Læknablaðið - 01.07.2015, Side 11
Strattera er nú samþykkt til að
hefja meðferð við ADHD hjá fullorðnum
Heimildir:
1. www.serlyfjaskra.is. 2. Michelson D et al. Biol Psychiatry 2003; 53(2): 112–20.
3. Young JL et al. Clin Neuropharmacol 2011; 34(2): 51– 60. 4. Adler LA et al. J Clin Psycho Pharmacol 2009; 29(1): 44–50.
5. Adler LA et al. J Clin Psychiatry 2005; 66(3): 294 –9. 6. Adler LA et al. J Atten Diord 2008; 12(3): 248–53.
7. Wehmeier et al. Child Adolesc Phsychiatry Mental Health 2009; 3(1): 5.
– Eina lyfjameðferðin fyrir fullorðna með ADHD sem tilheyrir ekki
flokki örvandi lyfja1
– Dregur úr helstu einkennum ADHD og veitir stöðuga stjórn á
einkennum allan daginn yfir lengri tíma, borið saman við lyfleysu2-7
– Tekið einu sinni á dag1
– Staðfestar upplýsingar varðandi öryggi og þol sýna að Strattera er
góð meðferð fyrir sjúklinga sem þjást einnig af félagsfælni og áfengissýki1
Stöðug stjórn á
einkennum beinir
athyglinni frá ADHD
Strattera
LIL141201
LÆKNAblaðið 2015/101 351
Inngangur
Pancoast-æxli eru sjaldgæf tegund af lungnakrabba-
meinum og í flestum rannsóknum eru þau í kringum
5% þeirra.8, 11, 26 Þau eru nefnd eftir röntgenlækninum
Henry Pancoast sem lýsti þeim fyrstur árið 1924.15 Pan-
coast-krabbamein eru upprunnin í efsta hluta lungans
og vaxa með ífarandi hætti í efsta hluta brjóstveggj-
arins og aðlæg líffæri.21 Þannig eru þau skilgreind í
nýjasta TNM-stigunarkerfinu (útgáfa 7) sem T3 eða T4
æxli, en undir þá skilgreiningu falla þau lungnaæxli
sem vaxið hafa í nálæg líffæri eins og brjóstvegg, þind
eða meginberkju lungans.4
Vegna staðsetningar valda Pancoast-æxli oft verk í
öxl eða baki vegna ífarandi vaxtar í fleiðru á innan-
verðu brjóstholi eða taugar í armflækju.3 Æxlin geta
einnig valdið Horner ś heilkenni vegna vaxtar í drif-
kerfistaugahnoð (sympatic ganglia) brjóstkassans sömu
megin og einkennin eru. Þau geta einnig valdið rýrn-
un á handarvöðvum og bjúg á griplim ef æxlið vex inn
í armflækju og neðanviðbeinsbláæð.3 Þessi einkenni
kallast einu nafni Pancoast-heilkenni.
Meðferð Pancoast-æxla er flókin vegna stað-
setningar þeirra í brjóstholinu og klínískrar hegð-
unar. Brottnám æxlis með skurðaðgerð getur verið
tæknilega krefjandi, bæði vegna nærliggjandi tauga
til griplims og hættu á blæðingu frá æðum í inntaki
brjósthols (thoracic inlet).16 Áður fyrr fólst læknandi
meðferð við Pancoast-krabbameini í geislameðferð og
síðar skurðaðgerð, en fimm ára lifun sjúkdómsins var
þá aðeins í kringum 30%.19 Í dag er mælt með sam-
tvinnaðari geisla- og lyfjameðferð fyrir skurðaðgerð,21
og er fimm ára lifun sjúkdómsins allt að 50% á stærri
sjúkrahúsum.12, 18 Sterkustu forspárþættir lifunar eru
1Læknadeild Háskóla
Íslands, 2lungnadeild,
3meinafræðideild, 4hjarta-
og lungnaskurðdeild
Landspítala.
inngangur: Pancoast-æxli eru lungnakrabbamein sem vaxa út frá
lungnatoppi í þak fleiðruhols og valda einkennum frá ífarandi vexti í aðlæg
líffæri. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna árangur skurðmeð-
ferðar við Pancoast-æxlum á Íslandi.
Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn á öllum sjúklingum sem
gengust undir skurðaðgerð við Pancoast-krabbameini í læknandi tilgangi
á Landspítala á árunum 1991-2010. Skráð voru einkenni sjúklinga, fylgi-
kvillar meðferðar og endurkomutíðni. Æxlin voru stiguð samkvæmt nýju
TNM-stigunarkerfi.
niðurstöður: Tólf sjúklingar gengust undir aðgerð á þeim 20 árum sem
rannsóknin náði til, þar af 7 á hægra lunga. Algengustu einkenni voru
verkur í herðablaði eða öxl (n=5) og/eða brjóstverkur (n=3), hósti (n=6) og
meg run (n=5). Flest æxlanna voru af kirtilfrumugerð (n=5) eða flöguþekju-
gerð (n=4). Meðalstærð æxlanna var 5,9 cm (bil: 2,8-15) og voru 5 á stigi
IIB og 7 á stigi IIIA. Æxlin voru fjarlægð með hreinum skurðbrúnum í 10
tilfellum (83%). Allir sjúklingarnir lifðu aðgerðina af en einn sjúklingur varð
fyrir alvarlegum fylgikvilla sem var mikil blæðing í aðgerð. Einn sjúklingur
fékk geisla- og lyfjameðferð fyrir aðgerð en 8 fengu geislameðferð eftir
aðgerð. Níu sjúklingar greindust síðar með endurkomu sjúkdóms; fjórir
með staðbundna endurkomu, fjórir með útbreiddan sjúkdóm og einn með
hvort tveggja. Heildarlifun eftir 5 ár var 33% en miðgildi lifunar var 27,5
mánuðir (bil: 4-181).
Ályktanir: Árangur skurðaðgerða og skammtímahorfur sjúklinga með
Pancoast-krabbamein hafa verið góðar hérlendis. Langtímahorfur í þess-
arri rannsókn voru hins vegar lakari en í nýlegum erlendum rannsóknum
og tíðni staðbundinnar endurkomu há. Hugsanleg skýring gæti verið ófull-
nægjandi stigun fyrir aðgerð og lítil notkun á samþættri geisla- og lyfja-
meðferð fyrir aðgerð hjá sjúklingum í þessarri rannsókn.
ÁgrIp
Fyrirspurnir:
Tómas Guðbjartsson
tomasgud@landspitali.is
Greinin barst
29. mars 2015,
samþykkt til birtingar
16. júní 2015.
Höfundar hafa
útfyllt eyðublað um
hagsmunatengsl.
Árangur skurðmeðferðar við
Pancoast-lungnakrabbameini á Íslandi
Björn Már Friðriksson1 læknanemi, Steinn Jónsson2 læknir, Guðrún Nína Óskarsdóttir1 læknir, Andri Wilberg Orrason1 læknir,
Helgi J. Ísaksson3 læknir, Tómas Guðbjartsson1,4 læknir
T-stig æxlis, svörun við geisla- og lyfjameðferð og hrein-
ar skurðbrúnir eftir aðgerð.1, 9, 12, 18 Um helmingur sjúk-
linga greinist með endurtekið krabbamein sem oftast
eru fjarmeinvörp fremur en staðbundið krabbamein.25
Í Læknablaðinu hafa áður birst greinar um árangur
blaðnáms, lungnabrottnáms og fleygskurða við lungna-
krabbameini hér á landi. Tilgangur þessarar rannsóknar
var að kanna árangur skurðmeðferðar við Pancoast-
æxlum með sérstakri áherslu á skammtímafylgikvilla
og langtímalifun sjúklinga.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn og náði til allra sjúklinga
sem greindust með Pancoast-krabbamein í lungum og
gengust undir skurðaðgerð á Landspítala frá 1. janúar
1991 til 31. desember 2010. Aðeins voru tekin með tilfelli
þar sem skurðaðgerð var beitt í læknandi tilgangi en
könnunaraðgerðum (explorative thoracotomy) var sleppt.
Öll tilskilin leyfi lágu fyrir áður en rannsóknin hófst, frá
Persónuvernd, Vísindasiðanefnd og framkvæmdastjóra
lækninga á Landspítala.
Pancoast-æxli voru skilgreind sem lungnakrabba-
mein af ekki smáfrumugerð (non small-cell lung cancer,
NSCLC) sem uxu út frá lungnatoppi eða efra lungnablaði
og þaðan út í innri fleiðru (pleura parietale) brjóstkassa
eða dýpra í brjóstkassa/aðlæg líffæri, í hæð við fyrsta
rif eða ofar.5, 21 Einkenni Pancoast-heilkennis voru ekki
forsenda fyrir greiningu Pancoast-lungnakrabbameins.
Sjúklingar voru fundnir með leit í tveimur að-
skildum skrám, annars vegar úr rafrænni aðgerðar- og
greiningarskrá Landspítala og hins vegar úr gagna-
R a n n S Ó k nhttp://dx.doi.org/10.17992/lbl.2015.06.35