Frjáls verslun - 01.10.2011, Blaðsíða 68
68 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011
sOny
Hver er lykillinn að baki
velgengninni?
Fyrir svörum verður Eyjólfur
Jóhannsson, vörustjóri Sony
hjá Nýherja. „Ég held að sá
lyk ill felist í hugmyndafræði
stofnenda Sony, Masaru Ibuka
og Akio Morita, sem sögðu
tilgang fyrirtækisins „að gera
eitthvað sem aldrei hefur verið
gert áður“.
Þessi hugmyndafræði hefur
haldið sér í gegnum tíðina og
fyrirtækið vinnur enn þann dag
í dag eftir henni. T.d. má nefna
að 60 árum seinna er slagorð
fyrirtækisins „make believe“
sem stendur fyrir að þróa og
framleiða þær hugmyndir sem
þróunardeildir og viðskiptavin
ir Sony láta sig dreyma um.
Öll Sonysjónvarpstæki
nettengjanleg
Þetta kemur fram á mörgum
sviðum, t.d eru öll sjónvarps
tæki sem við seljum frá Sony
orðin nettengjanleg og þar með
er hægt að njóta efnis af netinu
eða nýta efni sem fólk er með
á heimilistölvunni á einfaldan
hátt. Meginhugsunin er að geta
samnýtt öll tæki heimilisins þar
sem sjónvarpið er miðjan í allri
upplifun á stafrænum miðlum,
hvort sem það eru bíómyndir,
tónlist eða ljósmyndir.
Framtíðin lítur vel út fyrir
Sony. Fyrirtækið er öflugt og er
í fararbroddi í tækninýjungum
á mörgum sviðum, s.s. mynda
vélum þar sem fyrirtækið kynnti
nýlega byltingu í tækni með
svo kölluðum SLTmyndavélum
sem hafa fengið frábærar mót
tökur bæði hjá gagnrýnendum
og neytendum. Einnig má
nefna að í sjónvarpstækjum,
þar sem samkeppnin á milli
fram leiðenda er gífurlega hörð,
fengu þeir EISAverðlaun fyrir
besta sjónvarpið 20112012.
Sonyspjaldtölvur – öðru
vísi hönnun
Sony hefur einnig verið mjög
öflugt í framleiðslu á hágæða
fartölvum sem kallast VAIO og
eru, að öðrum ólöstuðum, með
glæsilegri PCvélum á markaðn
um. Síðan blandaði fyrirtækið
sér nýlega í spjaldtölvufram
leiðsluna með glæsilegri og
öflugri spjaldtölvu sem er ólík
öllum öðrum.
Hún er einstök og ólík öðrum
vélum í hönnun að því leyti að
hún er þykkari öðrum megin,
sem gerir að verkum að öll
meðhöndlun er mjög þægileg
og jafnvægið betra en þegar vél
ar eru hannaðar á hefðbundinn
hátt, eins og við þekkjum frá
öðrum framleiðend um.“
„Meginhugsunin er
að geta samnýtt öll
tæki heimilisins þar
sem sjónvarpið er
miðjan í allri upplif
un á stafrænum miðl
um, hvort sem það eru
bíómyndir, tón list eða
ljósmyndir.“
sony hefur verið frumkvöðull í þróun og framleiðslu tæknibúnaðar fyrir
hljóð- og myndvinnslu í yfir 50 ár.
Hágæðafartölvur
Eyjólfur Jóhannsson, vörustjóri Sony hjá Nýherja, í nýrri glæsilegri Sony Center-verslun í Nýherja, Borgartúni.