Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2011, Blaðsíða 11

Frjáls verslun - 01.10.2011, Blaðsíða 11
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 11 „Væntanlegir eru svo fyrstu snjallsím­ arnir frá Nokia sem keyra á Windows Phone­stýrikerfi en fyrir tæpu ári kynntu Nokia og Microsoft framtíðarsamstarf sitt.“ Symbian Belle Framan af árinu dróst Nokia aftur úr í snjallsímaheiminum með Symbian-stýrikerfið og þótti ekki vera á pari við iOS og Android. Á þessu hefur orð ið gífurleg breyting upp á síðkastið þar sem segja má að Symbian sé nú fyrst komið í út­ gáfu sem er frá upphafi hönnuð með snertiskjái í huga. Fram að því var Nokia að útfæra Sym bian fyrir takkasíma yfir í snertiskjássíma – sem skilaði einfaldlega ekki nógu góðum árangri. Útgáfan sem nú um ræðir gengur undir nafninu Sym bian Belle og er þegar kom in í tvær gerðir Nokia­snjallsíma. Þessi útgáfa verður svo tilbúin til niðurhals fyrir flestar nýrri gerðir Nokia­snjallsíma innan nokk urra vikna. Symbian Belle er gjörbreyting frá fyrri útgáfum og almennt sagt á pari við Android og iOS hvað vinn slu og hraða varðar. Nokia N9 Nýverið kynnti Nokia á mark að Nokia N9 en hann er frá brugð ­ inn öðrum Nokia­snjall símum að nær öllu leyti. Hann keyrir á MeeGo-stýrikerfi sem er eitt það allra öflugasta og hraðvirkasta á markaðinum. MeeGo byggist á Linux rétt eins og Android og er því opnara stýri kerfi en gengur og gerist. Í Nokia N9 verður t.d. hægt að keyra upp mikinn fjölda Android­smá­ forr ita eða appa. Skjárinn, hraðinn og aðgerða ­ stýringar Nokia N9 eru það sem hefur fyrst og fremst slegið í gegn auk þess sem síminn er talinn með því allra besta sem sést hefur hvað hönnun varðar. Á bæði Mobil Awards 2011 í Danmörku og Svíþjóð vann sím ­ inn til fyrstu verðlauna í flokkn - um Hönnun. Í Svíþjóð var hann einnig valinn Sími ársins. Spennandi samstarf Nokia og Microsoft Væntanlegir eru svo fyrstu snjall símarnir frá Nokia sem keyra á Windows Phone­stýri ­ kerfi en fyrir tæpu ári kynntu Nokia og Microsoft framtíðar ­ samstarf sitt. Það er reyndar gaman frá því að segja að fundir Nokia og Microsoft, sem voru hernaðarleyndarmál, áttu sér flestir stað á Íslandi án þess að nokkur vissi af. Þetta feng um við að vita eftir tilkynn ingu þessara tveggja risa um þetta viðamikla samstarf. Og vissulega er um spenn andi samstarf að ræða þar sem ann ars vegar stærsti fram leið ­ andi far síma í heiminum og hins vegar stærsti hug bún ­ aðarframleiðandi heims taka saman höndum. Fyrstu símarnir voru kynntir á Nokia World í London fyrir nokkrum vikum. Nokia Lumia 800 er ann ar símanna sem kynntir voru og er hann byggð­ ur á sömu hönnun og Nokia N9. Hann þykir einn mest spenn andi farsími á markaðin­ um, sérstaklega fyrir fyrirtæki þar sem öryggi í samskiptum skipt ir miklu máli en ekki síður fyrir einstaklinga sem gera kröfur um fallega hönnun og hraða, auk einfaldleika í notkun. Nokia­þjónustur, sem áður kölluðust Ovi services, eru Nokia Store, Nokia Messaging og Nokia Maps. Það sem þessar þjónustur eiga sameiginlegt er að þær eru aðgengilegar fyrir alla Nokia­snjallsíma en einnig ýmsa Nokia­farsíma sem ekki flokkast undir snjallsíma, þ.e. ódýrari gerðirnar. Í Nokia Store er hægt að nálg ­ ast öll smáforrit sem eru í boði fyrir Nokia snjall­ og farsíma en í boði eru yfir 60 þúsund forrit og hefur innlendum for­ ritum fjölgað töluvert að undan­ förnu. Nokia Maps er gps­staðsetn ­ ingar- og leiðsögukerfi Nokia og er líklega það sem greinir Nokia­snjallsíma helst frá öll um öðrum snjallsímum á mark aðinum enda er þetta eina gps-kerfið fyrir farsíma sem ekki þarfnast nettengingar við not kun. Kortin eru í símanum en ekki á netinu. Notkun þess og kortagrunnur og uppfærslur á honum kosta ekkert aukalega. Kortagrunnurinn er frá Navteq, sem er í eigu Nokia, en nefna má að t.d. Garmin og Navigon notast við sama kortagrunn. Nokia Messaging er svo tölvu ­ póstsþjónusta Nokia sem gerir notendum kleift að vera með allt að tíu tölvupósts reikninga í símanum og allt á sama stað – ekki mörg forrit fyrir mismun­ andi reikninga heldur eitt forrit fyrir þá alla. Björt framtíð hjá Nokia Framtíð Nokia er björt. Sam­ starf Nokia og Microsoft er vægast sagt spennandi og mun án nokkurs vafa auka hróð ur Nokia á snjallsímamarkaði af­ tur. Auk þess hefur þróun Sym­ bian tekið þvílíkum fram förum að ljóst er að Nokia verður enn um sinn ráðandi á hinum hraða markaði, sem er í sífelldri þróun. Hér gerast hlut irnir hratt og má segja að eitt ár í þróun farsíma sé sem fimm ár í tölvubransanum.“ N okia N 9.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.