi, í Dan ­ mörku, Grikk landi, Ítalíu, Spáni, Finn landi, Portúgal og Slóvakíu. Engir hafa haft hug mynda flug til að setja for sætisráðherra þessara landa á sakamannabekk. Hreyflar helstu seðlabanka heimsins eru komnir í botn til að bjarga bönkum. Það er þvert á það sem við gerðum og útlendu spek ingarnar lofsömuðu okkur fyrir í Hörpu. Guð blessi Evrópu og fjármálakerfi heimsins. Guð blessi Evrópu Jón G. Hauksson Hreyfl­ arnir eru komnir í botn. Guð blessi Evrópu og fjármála­ kerfi heims ins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.