Frjáls verslun - 01.10.2011, Blaðsíða 76
76 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011
S
pjaldtölvur, sem einnig
eru oft kallaðar töflutölvur,
eru síður en svo nýjar
af nálinni. Fyrir réttum
tíu árum hélt Bill Gates,
þá verandi yfirmaður
þróunar mála hjá Micro
soft, ræðu á Comdextækniráðstefnunni í
Las Vegas. Þar talaði hann fjálglega um
bjarta framtíð spjaldtölva, sem Microsoft
hugðist leggja mikið púður í næstu árin.
„Ég vona að á ráðstefnunni á næsta
ári muni stór hluti áhorfenda taka niður
punkta á slíkar tölvur og ég spái því að
innan fimm ára verði spjaldtölvur orðnar
mest seldu tölvur í Bandaríkjunum,“ sagði
Gates.
réttur maður á rönGum tíma
Árum saman var gert grín að þessum
spádómum Gates, enda voru spjald
tölvur langt frá því að ná einhverri sölu
að ráði. Árið 2007 var markaðshlutdeild
spjald tölva til að mynda einungis 1,2%
af tölvumarkaðnum á heimsvísu. En
síðasta eina og hálfa árið hefur komið í
ljós að Gates hafði verið á réttri braut í
spádómum um innreið spjaldtölvanna –
þeir komu bara fram á röngum tíma. Og
reyndar í vitlausu húsi því það var ekki
Microsoft sem áttaði sig á því hvernig ætti
að hanna spjald tölvur sem almenningur
hefði áhuga á. Það var Apple sem fann
lykilinn að hjörtum tölvunotenda og ekki í
fyrsta skiptið sem menn þar á bæ skjóta
keppinautunum ref fyrir rass við hönnun
tölvubúnaðar.
Frá því Apple gaf út fyrstu iPadspjald
tölvuna í apríl 2010 hefur hún rokselst. Í
sumar höfðu frá upphafi selst 25 millj
ónir iPadtölva á heimsvísu og þótt aðrir
tölvuframleiðendur hafi rokið upp til handa
og fóta í von um að ná að elta velgengni
Apple á þessu sviði eru engir alvöru
keppinautar komnir fram á sjónarsviðið.
Markaðshlutdeild iPad er enn í kringum
80% og mun án efa haldast mjög há
næstu árin.
nýtist á dollunni
En hvað er þetta fyrirbæri, spjaldtölva, og
hvernig breytir hún því hvernig við notum
tölvur á heimilum og í vinnu? Þetta eru í
raun fartölvur án lyklaborðs, sem stjórn
að er gegnum snertiskjá. Þær eru því
afar léttar og meðfærilegar. Segja má að
grundvallarhugsunin að baki velgengni
iPad frá Apple sé sú að spjaldtölva eigi
að leggja áherslu á neyslu fjölmiðlaefnis í
stað sköpunar efnis.
Á meðan Bill Gates og félagar töldu
alltaf að aðalstyrkleiki spjaldtölvanna lægi
í að hægt væri að skrifa og teikna á þær
GaTes sá InnrásIna FyrIr
Það eru tíu ár síðan Bill Gates sá innrás spjaldtölvanna fyrir. Síðasta eina og hálfa árið hefur komið í ljós að
Gates hafði verið á réttri braut í spádómum sínum sem komu bara fram á röngum tíma. Nú er því spáð að
spjaldtölvur verði jólagjöfin í ár.
TexTi: krisTinn JÓn arnarson
Innrás spjaldtölvanna:
Bill Gates.