Iðnaðarmál - 01.02.1969, Blaðsíða 17
Rannsóknartœki fyrir Ijós- og veðrunarþol.
um galla sem og endurbótum á fram-
leiðslunni.
Eins og sjá má af þessari upptaln-
ingu, er hér um mjög víðtækar og
margbreytilegar rannsóknir að ræða,
þannig að ógerningur er að gera þeim
nægileg skil í stuttri tímaritsgrein.
Um hluta þessara rannsókna ritaði
undirritaður greinina „Gæðamat á
garni og vefnaðarvöru“, sem birtist
í Iðnaðarmálum, 1. hefti 6. árgangs
1959.
Verða því að sinni einungis teknar
til meðferðar nokkrar af nýjustu
rannsóknum og rannsóknatækjum
Rannsóknastofnunar iðnaðarins, sem
eru í þágu trefjaiðnaðarins.
1. Ljós- og veðrunarþolsrannsóknir
Rannsóknastofnun iðnaðarins fær
nú á næstunni nýtt tæki til ljós- og
veðrunarþolsmælinga.
Nefnist tæki þetta „Weather-Ome-
ter“.
Litur eða litir eru mjög snar þátt-
ur í daglegu h'fi og ráða oft úrslitum
um sölumöguleika iðnaðarvöru.
Að litur blikni eða upplitist, veld-
ur því oft, að vara hættir að seljast.
En litfesta getur hins vegar orðið það
góð auglýsing, að það jafnist á við
gæðamerkingu.
Það er því mj ög veigamikið atriði,
að mögulegt sé að rannsaka litfestu
efna, áður en varan er sett á markað.
Einnig að rannsaka orsakir galla, ef
svo fer, að þeirra verður vart.
Ef um gæðamerkingu á vöru er að
ræða, þá eru þessar rannsóknir óhjá-
kvæmilegar.
Tæki þetta er þannig úr garði
gert, að velja má um tvær tegundir
Ijósgjafa, kolbogaljós og xenonljós-
boga. Einnig eru sjálfvirkir hita- og
rakastillar, en öllu má stjórna sjálf-
virkt eftir fyrirfram ákveðnum ferli.
Þannig er mögulegt að rannsaka
litarþol efna við hin margbreytileg-
ustu skilyrði og að aðlaga efnin á
þann hátt þeim kröfum, sem þau
þurfa að fullnægja í notkun.
Auk þess að rannsaka litarþol
trefjaefna með þessu tæki eru marg-
víslegar aðrar rannsóknir fram-
kvæmdar með því, svo sem á ýmsum
plastefnum, viðarefni, límefni og
málningarefni.
2. Rannsóknir á góliteppum
Meðfylgjandi mynd sýnir tæki það,
sem Rannsóknastofnun iðnaðarins
notar til þess að rannsaka notkunar-
eiginleika gólfteppa.
Rannsóknartœki fyrir notkunareiginleika
gólfteppa.
Með tæki þessu er líkt eftir þvi
álagi eða meðferð, sem gólfteppi
verða fyrir við það, að gengið er á
þeim. En það er gert þannig, að tepp-
ið er sett innan á sívalninginn, en
sérstakt tæki,„fjórfótungur“,líkir eft-
ir fótstigi við snúning sívalningsins.
Með mælingum o. fl. er svo fylgzt
með hegðun teppisins og gæðin þann-
ig ákvörðuð.
Meðfylgjandi myndir sýna greini-
lega muninn, sem oft er á notkunar-
eiginleikum gólfteppa.
Vinstri helmingur myndanna er af
teppunum ónotuðum, en hinn helm-
ingurinn, eftir að 130000 manns hafa
gengið á teppinu.
G. T. 5.
Munur á slitferli nokkurra góljteppateg-
unda.
3. Notkunareiginleikar efna og þráða
Jafnvel smávægilegar breytingar á
gerð efna geta oft haft mikil áhrif á
notkunareiginleika og endingu þeirra.
Við framleiðslu og þróun nýrra
gerða er því mjög verðmætt að geta
með rannsóknum sagt til um, hvern-
ig efnin munu reynast í notkun, og á
þann hátt fundið beztu og oft um leið
ódýrustu framleiðsluaðferðina.
Rannsóknastofnun iðnaðarins er
nú að fá nýtt tæki, en með því má
rannsaka framannefnda notkunareig-
inleika.
Með þessum frásögnum um nýjustu
rannsóknatækin, sem Rannsókna-
stofnun iðnaðarins er að fá, viljum
við benda á og undirstrika, hve rann-
sóknir og gæðaprófanir eru nauðsyn-
legar í sambandi við iðnaðinn.
Vörugæði hafa ávallt verið bezta
auglýsingin og trygging framhalds
öruggra viðskipta.
Rannsóknir eru leiðin til þess að
Framh. á 15. bls.
IÐNAÐARMAL
n