Iðnaðarmál - 01.02.1969, Page 38
NYTSAMAR NYJUNGAR
Nú er auðvelt að framleiða
gervisteina
Náttúrusteinar verða stöðugt ódýr-
ari vegna hagræðingar og bættrar
vinnutækni, og einnig verður auð-
veldara að framleiða eðlilegri gervi-
steina. Náttúrusteinninn hefur að
vísu sín sérstöku efnaeinkenni, sem
ekki er algjörlega hægt að líkja eftir,
en gervisteinn hefur aftur á móti oft
meira brotþol.
Með Degalon S600 er hœgt að jramleiða
steina, sem eru ódýrari og sterkari en nátt-
úrusteinar.
Ein af nýjustu aðferðunum til að
framleiöa gervisteina kemur frá fyr-
irtækinu Degussa, Frankfurt/Main,
sem hefur framleitt metalkrylatharp-
iks undir vörumerkinu DEGALAN
S600, en með því er hægt á einfald-
an og um leið öruggan hátt að fram-
leiða gervisteina og gervimarmara. A
síöasta stigi vinnslunnar þarf aðeins
að hlanda tveimur efnum til að fá
efnisblöndu, sem við hörðnun verður
sérlega sterk. Auk þess veitir metal-
krylatharpiks gervisteinum og gervi-
marmara aukið veðrunar- og birtu-
þol, þannig að einnig er hægt að nota
þá til að klæða framhlið bygginga.
Þurrkuð málmsteinafylliefni eins
og kvartsandur, krít og marmaraduft,
sem fást í byggingarvöruverzlunum,
er blandaö vel með litarefnum og til-
skildu magni af herði og fínt möluðu
1. mynd: Hið nýja tœki MD-300.
polymetakrylati. Þessi blanda getur
geymzt lengi á köldum og þurrum
stað.
Viö vinnsluna á aðeins að hræra
þessa þurru blöndu saman við DE-
GALAN S600 í graut, sem auðvelt er
að hella út, og sem fær rétta marm-
araáferÖ með því að bæta í meira lit-
arefni. Þessum massa er hellt í mót
og hann hristur í sérstöku hristitæki.
Hann harðnar á 1—2 klukkustundum
án þess að dragast saman og mynda
fellingar. Það er hægt að fá slétt yfir-
borð, ef mótið er grunnað með meta-
krylati.
Ur „Byggeindustrien", febr. 1969.
Nýtt binditæki
Bandaríska fyrirtækið Signode
Corporation, 2663 N Western Ave-
nue, Chicago, Illinois 60647, hefur
nýlega sent frá sér nýtt tæki, sem
væntanlega er til mikils hagræðis, þar
sem binda þarf ýmiss konar pakka.
Eins og sýnt er á meðfylgjandi
myndum, samanstendur tækið af
grind og boröi. Sérstakt band úr
nælon er dregið út í grindina og
umvefst pakkanum, sem binda á,
þegar stutt er á hnapp. Bandið er
2. mynd sýnir, hvernig unnt er með MD-
300 að binda á fœribandi.
teygt um pakkann og soÖið saman
með viðnámssuðu (friction welding).
Afköst umrædds tækis eru háð
stærð pakkanna, sem binda á. Ef
pakkinn fyllir út í grindina (120 x
120), eru afköst 17 bindingar á mín-
útu, en ef stærðin er 20 x 20, eru
afköstin 9 hönd á mínútu.
Helztu kostir Dymax-bindingar
eru: Bindingin er lyktarlaus, bandið
skríÖur ekki á pakkanum og raki
hefur engin áhrif á bindinguna.
Ur „Affars ekonomi" nr. 19, 1968.
32
IÐNAÐARMAL