Iðnaðarmál - 01.02.1969, Side 18
Aðalsteinn Jónsson, efnaverkfræðingur, lauk prófi í efnaverkfræði frá tækniskólanum í Stock-
hólmi 1953. Hann var verkfræðingur hjá Málningu hf. 1953—55 og hjá iðnaðardeild Atvinnu-
deildar háskólans, síðar Rannsóknastofnun iðnaðarins frá 1955.
Kæling og ffrysting á matvælum
með ffliótandi loffttegundum
Eftlr Aðalsteín Jónsson, verkfnæðing
Við framleiðslu á fljótandi lofti
hafa lengst af verið notaðar hinar
gamalkunnu aðferðir, sem kenndar
eru við Linde og Claude.
Aðferð Linde byggist á því, að
háþrýst loft er leitt gegnum þenslu-
loka, þar sem þrýstingurinn fellur
niður í eina loftþyngd. Við þetta
næst mikil kæling, kalda loftið er síð-
an notað til að kæla háþrýst loft fyr-
ir þensluna, og fæst þannig nægileg
kæling til að þétta loftið. í aðferð
Claude er notuð þensluvél í stað
þensluloka.
Fyrir um það bil 10 árum komu
á markaðinn svokölluð Phillips-
Stirling tæki, sem framleidd eru af
Phillips-verksmiðjunum í Hollandi
(1. mynd).
Arið 1938 voru hafnar tilraunir
með smíði loftvarmavélar í rann-
sóknarstofum Phillips, en hún bygg-
ist í grundvallaratriðum á loftvarma-
vélinni, sem Robert Stirling fann upp
í byrjun 19. aldar. Þegar loftvarma-
vélin er knúin af hreyfli, fæst mikil
kæling.
Þetta leiddi til smíði kælitækja,
sem hafa mikla nýtni við lágt hita-
stig og eru notuð til þéttingar á loft-
tegundum.
í tækjunum er vatnsefni eða heli-
um notað sem kælimiðill. Tækin eru
sérstaklega heppileg fyrir litlar ein-
ingar. í stærstu gerð tækjanna, sem
hingað til hafa verið framleidd, er
hægt að framleiða ca. 400 1 af fljót-
andi lofti á klst. Eftir að farið var að
nota hreint súrefni í stað lofts við
stálfrandeiðslu og fljótandi súrefni
fyrir eldflaugar, voru byggðar stór-
ar verksmiðjur til framleiðslu á fljót-
andi lofti, en andrúmsloftið saman-
stendur af ca. % hlutum köfnunar-
efnis (N2) og ca. 1/5 súrefnis (02).
Við súrefnisframleiðsluna fæst
köfnunarefni sem eins konar auka-
framleiðsla, og lækkaði verðið á því
það mikið, að farið var að nota það
til kælingar og frystingar á matvæl-
um.
Seinna var farið að nota fljótandi
1. mynd.
Lítil Phillips-tœki, sem jramleiSa 6—7 l aj jljótandi köjnunarejni á klst.
12
IÐNAÐARMAL