Iðnaðarmál - 01.04.1971, Page 14
kostnaður er alltof mikil byrði mið-
að við framleiðslumagn.
Þörf fyrir leiðbeinendur og ráð-
gefandi sérfræðinga er mikil, en hún
er ekki einskorðuð við einstakar
greinar, svo sem rafsuðu, heldur á
mörgum sviðum og einnig á verk-
stæðunum sjálfum. En gagnslaust er
að koma slíkri starfsemi á, fyrr en
framkvæmdastjóri, skrifstofumenn og
tæknimenntaðir menn hafa öðlazt
betri þekkingu á framleiðslustarfsem-
inni.
Athugasemdir og tillögur
Framleiðslugeta stöðvanna er mið-
uð við viðgerðir og smíði fiskibáta,
en ætla má, að mikil eftirspurn verði
eftir stórum skuttogurum. Stærstu
stöðvarnar geta tekið allt að 4000
tonna skip í þurrkví og nýsmíði skipa
allt að 800 tonna. Auka má þessi
stærðarmörk með lengingu sleðanna.
Framleiðni er yfirleitt lág vegna
ýmissa ytri aðstæðna. Úr þessu má
bæta með gerð framleiðsluáætlana.
Engin veruleg vandamál eru varðandi
verkkunnáttu. Um 1200 manns starfa
í íslenzkum skipasmíðaiðnaði. í jan-
úar 1971 voru 26 mismunandi stál-
fiskiskip í smíðum.
Lagt er til, að komið verði upp
tæknilegri og hagfræðilegri þj ónustu-
miðstöð fyrir skipasmíðastöðvarnar
í Reykjavík, þar sem leyst verði öll
helztu vandamál, sem nefnd eru í
skýrslunni, og yrði hún jafnframt
tengiliður milli skipasmíðastöðva,
stálsmiðja, vélsmiðja og annarra fyr-
irtækja, sem vinna að viðgerðum og
smíði skipa. Viðfangsefni þjónustu-
miðstöðvarinnar yrði eftirfarandi:
1. Sérfræðilegar ráðleggingar til fyr-
irtækja í iðngreininni og opinberra
aðila um stefnu í stofnun nýrra
skipasmíðastöðva og endurskipu-
Iagningu grundvallarskipulags
þeirra.
2. Sérfræðilegar ráðleggingar til op-
inherra aðila og fjármálastofnana
með tilliti til framleiðni, fram-
leiðslukostnaðar, fjárhagsstöðu og
þörf fyrir fjármagn.
3. Sérfræðilegar ráðleggingar og að-
stoð til fyrirtækja, að því er varð-
ar framleiðsluáætlanir, útvegun,
hráefnaeftirlit og meðhöndlun,
launaörvun, kostnaðareftirlit, fjár-
hagsáætlanir og samninga.
4. Sérfræðilegar ráðleggingar og að-
stoð til útgerðarmanna og skipa-
smíðastöðva m. t. t.: skipateikn-
inga, smíða, traustleika og ýmiss
útbúnaðar.
5. Sérfræðilegar ráðleggingar og að-
stoð við opinbera aðila, stjórn-
endur og launþegasamtök varð-
andi: vinnuöryggi, sjúkrahjálp og
velferð starfsfólks.
6. Veita stjórnendum aðstoð við að
velja leiðbeinendur meðal hinna
ýmsu hópa iðnaðarmanna.
7. Sérfræðilegar ráðleggingar og að-
stoð við Rannsóknastofnun iðnað-
arins og ýmsa aðila varðandi
markaðsrannsóknir og hagnýtar
rannsóknir.
8. Upplýsingabókasafn og miðlun
upplýsinga.
9. Sérfræðiaðstoð og ráðleggingar
varðandi þjálfun og menntun.
Afkastageta núverandi fyrirtaekja
Á bls. 106 og 107 eru skrár yfir
skipasmíðastöðvar og stál og vél-
smiðjur, sem starfa við skipaviðgerð-
ir og nýsmíði (merktarx) hér á landi.
Ætla má, að um 60% starfsmanna
smiðjanna starfi í þágu skipasmíða-
iðnaðarins.
Ástand fiskniðursuðuiðn-
aðar ó íslandi 1969
Uttektar- og morkaðskönnunarskýrsla
gerð af Stevenson & Kellogg, Ltd.
Núverandi ástand
í íslenzkum niðursuðuiðnaði starfa
16 sjálfstæð niðursuðufyrirtæki,
aðallega á Vestur- og Norðurlandi,
en 5 stærstu fyrirtækin eru allsráð-
andi í iðnaðinum. Þau eru K. Jóns-
son & Co. á Akureyri með afkasta-
getu 110.000 dósir á dag á 10 tíma
vakt, Langeyri hf. við ísafjörð með
77.000 dósir og Norðurstjarnan hf. í
Ilafnarfirði, Ora hf. í Kópavogi og
Haraldur Böðvarsson & Co. hf. á
Akranesi með 60.000 dósir hvert.
Samanlagt hafa þær 86,9% af heild-
arframleiðslunni. Aðeins tvö önnur
fyrirtæki, Arctic hf. á Akranesi og
Síldarniðurlagningarverksmiðj a rík-
isins á Siglufirði með um 20.000
dósa afköst á dag, taka þátt í öflun
erlendra markaða fyrir iðnaðinn.
Engin hinna verksmiðjanna hafa af-
köst yfir 10.000 dósir á dag.
Við áætlanir og þróun þessa iðn-
aðar er tekið tillit til þess, að 7 fyrir-
tæki standa undir 95% allrar fram-
leiðslunnar og að aðeins 5 þeirra,
Ora hf., Haraldur Böðvarsson, Arc-
108
IÐNAÐARMÁL