Frjáls verslun - 01.10.2011, Side 97
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 97
É
g starfa hjá Vendum
ehf. sem markþjálfi
fyrir stjórnendur og
sérfræðinga fyrir
tækja. Við erum þrjár
sem stofnuðum fyrirtækið fyrir
tæpu ári og hefur það vaxið
von um framar.
Stjórnendamarkþjálfun eða
eins og þetta kallast á ensku
„executive and business
coaching“ felst í viðtalstækni
þar sem markþjálfinn vinnur
með stjórnanda líkt og íþrótta
maður vinnur með þjálfara.
Íþróttamaðurinn, sem í þessu
tilfelli er stjórnandi, er með allt
sem þarf til að vinna keppnina.
Það er auga þjálfarans sem
hjálpar viðkomandi til að fín
pússa sjálfan sig og það er það
sem greinir á milli þeirra sem
ná hámarksárangri og hinna.
Leiðbeiningarnar eru þó ekki
hefðbundnar heldur fara fram
í formi krefjandi spurninga þar
sem stjórnandinn er með svörin
sjálfur, en það þarf kannski að
sækja þau og leggja áherslu á
rétta staði.
Markþjálfinn er hlutlaus aðili
sem gætir fyllsta trúnaðar. Stjórn
endur þurfa að takast á við
ýmiskonar mál sem eru þess
eðlis að ekki er hægt að ræða
þau við hvern sem er og þá
er gott að fá hlutlausan aðila
sem hefur engra hagsmuna að
gæta annarra en að auðvelda
við komandi að taka sem besta
ákvörðun. Margir stjórnendur
hafa unnið sig upp og á leiðinni
fengið reglulega endurgjöf um
hvernig þeir stæðu sig, hvað
þeir gerðu vel og hvað þeir
gætu bætt hjá sér. Þegar menn
og konur verða stjórnendur þá
annaðhvort minnkar þessi end
ur gjöf eða hún hverfur alveg
og stjórnendur verða því að
treysta meira á sjálfa sig og þá
getur reynst vel að hafa mark
þjálfa. Í markþjálfun eru tekin
fyrir fjölbreytt viðfangsefni, til
dæm is að finna leiðir til að nýta
tímann betur og fá betri yfirsýn
yfir verkefnin, efla sig í samskipt
um, auka viðskiptatryggð, efla
liðsheild og fleira.
Algengt er að markþjálfi hitti
stjórnandann eða sérfræðinginn
klukkutíma í senn á viku eða
tveggja vikna fresti. Viðtalið fer
fram ýmist á skrifstofunni okkar,
á vinnustað stjórnandans eða í
gegnum skype, sem hefur gefið
okkur tækifæri til að starfa á
einfaldan hátt með stjórnendum
úti á landi. Einnig erum við með
viðskiptavini erlendis og fer þá
markþjálfunin fram á ensku.
Framundan er að fagna eins
árs afmæli fyrirtækisins í byrjun
nýs árs en við stofnuðum það
11.01.11 og er stefnan að halda
áfram að byggja okkur upp sem
öfluga markþjálfa.
Alda er gift Ómari Kaldal
Ágústs syni og eiga þau tvær
dætur, fjögurra og átta ára.
Hún er menntaður stjórnenda
markþjálfi (e. executive coach)
frá Opna háskólanum í HR
og Coach U, sem er stærsta
alþjóðlega þjálfunarfyrirtækið
í heiminum í dag í markþjálfun
og veitir réttindi til alþjóðlegrar
vott unar ICF, International
Coach Federation. Einnig er
hún stjórnmála og atvinnulífs
fræðingur frá HÍ. „Ég og sam
starfskonur mínar höfum mikla
reynslu af því að vinna með
stjórnendum auk þess að hafa
starfað sem stjórnendur sjálfar
og hefur það nýst okkur vel í
þessu starfi sem markþjálfar.“
Áhugamálin eru samvera með
fjölskyldu og vinum, ferðalög
innanlands sem erlendis og
almenn útivist, sérstaklega þó
fjallgöngur og skíði. Ég hef
gaman af því að lesa góðar
bækur og tímarit, elda góðan
mat og svo hefur eiginmaðurinn
smitað mig af ljósmyndaáhuga
sínum.“
Alda Sigurðardóttir
– stjórnendamarkþjálfi hjá Vendum ehf.
„Framundan er að fagna eins árs afmæli fyrirtækisins í byrjun nýs árs en við stofnuðum það
11.01.11 og er stefnan að halda áfram að byggja okkur upp sem öfluga markþjálfa.“
Nafn: Alda Sigurðardóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík, 17. maí
1973.
Foreldrar: Steinunn K. Gísladóttir og
Sigurður J. Guðjónsson.
Maki: Ómar Kaldal Ágústsson.
Börn: Dagmar Kaldal Ómarsdóttir, 8
ára, og Aníta Kaldal Ómarsdóttir, 4 ára.
Menntun: Stjórnendamarkþjálfi (e.
executive coach) og stjórnmála- og
atvinnulífsfræðingur.