Frjáls verslun - 01.10.2011, Side 62
62 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011
Þ
að mætti eiginlega
ekki vera lengra á
milli þessara yfirlita,
því svo ört þróast
tæknin að eitt ár
er næstum eins og heil eilífð.
Á síðasta ári urðu ákveðin
vatnaskil, því snjallsímastýri
kerfi og spjald eða lestölvur
röðuðu sér í fjögur efstu sætin
(Android, Apple iPad, Amazon
Kindle og Samsung Galaxy
Tab, í þessari röð). Árið 2011
hefur verið sannkallað ár snjall
símanna og spjaldtölvanna og
því ekki hægt að segja annað
en listinn á síðasta ári hafi verið
í góðum takti við tíðarandann.
Breyttir tímar?
Að þessu sinni er áherslan
á snjallsíma og spjaldtölvur
ekki alveg eins greinileg, þótt
vissulega séu slíkar græjur
fyrir ferðarmiklar. Athyglisvert er
til að mynda að sjá að Andr
oidsnjallsímastýrikerfið, besta
græjan í fyrra, er hvergi sjáan
legt í ár. Spennandi verður svo
að sjá hvort bestu græjur þessa
árs verði jafnáberandi á kom
andi mánuðum og raunin varð
síðast.
Að vanda leitum við í smiðju PC World, eins elsta og virtasta tölvu
og tæknitímarits heims, sem
hefur valið bestu græjurnar ár
hvert í yfir 30 ár. Þar hafa verið
þróaðir vinnuferlar við val á
bestu græjunum þar sem tekið
er mið af mörgum ólíkum þátt
um – gæðum, verði, mikilvægi
við framþróun tækn innar og
ýmsu öðru. Á endan um kýs
ritstjórnin um niðurröðun og
eins og með flesta topplista
felst síðan mesta skemmtunin í
að rökræða niður stöðuna.
Íslenskar aðstæður
Við lögum listann að íslenskum
aðstæðum, enda tekur PC
World mið af framboði vestan
hafs, þar sem ýmsar vörur og
þjónusta fást sem ekki eru í
boði hér á landi (upprunalega
listann í heild sinni má finna
á slóðinni bit.ly/vsm6yg).
Því veljum við úr þær vörur
sem fást hér innanlands eða
er hægt að panta í gegnum
vefverslanir án teljandi vand
ræða. Því miður leiðir þetta til
að ákveðnir vöruflokkar verða
síður fyrirferðarmiklir á okkar
lista. Til dæmis voru á listan
um nokkrir snjallsímar sem
eingöngu eru fáanlegir vestan
hafs og erfitt er að flytja hingað
til lands þar sem þeir eru með
áskriftarbindingu við þarlend
símafyrirtæki.
Verð sem við birtum hér mið
ast við skráð verð á vefsíðum
íslenskra verslana námundað
að næsta þúsundi (og vefslóðin
fylgir þá með). Leitast er við
að birta verð hjá umboðsaðila
hér á landi eða lægsta verð
sem finnst við leit á netinu, en
þó er ekki hægt að ábyrgjast
að varan sé ekki til ódýrari. Ef
ekki finnst íslensk vefverslun
er verðið gróflega áætlað með
gjöldum, tollum og flutnings
kostnaði sem bætist við ef
panta þarf vöruna að utan. Ekki
er heldur hægt að ábyrgjast þá
útreikninga, enda oft erfitt að
átta sig á því hvar tæknivörur
lenda hjá tollyfirvöldum. Áætlað
verð þó alltaf ágætis vísbend
ing sem gott er að nota við
samanburð við aðra vöru.
1. apple Macbook air
Fartölva (verð frá u.þ.b. 180.000 kr. hjá t.d. www.epli.is og www.
macland.is). Þessi öfluga en þunna ofurlétta fartölva frá Apple
fær titilinn græja ársins hjá Frjálsri verslun þetta árið. Ný og end
urhönnuð útgáfa kom á markaðinn á árinu með Core i5örgjörv
anum og sló heldur betur í gegn. Sérfræðingar PC World segja
að MacBook Air komist eins nálægt því að vera hin fullkomna
léttfartölva og mögulegt er með nútímatækni. Nýja útgáfan hefur
tekið stórt stökk frá fyrirrennaranum hvað vinnslugetu snertir og
ekki nóg með það, heldur er hún umtalsvert ódýrari.
2. intel sandy bridge-örgjörvalínan
Örgjörvar (verð frá u.þ.b. 18.000 kr., fást í öllum helstu tölvuversl
unum). Önnur kynslóð Core i3, i5 og i7örgjörvanna, sem kölluð
er Sandy Bridge, hefur farið sigurför um heiminn. Það er ekki að
furða, því endurhönnuð grunnbygging örgjörvanna leiðir til þess
að þeir eru sparneytnari, hafa meiri reiknigetu og umtalsvert betri
grafíkvinnslu en fyrsta kynslóðin.
3. samsung galaxy sii
Snjallsími (verð u.þ.b. 109.000 kr. í helstu síma og raftækjaversl
unum). Galaxy S IIsnjallsíminn hefur hvarvetna hlotið frábæra
dóma, enda er hann með einstaklega skýran og flottan skjá og
gríðaröflugan tvíkjarna 1,2 GHz örgjörva. Þrátt fyrir það er Galaxy
S II tiltölulega léttur og þægilegur í meðförum.
4. Microsoft kinect
Jaðartæki fyrir leikjatölvu (verð u.þ.b. 35.000 kr., t.d. á www.elko.
is). Þetta einstaklega vel hannaða jaðartæki fyrir Xbox 360leikja
tölvuna frá Microsoft gerir allan líkamann að stýripinna og færir
þannig tölvu leikina inn í allt aðra vídd en við höfum átt að venjast.
Með Kinect hoppa spilarar kófsveittir um alla stofu – sem er ólíkt
heilsusamlegra en að sitja hreyfingarlaus fyrir framan skjáinn.
MacBook Air frá Apple er græja ársins, enda
snilldarlega vel heppnuð fartölva.
Sandy Bridgeörgjörva
línan frá Intel hefur vakið
athygli fyrir vinnslugetu
og sparneytni.
Samsung Galaxy SII er
besti snjallsími ársins.
Microsoft Kinect Jaðartæki fyrir leikjatölvu.
1
2
3
4