Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 9
LÆKNAblaðið 2015/101 349 13 0/ 90 12 0/ 80 14 0/ 10 0 15 0/ 110 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - A c ta v is 5 1 3 0 7 2 Vaxandi háþrýstingur? Lerkanidipin Actavis – Sértækur kalsíumgangaloki með aðalverkun á æðar 10 mg og 20 mg filmuhúðaðar töflur. R i T S T J Ó R n a R G R E i n Verkefnið „Frú Ragnheiður“ sem rekið er að frumkvæði Rauða krossins og sjálfboða- liða úr heilbrigðisstétt fékk nýlega Mann- réttindaverðlaun Reykjavíkurborgar. Frú Ragnheiður er ekki bara áhugavert heiti heldur merkilegt starf sem fellur undir flokk skaðaminnkandi verkefna. Í stuttu máli gengur hugmyndafræði eða nálgun skaðminnkunar út á að draga úr skað- legum afleiðingum lífsstíls eða hegðunar, óháð því hvort hún sé æskileg, leyfileg eða ólögleg. Lýðheilsufræðin hafa lengi fjallað um slíka þjónustu eða úrræði og er kynlíf unglinga ágætt dæmi. Á að veita fræðslu, dreifa smokkum og skrifa upp á pilluna fyrir unglinga og ólögráða börn fremur en að standa fast á boðum og bönnum? Svarið er já og reynslan sannar það. Mikil umræða er um skaðaminnkandi nálgun þegar kemur að neyslu ólöglegra eiturlyfja og afleiðingum hennar. Og sýnist sitt hverjum. Frú Ragnheiður veitir utangarðsfólki og einstaklingum í virkri neyslu heilbrigðisþjónustu utan spítala og sprautufíklum aðgang að hreinum nálum svo dæmi sé tekið. Nálaskiptaþjónusta Frú Ragnheiðar sem var stofnað til árið 2009 er eina yfirlýsta skaðaminnkandi verkefnið sem starfrækt er í dag á sínu sviði. Verk- efnið gengur út á að mæta einstaklingnum í þeim aðstæðum sem hann er, enda er engum neitað um þjónustu hjá Frú Ragn- heiði. Þeir hópar sem sækja aðstoð til Frú Ragnheiðar eiga oft erfitt með að leita til almennrar heilsugæslu eða hirða ekki um það, en meðal skjólstæðinga verkefnisins eru heimilislausir, útigangsfólk og fíklar. Utangarðsfólk í Reykjavík telur á annað hundrað. Fíklar eru enn fleiri. Margir þeirra hafa nýtt sér aðstoð Frú Ragnheiðar en samhliða því hafa borgarverðirnir okkar, færanlegt þverfaglegt teymi félags- ráðgjafa, hjúkrunarfræðings og lögreglu, verið með nálaskiptiþjónustu auk þess sem hægt hefur verið að fá sömu þjónustu í Dagsetrinu svokallaða sem er afdrep heim- ilislauss fólks í vímuefnavanda og rekið er af Hjálpræðishernum. Í starfsemi Frú Ragnheiðar er reynt að draga úr og lágmarka skaða sem getur orðið af hegðun og líferni þeirra sem nota þjónustuna. Þannig er hægt að draga úr skaðsemi lifnaðarhátta jaðarhópa, til dæmis sýkingum í sárum og útbreiðslu lifrarbólgu C og HIV, með því að auðvelda þeim aðgengi að sárameðferð, hreinum nálum og sprautum og almennri fræðslu um skaðaminnkun. Þannig er hægt með einföldum leiðbeiningum og fræðslu að draga verulega úr skaðsemi lifnaðarhátta. Um leið er dregið úr mögulegri þörf á mun dýrari úrræðum seinna meir fyrir heil- brigðiskerfið. Frú Ragnheiður er rekin á sjálfboða- liðagrundvelli en þeir sem taka þátt eru margir hjúkrunarfræðingar eða hjúkr- unarfræðinemar. Innan um standa svo vaktina félagsráðgjafar, vímuefnaráðgjafar, sálfræðingar og aðrir hæfir sjálfboðaliðar. Verkefnið er dýrmæt reynsla fyrir sjálf- boðaliða sem taka þátt og skapar um leið tækifæri fyrir aukna samvinnu milli heil- brigðis- og velferðarkerfisins. Reykjavíkurborg verðlaunaði þetta verð- uga verkefni á dögunum, veitti því styrk sem gerir þeim betur kleift að sinna og þjónusta þennan mikilvæga en viðkvæma hóp sem á sér fáa talsmenn og eru sjaldnast með kröfugerð. Verkefnið hefur stuðlað að minnkandi fordómum og auknum skiln- ingi gagnvart þessum jaðarhópum. Ekki bara úti í samfélaginu – heldur líka innan kerfis og meðal þeirra sem starfa í heil- brigðis- og velferðargeiranum. Að mínu mati er mikilvægt að ræða kosti og galla skaðaminnkandi úrræða og það er mikil- vægt að meta áhrifin. Öll umræða um hug- myndafræði skaðaminnkunar er til bóta. Það er of snemmt að slá neinu föstu um hvort tilkoma Frú Ragnheiðar hafi haft áhrif til að draga úr smiti og sýkingum gegnum notkun óhreinna sprautunála. Það er þó athyglisvert að í tölum sóttvarnarlæknis sést að eftir tvö ár þar sem töluverður fjöldi nýsmitaðra með HIV (10 og 13 ein- staklingar eða um helmingur nýsmitaðra) hefur tala þeirra þar sem smit er rakið til eiturlyfjaneyslu aðeins verið einn einstak- lingur síðustu tvö ár. Á sama árabili hefur smituðum af lifrarbólgu C í gegnum fíkni- efnaneyslu á hverja 100.000 íbúa fækkað úr 52 í 12. Þetta eru í það minnsta áhugaverðar tölur sem þarf að greina betur. Mannréttindaverðlaun Frú Ragnheiðar er ekki aðeins lýðheilsumál heldur endur- speglar líka mannvirðingu og viðurkenn- ingu á því að við getum ekki litið fram hjá skaðlegri hegðun í samfélaginu. Þó ábyrgð einstaklinga á eigin lífi sé rík eru afleið- ingar hegðunarinnar oft samfélagslegt úrlausnarefni. Við þurfum að horfast í augu við vandann og mæta honum þannig að við drögum úr áhrifum hans eins og kostur er. Hugmyndafræði skaðaminnkunar í vinnu með áfengis- og vímuefnaneytendum hefur stuðlað að vakningu og hugarfarsbreytingu víða innan félags- og heilbrigðiskerfisins. Skaðaminnkun getur verið farsæl nálgun í þjónustu við ákveðna jaðarhópa og auð- veldar tengsl og samvinnu fagaðila og not- enda. Þannig getur byggst upp traust sem aftur er forsenda varanlegra breytinga. Það er ánægjulegt að sjá hvernig góð verkefni geta orðið til með aðkomu ólíkra aðila þar sem markmiðin eru að draga markvisst úr hættu á smitsjúkdómum og þar sem saman fara mannúðarsjónarmið, hagnýt nálgun og heilbrigði. landlaeknir.is/um-embaettid/greinar/grein/item26206/HIV/ Alnaemi-31-12-2014 – júní 2015. Dagur B. Eggertsson læknir og borgarstjóri Reykjavíkur Ms. Ragnheiður – Harm Reduction in Reykjavík Dagur B. Eggertsson, MD, the Mayor of Reykjavík Frú Ragnheiður – skaðaminnkun í Reykjavík http://dx.doi.org/10.17992/lbl.2015.06.34

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.