Iðnaðarmál - 01.02.1969, Page 37
trufla starfsemi fyrirtækisins. Og það
er til lítils gagns að hafa fyrir því að
ákveða, hvað gera ætti, hvað gert
hefur verið og hverra ráðstafana er
þörf, ef engar ráðstafanir eru síðan
gerðar.
Ekki er þörf fyrir neitt ákveðið
kerfi til að framkvæma þessar ráð-
leggingar. Aðferðin skiptir tiltölu-
lega litlu máli, ef aðeins stöðugt er
leitazt við á skynsamlegan hátt að
gera það, sem ráðlagt hefur verið.
Sú niðurstaða virðist einföld og
eðlileg, að sýna ætti starfsfólki fyrir-
tækisins a. m. k. eins mikla um-
hyggju og dauðum efnishlutum. Ef
slík mannleg umhyggja nær að festa
rætur og verða stöðug, fremur en að
brjótast út í óreglulegum, tilviljana-
kenndum hrifningarköstum, þá mun
árangurinn reynast undraverður.
Endurbætur — ekki fullkomnun
Það er athyglisvert einkenni mann-
legs eðlis að margir okkar verða að
sjá nýja áætlun útskýrða í einstök-
um atriðum áður en við reynum að
framkvæma hana. Því næst rökræð-
um við um hin einstöku atriði, og
stundum neitum við að hefjast handa
vegna þess, að við getum ekki séð
fyrirfram, hvernig komast skal yfir
hverja torfæru. Ef þeir, sem ábyrgð-
arstöður skipa, vildu taka ákvarðanir
um grundvallar „réttmæti“ tillögu og
leggja síðan á brattann, með fölskva-
lausum trúnaði við þann úrskurð, til
að finna leiðina, þá myndi vera
meiri hraði á mannlegum framför-
um en nú er. Það eru svo miklar
umræður um aðferðir og tækni, að
spurningin um grundvallar „rétt-
mæti“ eða „óréttmæti“ gleymist
stundum alveg.
Fullkomnun í hvers konar starf-
semi verður aðeins náð með æfingu.
Ef enginn hefði fengizt til að fljúga
fyrstu flugvélinni vegna þess, að
hún var ekki fullkomin, hvar væru
þá flugsamgöngur okkar á vegi stadd-
ar í dag? Og vélarnar, sem við fljúg-
um í dag, standa að líkindum langt
að baki þeim vélum, sem við fljúgum
eftir tíu ár. Hið sama gildir um
stjórnunaraðferðir, að því er varðar
hina mannlegu þætti.
Það er sagt um Pershing hers-
höfðingja úr fyrri heimsstyrjöld, að
þegar einn úr herforingjaráði hans
kvartaði um, að ákveðinn liðsfor-
ingi á vígstöðvunum gerði margar
skyssur, hafi hann svarað: „Rétt er
það, en hann er fljótur að því.“ Sá,
sem gerir engin mistök, tekur eng-
um framförum. Sá, sem tekur fram-
förum án mistaka, er ekki mannleg-
ur.
Ef það, sem hér hefur verið fjall-
að um í höfuðdráttum, virðist skyn-
samlegt og heilbrigt og ef við höfum
nægilegt traust til að hefjast handa
á einhverju af því, sem við höfum
áður sniðgengið, mun það verða
Aöalyfirsjónir viö kostnaðar-
Atvinnurannsóknastofnunin aust-
urríska hefur í sambandi við kerfis-
bundnar rannsóknir, sem hún lét
fara fram á yfir 3.000 fyrirtækjum,
tekið saman eftirfarandi yfirlit yfir
yfirsjónir, sem sífellt virðast endur-
taka sig á sviði kostnaðar- og verð-
útreikninga hjá smáfyrirtækj um og
meðalstórum fyrirtækjum. (Sjá einn-
ig í síðasta tbl. um aðalyfirsjónir við
stækkun fyrirtækja).
1. Engir kostnaðar- eða verðútreikn-
ingar eru framkvæmdir, því að
menn halda því fram, að markað-
urinn eða samkeppnin ákveði
verðið. Mótrök: Auðvitað getur
smáfyrirtæki eða meðalstórt fyr-
irtæki sjaldan rekið virka verð-
stefnu. Það verður hins vegar að
þekkja þau neðri mörk verðsins,
sem ekki má fara yfir, án þess að
hagnaður hverfi eða eignir fyrir-
tækisins rýrni (verðlágmark).
2. Notaðar eru meira eða minna
tilvilj anakenndar álagsprósentur.
Mótrök: Álagsprósentur eru sjald-
an í samræmi við raunverulegar
kostnaðaraðstæður. Annaðhvort
eru þær of lágar og taka ekki tillit
til þess hagnaðar, sem mætti fá,
eða þær eru of háar og setja fyrir-
tækið á kaldan klakann í sam-
okkur ánægjuleg reynsla. Mannlegir
einstaklingar sýna yfirleitt skjót og
jákvæð viðbrögð gagnvart skilningi,
heiðarleika og tillitssemi. Ef við
göngum að stj órnunarstörfum okkar
með því hugarfari að vinna verkin
á einfaldan og eðlilegan hátt, mun
mikið af þeirri ringulreið, sem nú á
sér stað, hverfa úr sögunni.
Beztu laun, sem nokkur stjórnandi
getur hlotið, eru jákvæð ummæli
þeirra, sem lotið hafa stjórn hans —
að þeir séu betri verkmenn, betri
þjóðfélagsþegnar, betri framleiðend-
ur vegna þess, að þeir hafi notið
leiðsagnar hans. Slík viðhorf skapa
siðgæði og góðan vilja, er sigrað
geta í hverri raun.
Þýð. J. B j.
og verðútreikninga
keppni við fyrirtæki, sem nota ná-
kvæma kostnaðar- og verðútreikn-
inga.
3. Engin tök eru á verð- eða kostn-
aðarútreikningum, því að skortur
er á nægilegum gögnum. Geri
maður samt tilraun til að koma
þeim saman, er oft ekki unnt að
taka tillit til stórra kostnaðarliða.
Mótrök: Afleiðingarnar eru í eðli
sínu þær sömu og í lið 1 og 2.
Svipaðar afleiðingar hefur það í
för með sér að gleyma útreiknuð-
um kostnaðarliðum eins og af-
skriftum og vöxtum.
4. I kostnaði og verði, sem reiknað
er út pr. tíma, er ekki gerður mis-
munur á því, hvort um er að
ræða vélvinnu eða handvinnu.
Mótrök: Með aukinni vélvæðingu
er mun meiri hætta á röngum út-
reikningi, og hættan er þeim mun
meiri, því ólíkari sem verkefni fyr-
irtækisins eru með tilliti til inn-
byrðis hlutfalls milli handvinnu
og vélvinnu.
5. Atvinnurekandanum finnst hann
verða að eyða tíma sínum við
framleiðsluna, en ekki skrifborð-
ið. Mótrök: Jafnvel nákvæmasta
og vandaðasta vinna við fram-
Framh. á 34. bls.
IÐNAÐARMAL
31