Iðnaðarmál - 01.02.1969, Side 33
Frá vettvangi stjórnunarmála
Stjórnun á einfaldan hátt
Eflir Lawrence A. Appley, forseta Amerícan Management Association
Eitt sinn ritaði ég bók eftir öllum
„kúnstarinnar reglum“: Hún bar á-
hrifamikið og víðtækt heiti, hafði
formála, inngang, efnisyfirlit, rann-
sóknartilvísanir, viðbæti og bók-
fræðilegar skýringar. Milli spjalda
sinna hafði hún að geyma speki, er
ég hafði öðlazt á fimmtán ára
reynslutíma með starfsliði, verk-
stjórnendum, deildarstjórum og
æðstu yfirmönnum og leiðtogum.
En þessi bók hafði þó a. m. k.
einn algengan galla — hún gerði ein-
faldar og eðlilegar athafnir mjög
flóknar og erfiðar á að líta. Arang-
urinn varð sá, að margir þeirra, sem
hefðu getað hagnazt á lestri hennar,
luku henni aldrei, en þeir, sem luku
henni, voru of ruglaðir af sýndar-
flóknu og margbrotnu efni hennar til
að fara eftir mörgum ráðleggingum
hennar.
Er það ekki einkennilegt, hve
margir — bæði konur og karlar —
hafa tilhneigingu til að flækja og af-
mynda einfaldar og eðlilegar athafn-
ir? Hvers vegna streitumst við á móti
hinu augljósa? Hvers vegna viljum
við endilega ganga í berhögg við
staðreyndir og meginreglur, sem hlot-
ið hafa reynslu og staðfestingu ár-
um saman? Hvers vegna höldum við
áfram að staðhæfa, að við séum frá-
brugðin ,að fólkið, sem við eigum
samskipti við sé öðruvísi, að starf-
semi okkar og vandamálin, sem við
erum að glíma við, séu með öðrum
hætti? Hvers vegna höldum við á-
fram að krefjast sérstakrar tillits-
semi og meðferðar? Allt, sem við
ávinnum, er það eitt að gera okkur
sjálfum erfiðara fyrir og baka öðr-
um óþægindi.
Engin bifreið er nákvæmlega eins
og önnur. Bifreiðir eru ólíkar í út-
liti, þær eru af ólíkum uppruna og
notaðar í ólíku umhverfi, gegna
margvíslegum hlutverkum á ólikum
landsvæðum og við ólíkt veðurfar.
En þær starfa allar samkvæmt sömu
meginreglu: Hreyflar þeirra stöðvast,
ef þá skortir eldsneyti, þær skemm-
ast, ef þeim er ekki haldið við á
sómasamlegan hátt, hjólbarðarnir
fletjast út, ef slangan springur, og
þeir renna til í hálku, ef þeir hafa
ekki keðjur. Engin þeirra vinnur
alveg eins hjá ólíkum ökumönnum,
og engar tvær bregða nákvæmlega
eins við hjá sama ökumanninum.
Sama er að segja um seglbáta. Og
þannig er fólkið. Það starfar allt
samkvœmt sömu grundvallarreglum,
og sérhver hefur sinn einstaka per-
sónuleika.
Einfaldasta leiðin
Við teljum Gettysburg-ávarpið
meistaraverk einfaldleikans, en til er
annað ávarp og miklu eldra, sem
lætur Gettysburg-ávarpið hverfa í
skuggann. I nútíma útgáfu hljóðar
það á þessa leið: „Gerið öðrum það,
sem þér viljið að þeir geri yður.“
í þessari einu setningu í hinni
helgu bók, sem samin er af höfundin-
um mesta um mikilvægasta efnið, er
fólgin meginregla góðrar stjórnunar
í einfaldasta formi. Hví skyldum við
þurfa nokkuð annað? Hvers vegna
þurfum við bækur í tonnatali til út-
skýringar á jafneinföldu máli?
Það getur aðeins stafað af hinni
þrjózkulegu, mannlegu löngun til að
rita reglurnar á okkar eigin liátt.
„Gerið öðrum það, sem við álítum,
að eigi að gera.“ Þessi útgáfa af
reglunni opnar dyrnar upp á gátt
fyrir öllum okkar eigingjörnu hvöt-
um. Hún afskræmir dómgreind okk-
ar, ýtir undir ofbeldi, skapar efna-
hagskreppur og leiðir til styrjalda.
Hún fær okkur til að halda þrjózku-
lega við hleypidóma, úreltar erfða-
venjur og gagnslausar, tímafrekar
aðferðir. Hún eykur okkur erfiði,
sljóvgar ábyrgðartilfinningu, veldur
misskilningi, afbrýði, árekstrum og
tímasóun. Með öðrum orðum, hún
gerir einfalt starf erfitt. Þegar
hleypidómum og eigingirni er boðið
inn, ganga skynsemin og og réttlœtið
út.
Stjórnun — eðlileg starisemi
Margt hefur verið ritað um
„forustuhæfni“, stjórnunargáfur“,
„framkvæmdaeiginleika“, og svo
mikið hefur verið deilt um, hvort
forustumenn séu „fæddir“ sem slíkir
eða hafi áunnið sér hæfni sína, að
allt stjórnunarsviðið hefur verið
sveipað dulúð. Afleiðingin er sú, að
margir góðir og gildir framkvæmda-
stjórar ala með sér ótta og sjá fyrir
sér flókin vandamál, þar sem engin
slík eru.
Sannleikurinn er sá, að leiðsaga
er fullkomlega eðlilegt fyrirbrigði í
lífinu. Veröldin skiptir sér eins og af
IÐNAÐARMÁL
27