Iðnaðarmál - 01.02.1969, Síða 26
til grundvallar mati sínu. Var í þessu
efni stuðzt að nokkru við skandi-
naviskar fyrirmyndir, en á Norður-
löndum er nú lögð áherzla á að sam-
ræma starfshætti slíkra dómnefnda.
í öðru lagi gerð matskerfis, er
tryggði, að allar dómhæfar umbúðir
hlytu sambærilega og viðeigandi af-
greiðslu.
Loks var svo sjálft mat umbúð-
anna, en í niðurstöðum sínum studd-
ist dómnefndin við samanlagðan
stigafjölda hinna ýmsu þátta mat-
kerfisins.
Uppbygging matskerfisins
Við uppbyggingu matskerfisins
hefur öllum umbúðum verið skipt í
3 flokka: Neyzluumbúðir, útstillinga-
umbúðir og flutningaumbúðir. Hver
flokkur er síðan tekinn fyrir sérstak-
lega. Þeim atriðum, sem máli skipta,
er skipt í þætti og hverjum þætti gef-
ið ákveðið gildi í hundraðshlutum.
Hér á eftir eru sýnishorn af mats-
kerfi fyrir hina þrjá flokka umbúða.
Er ætlazt til, að hver dómnefndar-
maður hafi slíkt blað fyrir hverja
umbúð og skrái þar númer umbúð-
ar, innihald hennar og nafn sitt.
Síðan gefur hann umbúðunum eink-
unn fyrir hvern þátt með því að
gera hring utan um stigatöluna í við-
komandi reit. Eru tölurnar innan
hringanna síðan lagðar saman, og
kemur þá út sá stigafjöldi, sem um-
búðirnar hljóta. Neðst á blaðinu er
eyða fyrir athugasemdir dómnefnd-
armanna.
Neyzluumbúðir
Hönnun..................... 20%
Vernd...................... 20%
Hagkvæmni í neyzlu......... 15%
Hagkvæmni í sölu........... 15%
Upplýsingar................ 15%
Pökkun og birgðahald...... 10%
Frágangur .................. 5%
Hönnun: Hér skal lögð áherzla á,
að umbúðirnar séu smekklegar og
beri með sér meðvitaða hönnun, þ. e.
að efni, útlit og lögun séu i samræmi
við eðli innihalds og tilgang umbúð-
anna.
Vernd: Hér er átt við vernd gegn
ýmsum utanaðkomandi áhrifum, s. s.
falli, höggum, veðrun, illri meðferð
í flutningi, affermingu o. þ. h. Einnig
skal taka tillit til sérstakra eiginleika
umbúðanna, að því er varðar vernd
gegn hita, ljósi, lofti og raka, þar
sem við á.
Hagkvœmni í neyzlu: Undir þenn-
an lið fellur hagkvæmni í notkun,
geymslu og losun og einnig mögu-
leikar á endurnotkun. Einnig skal
taka tillit til stærðar umbúðanna og
þyngdar með tilliti til vörunnar og
þeirra neyzlueindar, sem hún er ætl-
uð fyrir.
Hagkvœmni í sölu: Hér skal dæmt
um það, að hve miklu leyti umbúð-
irnar eru söluhvetjandi, hvernig um-
búðirnar sýna vörunaoghvaðamögu-
leika þær gefa sölumanni til að undir-
strika gildi hennar.
Upplýsingar: Hér er átt við upp-
lýsingar um innihald: Magn, efna-
samsetningu, geymslu, geymsluþol,
meðferð, notkun og nafn framleið-
anda á viðkomandi tungumáli og að
þessara upplýsinga sé getið á nægi-
lega áberandi hátt á umbúðunum.
Pökkun og birgðahald: Hér koma
til athugunar liðirnir áfylling, lokun,
pökkun, flutningur og geymsla.
Frágangur: Hér er átt við almenn-
an frágang, svo sem prentun, skurð,
samfellingu og önnur skyld atriði,
sem hafa áhrif á útlit umbúðanna.
Utstillingaumbúðir
Hagkvæmni í sölu............ 30%
Hönnun...................... 25%
Vernd....................... 5%
Upplýsingar................. 15%
Pökkun og birgðahald...... 10%
Frágangur................... 15%
Hagkvœmni í sölu: Hér skal dæmt
um, hvernig umbúðirnar sýna vör-
una og að hve miklu leyti þær eru
söluhvetjandi.
Hönnun: Hér skal lögð áherzla á,
að umbúðirnar séu smekklegar og
beri með sér meðvitaða hönnun, þ.
e. að efni, útlit og lögun séu í sam-
ræmi við eðli innihalds og tilgang
umbúðanna.
Vernd: Hér er átt við vernd gegn
ýmsum utanaðkomandi áhrifum, s. s.
falli, höggum, veðrun, illri meðferð
í flutningi, affermingu o. þ. h. Einn-
ig skal taka tillit til sérstakra eigin-
leika umbúðanna, að því er varðar
vernd gegn hita, ljósi, lofti og raka,
þar sem við á.
Upplýsingar: Hér er átt við upp-
lýsingar um innihald: magn, efna-
samsetningu, geymslu, geymsluþol,
meðferð, notkun og nafn framleið-
anda á viðkomandi tungumáli og að
þessara upplýsinga sé getið á nægi-
lega áberandi hátt á umbúðunum.
Pökkun og birgðahald: Hér koma
til athugunar liðirnir áfylling, losun,
pökkun, flutningur og geymsla.
Frágangur: Hér er átt við almenn-
an frágang svo sem prentun, skurð,
samfellingu og önnur skyld atriði,
sem hafa áhrif á útlit umhúðanna.
Flutningaumbúðir
Vernd...................... 30%
Hönnun .................... 20%
Pökkun og birgðahald...... 20%
Hagkvæmni í flutningi.....20%
Endurnotkun ................ 5%
Upplýsingar................. 5%
Vernd: Hér er átt við vernd gegn
ýmsum utanaðkomandi áhrifum, s. s.
falli, höggum, veðrun, illri meðferð
í flutningi, affermingu o. þ. h. Einnig
skal taka tillit til sérstakra eiginleika
umbúðanna, að því er varðar vernd
gegn hita, ljósi, lofti og raka, þar
sem við á.
Hönnun: Hér skal lögð áherzla á,
að umbúðirnar séu smekklegar og
beri með sér meðvitaða hönnun, þ. e.
að efni, útlit og lögun séu í samræmi
við eðli innihalds og tilgang umbúð-
anna.
Pökkun og birgðahald: Hér skal
taka til meðferðar liðina: áfyllingu,
losun, flutning og geymslu.
Framh. á 15. bls.
20
IÐNAÐARMÁL