Læknablaðið - 01.07.2015, Qupperneq 9
LÆKNAblaðið 2015/101 349
13
0/
90
12
0/
80
14
0/
10
0
15
0/
110
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
A
c
ta
v
is
5
1
3
0
7
2
Vaxandi
háþrýstingur?
Lerkanidipin Actavis
– Sértækur kalsíumgangaloki með aðalverkun á æðar
10 mg og 20 mg filmuhúðaðar töflur.
R i T S T J Ó R n a R G R E i n
Verkefnið „Frú Ragnheiður“ sem rekið er
að frumkvæði Rauða krossins og sjálfboða-
liða úr heilbrigðisstétt fékk nýlega Mann-
réttindaverðlaun Reykjavíkurborgar. Frú
Ragnheiður er ekki bara áhugavert heiti
heldur merkilegt starf sem fellur undir
flokk skaðaminnkandi verkefna. Í stuttu
máli gengur hugmyndafræði eða nálgun
skaðminnkunar út á að draga úr skað-
legum afleiðingum lífsstíls eða hegðunar,
óháð því hvort hún sé æskileg, leyfileg eða
ólögleg. Lýðheilsufræðin hafa lengi fjallað
um slíka þjónustu eða úrræði og er kynlíf
unglinga ágætt dæmi. Á að veita fræðslu,
dreifa smokkum og skrifa upp á pilluna
fyrir unglinga og ólögráða börn fremur en
að standa fast á boðum og bönnum? Svarið
er já og reynslan sannar það.
Mikil umræða er um skaðaminnkandi
nálgun þegar kemur að neyslu ólöglegra
eiturlyfja og afleiðingum hennar. Og
sýnist sitt hverjum. Frú Ragnheiður veitir
utangarðsfólki og einstaklingum í virkri
neyslu heilbrigðisþjónustu utan spítala og
sprautufíklum aðgang að hreinum nálum
svo dæmi sé tekið. Nálaskiptaþjónusta Frú
Ragnheiðar sem var stofnað til árið 2009 er
eina yfirlýsta skaðaminnkandi verkefnið
sem starfrækt er í dag á sínu sviði. Verk-
efnið gengur út á að mæta einstaklingnum
í þeim aðstæðum sem hann er, enda er
engum neitað um þjónustu hjá Frú Ragn-
heiði. Þeir hópar sem sækja aðstoð til Frú
Ragnheiðar eiga oft erfitt með að leita til
almennrar heilsugæslu eða hirða ekki um
það, en meðal skjólstæðinga verkefnisins
eru heimilislausir, útigangsfólk og fíklar.
Utangarðsfólk í Reykjavík telur á annað
hundrað. Fíklar eru enn fleiri. Margir
þeirra hafa nýtt sér aðstoð Frú Ragnheiðar
en samhliða því hafa borgarverðirnir
okkar, færanlegt þverfaglegt teymi félags-
ráðgjafa, hjúkrunarfræðings og lögreglu,
verið með nálaskiptiþjónustu auk þess sem
hægt hefur verið að fá sömu þjónustu í
Dagsetrinu svokallaða sem er afdrep heim-
ilislauss fólks í vímuefnavanda og rekið er
af Hjálpræðishernum.
Í starfsemi Frú Ragnheiðar er reynt að
draga úr og lágmarka skaða sem getur
orðið af hegðun og líferni þeirra sem
nota þjónustuna. Þannig er hægt að draga
úr skaðsemi lifnaðarhátta jaðarhópa, til
dæmis sýkingum í sárum og útbreiðslu
lifrarbólgu C og HIV, með því að auðvelda
þeim aðgengi að sárameðferð, hreinum
nálum og sprautum og almennri fræðslu
um skaðaminnkun. Þannig er hægt með
einföldum leiðbeiningum og fræðslu að
draga verulega úr skaðsemi lifnaðarhátta.
Um leið er dregið úr mögulegri þörf á mun
dýrari úrræðum seinna meir fyrir heil-
brigðiskerfið.
Frú Ragnheiður er rekin á sjálfboða-
liðagrundvelli en þeir sem taka þátt eru
margir hjúkrunarfræðingar eða hjúkr-
unarfræðinemar. Innan um standa svo
vaktina félagsráðgjafar, vímuefnaráðgjafar,
sálfræðingar og aðrir hæfir sjálfboðaliðar.
Verkefnið er dýrmæt reynsla fyrir sjálf-
boðaliða sem taka þátt og skapar um leið
tækifæri fyrir aukna samvinnu milli heil-
brigðis- og velferðarkerfisins.
Reykjavíkurborg verðlaunaði þetta verð-
uga verkefni á dögunum, veitti því styrk
sem gerir þeim betur kleift að sinna og
þjónusta þennan mikilvæga en viðkvæma
hóp sem á sér fáa talsmenn og eru sjaldnast
með kröfugerð. Verkefnið hefur stuðlað að
minnkandi fordómum og auknum skiln-
ingi gagnvart þessum jaðarhópum. Ekki
bara úti í samfélaginu – heldur líka innan
kerfis og meðal þeirra sem starfa í heil-
brigðis- og velferðargeiranum. Að mínu
mati er mikilvægt að ræða kosti og galla
skaðaminnkandi úrræða og það er mikil-
vægt að meta áhrifin. Öll umræða um hug-
myndafræði skaðaminnkunar er til bóta.
Það er of snemmt að slá neinu föstu um
hvort tilkoma Frú Ragnheiðar hafi haft áhrif
til að draga úr smiti og sýkingum gegnum
notkun óhreinna sprautunála. Það er þó
athyglisvert að í tölum sóttvarnarlæknis
sést að eftir tvö ár þar sem töluverður
fjöldi nýsmitaðra með HIV (10 og 13 ein-
staklingar eða um helmingur nýsmitaðra)
hefur tala þeirra þar sem smit er rakið til
eiturlyfjaneyslu aðeins verið einn einstak-
lingur síðustu tvö ár. Á sama árabili hefur
smituðum af lifrarbólgu C í gegnum fíkni-
efnaneyslu á hverja 100.000 íbúa fækkað úr
52 í 12. Þetta eru í það minnsta áhugaverðar
tölur sem þarf að greina betur.
Mannréttindaverðlaun Frú Ragnheiðar
er ekki aðeins lýðheilsumál heldur endur-
speglar líka mannvirðingu og viðurkenn-
ingu á því að við getum ekki litið fram hjá
skaðlegri hegðun í samfélaginu. Þó ábyrgð
einstaklinga á eigin lífi sé rík eru afleið-
ingar hegðunarinnar oft samfélagslegt
úrlausnarefni. Við þurfum að horfast í augu
við vandann og mæta honum þannig að við
drögum úr áhrifum hans eins og kostur er.
Hugmyndafræði skaðaminnkunar í vinnu
með áfengis- og vímuefnaneytendum hefur
stuðlað að vakningu og hugarfarsbreytingu
víða innan félags- og heilbrigðiskerfisins.
Skaðaminnkun getur verið farsæl nálgun
í þjónustu við ákveðna jaðarhópa og auð-
veldar tengsl og samvinnu fagaðila og not-
enda. Þannig getur byggst upp traust sem
aftur er forsenda varanlegra breytinga. Það
er ánægjulegt að sjá hvernig góð verkefni
geta orðið til með aðkomu ólíkra aðila þar
sem markmiðin eru að draga markvisst úr
hættu á smitsjúkdómum og þar sem saman
fara mannúðarsjónarmið, hagnýt nálgun
og heilbrigði.
landlaeknir.is/um-embaettid/greinar/grein/item26206/HIV/
Alnaemi-31-12-2014 – júní 2015.
Dagur B.
Eggertsson
læknir og borgarstjóri
Reykjavíkur
Ms. Ragnheiður – Harm Reduction in Reykjavík
Dagur B. Eggertsson, MD, the Mayor of Reykjavík
Frú Ragnheiður
– skaðaminnkun í Reykjavík
http://dx.doi.org/10.17992/lbl.2015.06.34