Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2011, Síða 95

Frjáls verslun - 01.10.2011, Síða 95
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 95 hafi verið myrtur og sannfærist síðar um að morðið er aðeins eitt stykki í stóru púsluspili prófessors Moriartys. Holmes rekur slóðina í neðanjarðarklúbb herra ­ manna þar sem hann rekst á bróður sinn, Mycroft, og Dr. Watson þar sem þeir eru að skála fyrir Watson, sem er að fara að gifta sig daginn eftir. Í klúbbnum hittir Holmes fyrir sígaunaspákonuna Sim sem veit lengra nefi sínu um atburði dagsins. Þegar henni er sýnt banatilræði bjargar Holmes henni og hún launar greiðann með því að hjálpa honum. Watson bætist í hópinn og þrjú saman elta þau Moriarty frá Englandi til Frakklands og Þýskalands og þaðan til Sviss, en hvað sem þau reyna er Moriarty alltaf skrefinu á undan þeim og spinnur vef sinn og ef honum tekst að framkvæma áætlun sína mun það breyta mannkynssögunni. Stjörnum hlaðin kvikmynd Það er að sjálfsögðu Robert Downey jr. sem leikur Sherlock Holmes og hefur hann sett sinn stimpil á þessa frægustu leyni ­ löggu allra tíma og er eins og fæddur í hlut verkið. Ætla mætti að framtíð Downeys væri tryggð næstu árin því hann þarf ekki annað en að skipta á milli Járnmannsins í þeirri vinsælu kvikmyndaseríu og Sherlocks Holmes til að ná sér í ævintýralegar tekjur. Staðreyndin er samt sú að Robert Downey jr. væri ekki svona eftirsóttur væri hann ekki framúrskarandi leikari, sem eftir vafasamt líferni í mörg ár rétti úr kútnum og er meðal allra virtustu kvikmyndaleikara í dag. Jude Law leikur Watson sem fyrr og í hlutverki bróður Holmes er Stephen Fry, sem margir þekkja úr ýmsum sjónvarps ­ þátt um sem hann stýrir fimlega. Fry, sem stundum er kallaður þjóðargersemi Breta, á örugglega ekki í vandræðum með að setja sitt mark á kvikmyndina. Í hlut verki prófessors Moriartys er svo Jared Harris, sem allir aðdáendur Mad Men­sjónvarps ­ þáttanna þekkja. Hann á ekki langt að sækja leikhæfileikana því faðir hans var Richard Harris, frábær leikari, en einnig mikil fyllibytta, og sást síðast í Harry Potter­ myndunum áður en hann lést 2002. Þá er Íslandsvinkona okkar frá barnæsku til full orðinsára, Noomi Rapace, í hlutverki sígauna spákonunnar Sim. Aðrir leikarar sem einnig voru í fyrri mynd ­ inni eru Eddie Marsdan í hlutverki Lestr ad­ es, Kelly Reilly í hlutverki unnustu Wats ons og Geraldine James sem leikur hina hrjáðu ráðskonu Holmes, Frú Hudson. Guy Ritchie Leikstjóri Sherlock Holmes­myndanna er Guy Ritchie og segja má að þær hafi bjarg ­ að ferli þessa ágæta leikstjóra sem byrjaði með miklum glans þegar hann sendi frá sér Lock, Stock and Two Smoking Barrels og Snatch, tvær frábærar myndir sem gerast að mestu meðal undirheimalýðs Lundúna og eru vel úthugsaðar og stíliseraðar nú ­ tíma myndir með hraðri atburðarás. Eftir að hann kynntist Madonnu og giftist henni fór ferillinn í beinni línu niður á við þar sem botninum var náð í Swept Away þar sem hann leikstýrði eiginkonu sinni. Ritchie náði sér aðeins á strik með RocknRolla án þess að ná sömu hæðum og í upphafi ferilsins, en siglir nú lygnan sjó í Sherlock Holmes­ myndunum og hefur náð betur en flestir aðrir andrúmslofti skuggahverfa London í upp hafi síðustu aldar. Ef vinsældir Sherlock Holmes: A Game of Shadow verða eitthvað í líkingu við Sher - l ock Holmes þá er engin spurning að þriðja myndin verður gerð. kVikMyndir Prófessor Moriarty (Jared Harris) og Sherlock Holmes (Robert Downey) reyna sig í sálfræðilegum hernaði. Polanski og Carnage Roman Polanski er kominn með nýja kvik­ mynd, Carnage, sem hefur að undanförnu ferðast á milli kvikmyndahátíða en verður tekin til almennra sýninga í Bandaríkjunum um miðjan desember. Polanski getur ekki verið við frumsýninguna þar sem ef hann stígur fæti sínum þar á jörð verður hann hnepptur í fangelsi. Ekki gat hann heldur tekið myndina á söguslóðum í New York og varð því París að koma í staðinn. Eins og flestar kvikmyndir Polanskis hefur Carnage fengið fínar viðtökur en myndin er byggð á leikriti Yazminu Reza. Myndin fjallar um tvenn hjón í New York sem hittast eitt kvöld til að ræða börn sín. Í miðjum samræðum slær son ur annarra hjónanna son hinna og við það fer allt úr böndunum. Í helstu hlutverkum eru Jodie Foster, Kate Winslet, Christoph Waltz og John C. Reilly sem leika hjónapörin. Rommdagbókin Rum Diary, sem verður frumsýnd hér á landi 9. desember, byggist á skáldsögu Hunters S. Tompsons og er myndin búin að vera á milli tannanna hjá kvikmyndapressunni í nokkur ár enda rúm tvö ár síðan hún var til­ búin. Sagt er að aðalleikarinn, Johnny Depp, hafi verið búinn að samþykkja að leika í myndinni áður en hann lék í fyrstu Pirates of the Carribean­myndinni. Rum Diary fjall ­ ar um blaðamanninn Paul Kemp sem er orðinn þreyttur á stórborgarlífinu í New York og ákveður því að flytja til Púertó Ríkó til að skrifa fyrir lítið dagblað. Hann verður gegnsósa af vínmenningunni þar í landi og kynnist um leið hinni fögru Chenault sem er gift kaupsýslumanni sem er staðráðinn í að nútímavæða Púertó Ríkó og gera landið að kapítalistaparadís sem þjónar aðeins þeim ríku. Hann biður Kemp að skrifa um áætlanir sínar og verður Kemp að ákveða hvort hann ætlar að skrifa til að tryggja kaupsýslumanninum gróða eða til að rífa veldi hans niður. Kenneth Branagh í spor Laurence Oliviers Kenneth Branagh hefur aldrei leynt aðdáun sinni á Laurence Olivier og hefur að mörgu leyti fetað í fótspor hans. Í upphafi ferils síns var hann oftar en ekki nefndur hinn nýi Olivier og ekki að ástæðulausu, hann sló fyrst í gegn í leikhúsum í London og fór svo að gera Shakespeare­kvikmyndir þar sem hann lék sjálfur aðalhlutverkið. Hann hefur samt aldrei komist nær því að feta í fótspor Oliviers en í kvikmyndinni My Week with Marilyn, sem nýlega er farið að sýna, þar sem hann leikur Laurence Olivier og Michelle Williams leikur Marilyn Monroe. Gerist myndin þegar þau léku saman í kvikmyndinni The Prince and the Showgirl, sem varð síðan meiriháttar flopp. Jodie Foster í ham gegn John C. Reilly í Carnage en þau leika hjón í myndinni. Johnny Depp í hlutverki blaðamannsins í Rum Diary. Kenneth Branagh í hlutverki Laurence Oliviers í My Week with Marilyn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.