Iðnaðarmál - 01.02.1969, Blaðsíða 15
Sé það mikilvægt frá þjóðfélags-
sjónarmiði að ná húsnæðiskostnaði
örugglega niöur í visst hlutfall miðað
við tekjur, t. d. 15%, þá er rökrétt
að haga lánakjörum þessa fjármagns
til þess að ná settu marki. Einfalt
dæmi nægir til þess að sýna þann ár-
angur, sem þannig getur náðst.
500.000 kr. lán Byggingarsjóös ríkis-
ins (25 ára lánstími með jöfnum
greiðslum) nemur nú 33.500,00 kr.
500.000 þús. kr. lán til 50 ára, vaxta-
laust en vísitölubundið, mundi nema
10.000 kr. eða tæplega þriðjungi árs-
greiðslu byggingarsjóðslánsins.
Með því að nota tvenns konar lán
til hverrar íbúðar, þar sem tillit er
tekið til greiöslugetu einstaklinganna,
A-lánið vaxtalaust, B-lánið með
vöxtum, er hægt að ná ótrúlegri að-
lögunarhæfni eða árangri.
Byggingarsjóður ríkisins og Bygg-
ingarsjóður verkamanna hafa nú til
ráðstöfunar árlega eigið fé á þriðja
hundruð millj. kr. Það gæti verið
hagkvæmt að auka það um 100 til
200 millj. kr. á ári. Einnig væri hægt
að haga lánveitingum lífeyrissjóð-
anna með tilliti til þessa umrædda
markmiös. Þetta fé er óumdeilanlega
eign viðkomandi stétta. Það mundi
vera hagur félagsmanna, að þessu
fjármagni sé beitt til æskilegrar
lausnar húsnæðisvandamálsins.
Byggingaratvinna
Iðngreinarnar eru lokaðar. At-
vinnulaus ófaglærður maður getur
ekki stundaö hárskurð, heldur ekki
múrvinnu eða trésmíöar, svo að nokk
ur dæmi séu nefnd. Iðnlærðir menn
eiga þess heldur ekki kost að fara á
milli iðngreina í atvinnuleit og hafa
yfirleitt takmarkaðan aðgang að
vinnu utan sinnar sérgreinar.
Byggingaratvinna er í heild mesta
iðngrein landsmanna, ef frá er talinn
fiskiðnaður. Miklar sveiflur þessarar
iðngreinar eru ekki aöeins hlutaðeig-
andi iðnaðarmönnum andstæðar,
heldur einnig þjóðarheildinni. At-
vinnulífiö er keðjuverkandi. Það
þýðir, að ef atvinna rýrnar á einu
sviði, snertir það einnig aðrar at-
vinnugreinar. Árið 1967 var hafin
bygging 2052 íbúða. Næsta ár er að-
eins hafin bygging rúml. 1000 íbúða.
Sveiflur milli þessara tveggja ára
gætu numið atvinnusveiflu, er næmi
á annan milljarð króna. Að sjálf-
sögðu fylgir svo rýrnun opinberra
gjalda um 400—600 millj. króna.
Því miður eru undirstööuatvinnu-
greinar, fiskveiðar, landbúnaður,
háðar miklum sveiflum. Það gildir
bæði um framleiöslumagn og mark-
aðsverö. Því meiri nauðsyn ber til,
að atvinna bundin við innlendan
markað — innlendar þarfir — svo
sem bygging íbúðarhúsa, sé árviss.
En aðeins með árvissum framkvœmd-
um á þessu sviði nœst fullkomin hag-
rœðing framkvœmda.
LokaorS
HúsnæÖiskostnaðurinn er einn
hinna veikustu þátta í þjóðlífi ís-
lendinga nú. Ástæðan er sú, að sam-
fara öflun húsnæÖisins er þjóðinni
sökkt í óbærilegt skuldafen.
Gott framleiðslufyrirtæki þolir
skuldasöfnun að vissu marki. En
húsnæði manna — þessi brýna lífs-
þörf -— þolir það alls ekki.
ETrlausn þessa vandamáls er skipu-
lagsleg frekar en tæknileg. Það skort-
ir heldur ekki fjármagn. Húsnæðis-
kostnaður þjóðarinnar í heild er ár-
lega mörg hundruð milljón krónum
meiri en þyrfti að vera.
Það þarf að stjórna þessum mál-
um markvisst með þjóðarhag að
leiðarljósi. Og það þarf að þora að
stjórna.
Töflur VI og VII eru um ýmislegt
varðandi húsnæðismál á íslandi og
í Noregi.
TAFLA VI
Ymsar upplýsingar úr húsnœðisskýrslu Hagstofu lslands jyrir árið 1960.
A Kjallaraíbúðir Risíbúðir Bráöabirgðaíbúðir Samtals
ca. 3560 ca. 2770 ca. 396 ca. 6726
B Mannfjöldi Heimili íbúðir Heimili án íbúÖar
177292 44428 39613 4815
Eignaríbúðir Leiguíbúðir Samtals
C 71,3% 28,7 %
28500 11113 39613
D Ibúðir teknar úr 1960—1966 ... notkun: 1776 Heimild:
1967 áætlaö .. . 281 Fjármálatíðindi ’67, 2. hefti.
Samtals 2057 Grein Péturs Eiríkssonar.
TAFLA VII
Nokkur alriði úr lánakerfi norska Húsbankans
Meðaltals lánsupphœð út á 1 íbúð. Árið 1967:
1. veðréttarlán, 2. veðréttarlán, Eigið framlag, Samtals
44900 kr. 10000 kr. 25300 80200
% aj húsv. 56 12,5 31,5 100
Húsverð meðalárslaun
80200 : 22400 = 3.58
Arsgreiðslur fyrstu 5 árin:
1. veðréttur 2. veöréttur Samtals
44900 x 4,5% 10000 x 9,63%
2020 963 — 2983 kr.
Arsgreiðslur : meðlallaunum
2983 : 22400 — 13,3%
Heimild: Skýrsla Húsbankans árið 1967.
IÐNAÐARMÁL
9