Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2011, Síða 98

Frjáls verslun - 01.10.2011, Síða 98
98 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 V innuvernd ehf. er þjónustu­ og ráð­ gjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði heilsuverndar, vinnu­ verndar og heilsueflingar. Þar starfa sérfræðingar á ýmsum sviðum en viðskiptavinir Vinnu­ verndar eru t.d. einkafyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög. Mitt starf hjá Vinnuvernd felst aðallega í vinnuvistfræðiráðgjöf sem er tiltölulega nýtt hér á landi. Vinnuvistfræði er best lýst með því að segja að hún lagi vinnuna að starfsmanninum og vöruna að notandanum. Þegar vinnustaðir eru hannaðir vantar oft sjónarmið vinnuvistfræðinnar en sem betur fer eru fyrirtæki að átta sig æ meira á því og hafa samband við mig á fyrstu stig um hönnunar. Þá sinni ég svoköll­ uðum vinnustaðaúttekt um og framkvæmd áhættumats starfa auk fræðslu og námskeiðahalds. Þessa dagana á Vinnuvernd fimm ára afmæli og er mikið húllumhæ í kringum afmælið. Ég ætla t.d. að gera smátilraun með einu af þjónustufyrirtækjum okkar og prófa hæðarstillanlegt borð með hlaupabretti undir, en það er samstarf við nokkra norska sjúkraþjálfara.“ Valdís Brá er dóttir hjónanna Þorsteins Þorsteinssonar skipa­ smiðs og Þórhildar Steinunnar Valdemarsdóttur bókara. „Ég á tvo eldri bræður, þá Þorstein og Hólmgeir, og sex bræðrabörn sem mér þykir mikið vænt um og finnst gaman að spilla. Ég útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri úr iðjuþjálfunarfræð­ um árið 2005 og ári seinna var ég komin inn í Loughborough University í Bretlandi til að taka meistaranám í vinnuvistfræðinni. Ég valdi að taka línu sem gaf mér titilinn M. Sc. Human Fac­ tors in Inclusive Design sem hægt er að útlista sem vinnu­ vistfræðileg hönnun. Í náminu var lögð áhersla á hönnun fyrir alla og/eða notendavæna hönnun. Það eru ekki margir Íslendingar sem hafa sérhæft sig í vinnuvistfræði og ég held ég sé sá eini sem hef vinnuvist­ fræðilega hönnun sem sérgrein. Hvað varðar áhugamálin þá hef ég mjög gaman af allri handa vinnu og áhuginn á gömlu handverki hefur náð að skjóta rótum í hjartanu. Ég er svo í frænkuprjónaklúbbi sem hittist reglulega. Þar eru öll heimsins vandamál krufin til mergjar með prjóna að vopni og góðgæti í maga. Ég hef heklað mikið í gegnum tíðina og nú síðast var ég að læra að orkera. Einnig hef ég aðeins prófað að mála postulín en amma mín var algjör snillingur á því sviði og nú er mamma að taka við af henni í þeirri snilld. Þá hef ég mjög gaman af því að ganga á fjöll og náði á topp Hvannadals­ hnúks í júní 2009. Sumrinu eyddi ég mestmegnis norðan heiða, en ég lét samt verða af því að fara til Vest­ mannaeyja en þangað hafði ég aldrei komið áður. Þá fór ég í Landmannalaugar og Land­ mannahelli. Það var mikið ævintýri sem seint mun gleym­ ast. Haustið hefur svo farið vel af stað, bæði í og utan vinnu, en utan vinnu sit ég í stjórn Vinnuvistfræðifélags Íslands (Vinnís). Vinnís fór af stað með fyrirlestrarröð í haust og hef ég farið á tvo mjög skemmtilega og fræðandi fyrirlestra. Þá fór ég í september sl. til Finnlands á stjórnarfund NEHS (Norrænu vinnuvistfræðisamtakanna) og núna í febrúar fer ég til Bras ilíu á stjórnarfund hjá IEA (Alþjóð legu vinnuvistfræðisam­ tökunum) sem fulltrúi NEHS. Í báðum tilfellum eru ráðstefnur í kjölfarið sem ég sit og í Brasilíu verð ég svo heppin að fá að upp­ lifa hina árlegu kjötkveðju hátíð.“ Valdís Brá Þorsteinsdóttir – vinnuvistfræðingur hjá Vinnuvernd „Þegar vinnustaðir eru hannaðir vantar oft sjónarmið vinnuvistfræðinnar en sem betur fer eru fyrirtæki að átta sig æ meira á því og hafa samband við mig á fyrstu stig um hönnunar. “ Nafn: Valdís Brá Þorsteinsdóttir. Fæðingarstaður: Akureyri, á hlaupársdeginum 29. febrúar 1976. Foreldrar: Þorsteinn Þorsteinsson og Þórhildur Steinunn Valdemarsdóttir. Maki: Einstök. Börn: Engin. Menntun: B.Sc. iðjuþjálfunarfræði og M.Sc. Human Factors in Inclusive Design (vinnuvistfræðilegri hönnun). fóLk w w w .b lu el ag oo n. is FUNDIR OG VEISLUR Í KRAFTMIKLU UMHVERFI OG SPENNANDI MATARUPPLIFUN Reynslumikið starfsfólk sér um að uppfylla tæknilegar þarfir og ráðleggja um atriði er varða skipu- lagningu og framkvæmd viðburða og funda. Öflugt veitingateymi LAVA undir stjórn Viktors Arnar landsliðskokks býður spennandi matarupplifun. Nánari upplýsingar í síma 420 8800 eða sales@bluelagoon.is A N T O N & B E R G U R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.