Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2011, Page 22

Frjáls verslun - 01.10.2011, Page 22
22 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 Í Stuttu máli eirÍkur guðnaSOn JarðSunginn Eiríkur Guðnason, fyrrverandi seðla banka stjóri, var jarð­sung inn frá Hall grímskirkju 9. nóvem ber að við stöddu miklu fjöl menni. Eiríkur varð við skiptafræð ­ ingur árið 1970 og starfaði allan sinn starfs feril í Seðlabanka Íslands, í sam ­ tals um 40 ár. Eiríkur var skipaður seðla bankastjóri vorið 1994. Hann var m.a. for maður stjórnar Verðbréfaþings Íslands 1986­1999 og eftir hann liggur fjöldi ritgerða um peningamál og fjár ­ málakerfi.  nú er Hún SnOrra búð Stekkur Eftir áratuga starfsemi Íslendinga vestanhafs hefur Icelandic Group selt starfsemi sína í Bandaríkjunum sem og tengda innkaupa­ og framleiðslustarfsemi í Asíu. Kaupandi er kanadíska sjávarútvegsfyrirtækið High Liner Foods. Söluverðið er 230 Bandaríkjadalir sem jafngildir um 27 milljörðum króna. Þetta er söguleg sala því einn af forverum Ice landic Group, Sölumiðstöð hraðfrystihús­ anna, setti upp verksmiðju í Bandaríkjunum um miðja síðustu öld en Bandaríkin hafa lengi verið einn helsti markaður Íslendinga fyrir frystar afurðir. Icelandic Group mun áfram eiga vörumerkið Icelandic Seafood en kaupandi hefur rétt til notkunar á því í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó næstu sjö árin. Þá hefur High Liner gert langtíma­ dreifingarsamning við Icelandic Group um kaup og dreifingu á íslenskum sjávarafurðum á þessum mörkuðum til þess að tryggja að markaðsaðgangur íslenskra framleiðenda verði sá sami og verið hefur. Með þessari sölu og sölu eigna í Þýska­ landi og Frakklandi hefur Icelandic Group selt eignir fyrir samtals um 41 milljarð króna, þar af hefur um 21 milljarður verið greiddur með yfirtöku skulda sem hvíldu á starfseminni. peningar, græðgi Og guð Skafti Harðarson, einn af áhuga mönn um um frjáls ­hyggju og kapítalisma á Íslandi, hefur nú ásamt fleirum gefið út bókina Pen ingar, græðgi og Guð eftir Jay W. Richards. Bókin er 308 bls. og gefin út af Bókaútgáfunni Uglu. Höfundur kemur með heilræði í lokin sem hér eru endursögð: 1. Komið á og viðhaldið lögum og reglu. 2. Beitið lögsögu ríkisstjórnar til þess að viðhalda lögum og reglu og takmarkið lögsögu hennar yfir hagkerfinu og stofnunum þjóðfélagsins. 3. Komið á formlegu eignarréttarkerfi. 4. Ýtið undir efnahagslegt sjálfstæði fólks og leyfið því að eiga frjáls viðskipti með vörur og þjónustu. 5. Ýtið undir stöðugleika fjölskyldna og annarra mikilvægra frjálsra stofnana. 6. Ýtið undir trú á þann sannleika að alheimurinn hafi tilgang. 7. Ýtið undir trú á réttu menningarlegu hefðirnar. 8. Innrætið réttan skilninga á eðli auðs og örbigðar ­ að auður sé skapður og frjáls viðskipti séu öllum í hag. 9. Einbeitið ykkur að samkeppnisstyrk ykkar fremur en að varðveita það sem var samkeppnisforskot ykkar. 10. Leggið hart að ykkur. Heimilin eiga 622 millJarða Í lauSafé Tvær þjóðir í landinu: Fréttin um að heimili landsins ættu samanlagt um 622 millj arða í lausafé í bönkum kom mörgum á óvart. Heimilin skulda hins vegar tals ­ vert meira og nemur sú upp hæð um 1.507 milljörðum króna. Þar af eru um 83% verðtryggð lán eða um 1.250 milljarðar króna. Nettó­eignastaðan er þó ekki svona þar sem heimilin eiga talsvert eigið fé í húsnæði. Hvað um það, 5% verð bólga á ári hækkar skuldir heim il anna sjálfkrafa um 60 milljarða á ári og 10% verð bólga um 120 milljarða króna. Skuldir heimila við bankana eru um 650 milljarðar en um 850 milljarðar við aðra; eins og Íbúðalánasjóð, Lána sjóð námsmanna og lífeyrissjóði. Þessi frétt segir okkur þó fyrst og fremst eitt; það búa tvær þjóðir í landinu; sú sem á og sú sem skuldar. Heimilin eiga 622 milljarða í lausafé en skulda 1.507 milljarða. Hvernig datt ykkur þetta Í Hug? Það vakti að vonum athygli þegar Þórarinn G. Péturs ­ son, aðalhagfræðingur Seðla bankans, sagði í pall borðsumræðum á fun di Við skiptaráðs að vaxta ­ hækk un bankans nýlega hefði fyrst og fremst verið til að koma í veg fyrir víxl­ verk anir launahækkana og verðlags. Þórarinn spurði svo fulltrúa atvinnurekenda úti í sal hvernig þeim hefði dottið í hug að semja um svo miklar launahækkanir í kjarasamningunum fyrr á þessu ári. Bókin Peningar, græðgi og Guð.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.