Læknablaðið - 01.07.2015, Side 18
358 LÆKNAblaðið 2015/101
eru taldar gegna lykilhlutverki í meingerð BVLLT eins og nánar
verður rætt um síðar.
Áhættuþættir
Fjöldamargir áhættuþættir versnana eru þekktir eins og sjá má
í töflu I.1-3,8 Nýleg rannsókn frá Bergen í Noregi sýndi að meðal
áhættuþátta var kvenkyn, aldur, alvarlegri sjúkdómur, lang-
vinnur hósti, notkun innúðastera og fyrri versnanir.9 Lýst hefur
verið svipgerð sjúklinga með LLT sem hafa tíðar versnanir. Meðal
áhættuþátta eru aldur, fyrri versnanir og vaxandi lungnateppa.8,10
Áhrif hjásjúkdóma
Erfitt getur verið að greina á milli kerfiseinkenna LLT og hjá-
sjúkdóma (comorbidities).11,12 Hjásjúkdómar hafa því verið skil-
greindir sem sjúkdómar sem eru til staðar á sama tíma og BVLLT
með hærri tíðni en í almennu þýði og hafa áhrif á framvindu og
meðferð BVLLT. Nokkrir þessara hjásjúkdóma eru sýndir í töflu
II.3 Hvort hjásjúkdómar valda bráðum versnunum, líkjast þeim,
eða stuðla að svæsnari versnunum eða sambland af þessu öllu er
ekki alltaf vitað og oft erfitt að átta sig á. Það er hins vegar ljóst að
hjásjúkdómar stuðla að sjúkrahúsinnlögnum, lengja þær og auka
dánartíðni innlagðra sjúklinga.13
Orsakir
Algengt er að sýkingar valdi versnunum.14,15 Margar rannsóknir
sýna að allt að 70% versnana séu vegna sýkinga. Þær skiptast svo
til helminga í bakteríusýkingar og veirusýkingar. Nokkrar algeng-
ar gerðir eru sýndar í töflu III.3 Einnig getur verið um blandaða
mynd veiru og bakteríusýkingar að ræða.
Loftmengun er talin önnur algeng orsök.1,3,15 Safngreiningar
hafa sýnt að loftmengun bæði innanhús og utan geta stuðlað að
bráðum versnunum.15 Rannsókn frá Reykjavík sýndi að bráðainn-
lagnir á Landspítala vegna hjarta- og lungnasjúkdóma tengdust
ósongildum í andrúmslofti.16 Önnur rannsókn sýndi að aukinni
utanhússloftmengun fylgdi aukin notkun á innúðalyfjum.17 Í
mörgum tilfellum er orsök versnunar óþekkt, sem mætti einnig
líta á sem áskorun um að þörf sé á meiri vísindarannsóknum sem
leitast við að skilja orsakir BVLLT betur.14
Mismunagreiningar
Lungnasegarek getur verið með svipuðum einkennum og BVLLT,
sérstaklega mæði.3 Rannsóknir hafa sýnt aukna tíðni lungnasega-
reks hjá sjúklingum með BVLLT.19 Vegna þessa er mikilvægt að
hafa lungnasegarek í huga hjá þessum sjúklingum. Mikilvægt er
að kanna áhættuþætti lungnasegareks með Wellsskori og skoða
sjúkling með tilliti til bláæðasega í ganglimum. Ef klínískur grun-
ur er sterkur ætti að gera tölvusneiðmynd af lungnaæðum.20
Hjartabilun getur einnig verið með svipuðum einkennum og
BVLLT og er þá einkum átt við mæði. Mikilvægt er að skoða sjúk-
linga með BVLLT vel og þannig þarf að athuga með nýlega aukn-
ingu á líkamsþyngd, athuga með brakhljóð við lungnahlustun og
meta útlægan bjúg og þenslu á bláæðum á hálsi. Þá getur mæling
á BNP einnig verið hjálpleg.21
Loftbrjóst getur lýst sér með skyndilegri mæði og brjóstverk
og er hægt að rugla saman við BVLLT.1,2,3 Loftbrjóst er algengt í
sjúklingum með LLT. Lungnaskoðun getur vakið grun um loft-
brjóst og hægt er að staðfesta greiningu með röntgenmynd af
lungum, ómskoðun af brjóstkassa og í stöku tilfellum þarf tölvu-
sneiðmynd, sérstaklega hjá sjúklingum með stórar loftblöðrur af
völdum lungnaþembu.
Astmi getur verið til staðar samhliða langvinnri lungnateppu.
Astmi byrjar yfirleitt fyrr á lífsleiðinni, tengist ofnæmi og ein-
kenni eru meira á kvöldin og að næturlagi. Þá er meiri breytileiki
í einkennum og þau geta horfið inn á milli.2
rannsóknir
Blóðrannsóknir
Algengt er að rannsaka blóðhag til að útiloka blóðleysi og meta
hækkun á hvítum blóðkornum til að segja til um sýkingu. Reynt
hefur verið að nota mælingu á C-reactive protein (CRP) til að meta
hvort um sýkingu sé að ræða og greina á milli bakteríu og veiru-
sýkinga. Ekki hefur fundist fylgni þar á milli og er því ekki hægt
að nota CRP-hækkun sem mælikvarða á sýkingu. Brain natriuretic
peptide (BNP) getur hjálpað til að greina hvort aukin mæði stafi af
hjarta- eða lungnavandamáli.21
Y F i R l i T S G R E i n
Tafla I. Áhættuþættir bráðra versnana.
Hækkandi aldur Lengd sögu um langvinna lungnateppu
Alvarleiki loftvegateppu Sýklun á loftvegum
Fyrri saga um notkun innöndunarlyfja Hjásjúkdómar
Langvinnur berkjuslímuppgangur Léleg lífsgæði
Blautur hósti og surg Fyrri saga um versnanir
Sýklalyfja- eða steranotkun um munn
Tafla II. Nokkrir hjásjúkdómar langvinnrar lungnateppu
Hjarta- og æðasjúkdómar Þunglyndi
Hjartabilun Kvíði
Lungnaháþrýstingur Vélindabakflæði
Lungnasegarek Sykursýki
Beinþynning Svefntruflanir
Tafla III. Sýkingavaldar í BVLLT.
Bakteríur Tíðni %
Hemofilus influenzae 20-30
Streptokokkus pneumoniae 10-15
Moraxella cataralis 10-15
Pseudomonas aeruginosa 5-10
Veirur
Rhinoveira 10-25
Parainflúensuveira 5-10
Inflúensuveira 5-10
Respiratory syncytial veira 5-10