Frjáls verslun - 01.10.2011, Blaðsíða 56
56 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011
Mentor er í fremstu röð á Norðurlöndunum hvað varðar upplýsingakerfi fyrir skólasamfélagið. Framkvæmdastjórinn
og einn af stofnendunum kom í heiminn
árið 1967 og ólst upp á bænum Þórisholti í
Mýrdal innan um fimm systkini, mömmu,
pabba og ömmu; foreldrarnir eru Sigurbjörg
Páls dóttir og Einar Kjartansson sem brugðu
búi 1995. Jú, einhver dýr voru á bænum; m.a.
hund urinn Snati, kýr, kindur og hænur.
Mentor hlaut á dögunum Nýsköpunar verð
laun Íslands árið 2011, sem afhent voru á Ný
sköpunarþingi, og veitti Vilborg verðlaunun
um viðtöku ásamt starfsfólki sínu.
Þorgerður, systir Vilborgar, sem er sjö árum
eldri, segir um yngri systur sína Vilborgu:
„Allt sem hún gerði sem barn gerði hún
yfirleitt átakalaust. Hún var hæglát, gott barn
og hafði mikið jafnaðargeð.
Hún var keppnismaður sem unglingur,
fjör ug, fór snemma að taka þátt í íþróttum og
hún „vann“ ekki annað sætið – hún tapaði
því fyrsta.“
Þorgerður segir að Vilborg hafi alla tíð verið
heilsteyptur persónuleiki. „Hún hefur alltaf
hugsað í lausnum. Það var ekkert vandamál
fyrir henni í æsku heldur skipti máli hvernig
hún myndi leysa þau.“
Þorgerður segir systur sína flottan stjórn -
anda, hún sé markmiðamiðuð og viti alveg
hvert hún ætli og hvernig hún ætli að fara að
því. „Hún er keppnismanneskja og fljót að
hugsa og framkvæma. Hún er manneskjan
sem þarf að ná flugvél og nær henni kannski
einni mínútu áður en hún fer í loftið; en hún
nær henni alltaf. Svo tekur hún ranga lest og
fer í öfuga átt en lendir samt alltaf á réttum
stað. Það er einfaldlega svo mikið að gera
hjá henni. Hún er mjög dugleg og fram
kvæmdasöm manneskja. Þrátt fyrir annríki
er Vilborg afar hugulsöm og fylgist vel með
fjölskyldu sinni.“
FullorðinsFræðsla
Vilborg hleypti heimdraganum 16 ára gömul
og flutti upp í Borgarfjörð til að nema þar
við Samvinnuskólann á Bifröst. Draumarnir?
Hún segist ekki hafa verið með neina
drauma á þessum tíma. Tíminn átti eftir að
leiða í ljós hvert leið hennar lægi.
Hún segir Samvinnuskólann hafa verið
frábæran skóla. „Það var frábært að vera í
heimavist í Borgarfirði. Ég lærði þar mik -
inn aga. Það styrkti mig.“
Hún tók þátt í félagslífinu í skólanum; var
í briddsklúbbi og formaður íþróttaklúbb s
ins á staðnum. „Skólinn var þekktur fyrir
mikið félagslíf.“
Briddsspilamennskunni í Borgarfirði lauk
eftir samvinnuskólapróf og fjörðurinn græni
fjarlægðist smátt og smátt í baksýnisspegl
inum. Vilborg hélt til Reykjavíkur og lauk
stúdentsprófi og settist því næst á skóla
bekk við Kennaraháskóla Íslands. Lauk
þaðan prófi 1993 og nýútskrifuð stofnaði
hún MFA-skólann; um var að ræða skóla
fyrir fólk í atvinnuleit á vegum Menningar
og fræðslusambands alþýðu og einbeitti
hún sér að fullorðinsfræðslu næstu árin.
Nokkrum árum síðar hóf hún meistara
nám í stjórnun og stefnumótun við Háskóla
Íslands og hluta af því námi stundaði
hún hjá frændum vorum Dönum – nánar
tiltekið í Árósum. „Það var lærdómsríkt
að þurfa að bjarga sér í öðru landi og tala
annað tungumál.“
Heim komin árið 2002 hóf hún störf í sínu
eigin fyrirtæki, þ.e. hjá Mentor sem hún
hafði stofnað með fleirum rúmum tveimur
ár um fyrr. Hlutverk fyrirtækisins er að
auka árangur í skólastarfi.
Út Fyrir landsteinana
Mentor hefur síðan vaxið jafnt og þétt. „Það
gerist ekki nema með góðu fólki. Tæki færin
drífa okkur áfram. Það er svo margt spenn
andi að gerast varðandi mennt un í heimin
um. Tilhugsunin um að stuðla að auknum
árangri í skólastarfi gefur okkur kraft í
okkar daglega starfi. Það er köllun okkar.
Þegar við sáum að við gátum ekki vaxið
meira á Íslandi fórum við að fikra okkur
á erlendan markað. Við höfum verið svo
lánsöm að finna frábæra samstarfsaðila til
ViLBorG EiNarSdóttir stýrir Mentor sem náð hefur góðum árangri á meginlandi Evrópu. Vinnan er eitt af henn ar aðal áhugamálum og keppnismanneskjan sem æfði íþróttir í æsku sýnir svipaða takta í framkvæmdastjórastólnum.
TexTi: svava JÓnsdÓTTir myndir: Geir Ólafsson
Sveitastúlka
úr Mýrdalnum
ViLbOrg einarsdóttir fOrstjóri MentOr, í nærMynd
„Hún kann að segja skemmti
legar sögur, ekki síst af sjálfri
sér. Hún á það til að týna
hlutum og missa af lestum
og flugvélum. Hún getur
stund um verið svolítið utan
við sig.“