Frjáls verslun - 01.10.2011, Síða 79
„OKbúðin býður helstu gerðir spjaldtölva; iPad 2, Samsung Galaxy, Motorola Zoom og HTC Flyer.“
hjá Opnum kerfum, aðgengi að
vefverslun og þjónustugátt OK
búðarinnar og það myndast
strax saga sem tengir viðskip
tavin, búnað og þjónustu. Sölu
og þjónustuaðili er einn og
hinn sami, sem hefur ótvíræða
kosti í för með sér varðandi
öll samskipti og skiptir ekki
máli hvort um neytendur,
ein yrkja, lítil fyrirtæki eða stór
er að ræða í þessu samhengi.
Viðskiptavinur sem verslar í
OKbúðinni nýtur kosta þess,
auk þess að versla við Opin
kerfi.“
Heitustu tækin í dag
Aðspurður um heitustu tækin
í dag er Sævar fljótur til svars.
„Spjaldtölvur njóta gríðar
legra vinsælda í dag. OKbúðin
býður helstu gerðir spjaldtölva;
iPad 2, Samsung Galaxy,
Motor ola Zoom og HTC Flyer.
Munurinn á þessu tækjum felst
í umfangi og stýrikerfi; iPad 2
er með iOS-stýrikerfið en hinar
gerðirnar Android. Vonandi
fáum við tækifæri til að bjóða
upp á spjaldtölvu með Win
dows-stýrikerfi bráðlega.“ Að
sögn Sævars verða spjaldtölvur
líklega jólagjöfin í ár en hann
bendir jafnframt á áhugaverða
valkosti. „Beatsheyrnartól og
sérstaklega hannaðar tölvur
með HP Beats-hljóðkerfi eru
einnig vinsæl. Þessi nýja Beats
tækni er að slá í gegn enda er
hljómburðurinn allur annar
en í hefðbundnum tölvu bún
aði. Tónlistarmaðurinn og
framleiðandinn Dr. Dre er
hugmynda smiðurinn á bak
við þetta en honum fannst
framleiðendur hafa slegið
slöku við í þróun á hljómburði
frá tölvum. Hann fór því í
sam starf við HP og útkoman
er HP Beats; í raun ótrúleg
hljómupplifun úr tölvubúnaði
sem fólk verður hreinlega að
prófa. Þá bjóðum við ýmsar
lausnir fyrir hljóð og mynd, til
dæmis þráðlausa hátalara og
flakkara.“
Rafræn viðskipti hafa
aukist mikið
Opin kerfi hafa rekið vefversl-
un síðan 1999. Undanfarin ár
hefur hún verið órjúfanlegur
þáttur í starfsemi fyrirtækisins
en í kjölfar opnunar OKbúð
ar innar var ráðist í miklar
breytingar á vefnum og hann
nefndur eftir búðinni, www.
okbudin.is. Ólafur Borgþórs
son, verkefnastjóri rafrænna
viðskipta hjá Opnum kerfum,
segir verslun á netinu hafa auk
ist mikið á árinu. „Viðskipta vinir
sjá mikinn ávinning í því að nýta
sér þjónustuna sem er í boði á
vefnum. Þar má nálgast flestar
þær vörur sem búðin hefur
upp á að bjóða og skoða, bera
saman, setja í körfu og panta.
Auk þess geta viðskiptavinir
skoðað verkefni sem eru í
gangi, skoðað viðskiptasögu
og tekið út búnaðarlista. Þegar
viðskiptavinur hefur skráð sig
inn á vefinn sér hann verð á
öllum vörum samkvæmt sínum
viðskiptakjörum ásamt almennu
verði til samanburðar.“
FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011 79
Ólafur Borgþórsson, verkefnastjóri rafrænna viðskipta, og Sævar Haukdal, sölustjóri notendalausna hjá Opnum kerfum.