Iðnaðarmál - 01.02.1969, Blaðsíða 22
Nýjungar i húsbúnaöi
Þessi leðursekkur vakti mesta at-
hygli á síðustu alþjóða húsgagna-
sýningunni, sem haldin var í París.
Hann er fylltur með 12 milljónum
plastperlna. Sekkinn er hægt að nota
sem stól, legubekk, koll og jafnvel
borð. Það er mjög gott að sitja í
honum, af því að hægt er að ákveða
sjálfur lögun hans. Hann lagar sig
eftir líkamanum og styður við þar,
sem óskað er. Það er hægt að bera
sekkinn á bakinu, hann vegur aðeins
314 kg. Sekkinn hönnuðu ítölsku inn-
anhússarkitektarnir Gatti, Paolini og
Teodoro.
Mobilia, jan./febr. 1969.
Hér er önnur ítölsk hugmynd, sem
gæti verið góð lausn, þar sem hús-
rými er lítið, t. d. í sumarbústöðum.
Annað rúmið er lagt ofan á hitt. Þeg-
ar nota á rúmin, er auðvelt að flytja
þau út á gólfið. Hægt er að stafla
þeim eins hátt upp og hver vill.
Þriðja ítalska hugmyndin krefst
heldur ekki mikils húsrýmis. Þegar
ekki er verið að nota snyrtiborðið,
er hægt að leggja stólinn, borðið og
spegilinn alveg saman og rúlla því
til hliðar eða burtu.
Mobilia, jan./febr. 1969.
16
IÐNAÐARMAL