Læknablaðið - 01.07.2015, Qupperneq 34
374 LÆKNAblaðið 2015/101
Samtök norrænna svæfinga- og gjör-
gæslulækna héldu stórt þing í Hörpu
um miðjan júnímánuð. Um 1000 gestir
frá nær 40 löndum sóttu þingið sem stóð
í þrjá daga með viðamikilli dagskrá í
mörgum sölum samtímis. Vísindatímarit
samtakanna Acta Anaesthesiologica
Scandinavica veitti vegleg verðlaun fyrir
besta frjálsa erindið, 25.000 D.kr., og var
það vísindanefnd samtakanna sem valdi,
en einnig voru veitt fern önnur verðlaun,
15.000 D.kr. hver.
Martin Ingi Sigurðsson, sem nú
stundar sérnám í svæfinga- og gjör-
gæslulækningum við Brigham og
Women ś sjúkrahúsið í Boston, hlaut
fyrstu verðlaun fyrir rannsókn sína
"Familiarity and Genetic Risk Factors
of Acute Kidney Injury". Læknablaðið
óskar honum til hamingju.
Sérstakur gestur þingsins var Jean-
Louis Vincent, prófessor í gjörgæslu-
lækningum við læknadeild Háskólans í
Brussel og yfirlæknir gjörgæsludeildar
Erasmusar-háskólasjúkrahússins.
Vincent flutti opnunarfyrirlestur
þingsins sem kenndur er við Asmund
Laerdal og hlaut við það sama tækifæri
Laerdal-viðurkenninguna sem hann sagði
að sér þætti sérstaklega vænt um og mikill
heiður að þiggja.
Alma D. Möller var forseti þings Sam-
taka norrænna gjörgæslu- og svæfinga-
lækna og hún sagði þingið hafa verið vel
heppnað og vel sótt. „Samtökin halda slíkt
þing annað hvert ár, til skiptis á Norður-
löndunum fimm. Þetta var gríðarlegt
verkefni fyrir okkur þar sem við erum
einungis 46 félagar í Svæfinga- og
gjörgæslulæknafélagi Íslands. Þingið
var mjög viðamikið, og 8-9 salir í gangi
samtímis. Auk fyrirlestra voru haldnar
vinnubúðir og fullkomin hermiþjálfun
en til þess fengum við aðstoð frá fremstu
hermisetrum í Noregi og Danmörku. Það
er tilfinnanlegt hvað okkur vantar hermi-
og þjálfunarsetur á Íslandi en unnið er að
því að koma slíku á laggirnar. Við fram-
kvæmd þingsins gekk allt upp og menn
eru yfir sig ánægðir með hvernig til tókst
og nú rignir þakkarbréfunum yfir okkur
og ráðstefnuskrifstofuna, Athygli ráð-
stefnur. Einnig var mönnum tíðrætt um
hve aðstaðan í Hörpu er frábær.“
gjörgæslusjúklingar ólíkir innbyrðis
Jean-Louis Vincent hefur um árabil verið
einn virtasti sérfræðingur á sínu sviði
og hlotið fjölda viðurkenninga og gegnt
ýmsum ábyrgðarstöðum á glæsilegum
ferli sem spannar 40 ár. Hann er höfundur
um 800 fræðigreina og hefur ritstýrt 86
bókum um sérgrein sína. Hann er nú-
verandi ritstjóri tímaritsins Critical Care,
Current opinion in Critical Care and ICU
Management.
Vincent flutti þrjá fyrirlestra á þinginu
og ræddi meðal annars árangur klínískra
rannsókna og hvernig bæta mætti öryggi
og gæði lækninga í gjörgæslu.
„Fyrirlestur minn í dag snerist aðallega
um klínískar rannsóknir í gjörgæslulækn-
ingum og hvort við séum á réttri leið í
slíkum rannsóknum, þar sem sjónum er
fyrst og fremst beint að dánartíðni sjúk-
linga. Það hefur hingað til verið talin rétta
leiðin að horfa til dánartíðninnar í rann-
sóknum á árangri í gjörgæslulækningum
en það má vel vera að það sé ekki rétta
nálgunin. Gjörgæslusjúklingar eru mjög
ólíkir innbyrðis og við teljum núna að rétt-
ara sé að velja sjúklingahópa til rannsókna
útfrá lífsmörkum, tilteknum sjúkdómum
og með því að horfa á aðra þætti en
einungis lífslíkur. Hindrun líffærabilunar
gæti, til dæmis, verið betri viðmiðun en
dánartíðni. Við sjáum líka viðleitni til að
staðla meðhöndlun en það getur verið
vandkvæðum bundið þar sem sjúklingar
okkar þurfa ólíka meðferð. Við þurfum
ennþá góða lækna við rúmstokkinn sem
geta metið ástand sjúklingsins.
Í erindi mínu í gær lagði ég einmitt
áherslu á einstaklingsbundnar lækningar
og ég tel það skipta miklu máli að átta sig
á því að fólkið sjálft getur haft veruleg
áhrif á árangur lækninganna. Þar skipta
öryggi og gæði þjónustunnar höfuðmáli.
Tölvukerfi og tæknibúnaður koma ekki í
stað fólksins en geta sannarlega stuðlað
að betri þjónustu. Við munum því ekki
vera meðhöndluð af vélum í framtíðinni,
að minnsta kosti ekki í fyrirsjáanlegri
framtíð.“
Teymisvinna og samskipti
„Öryggi og gæði eru lykilatriði í nútíma
lækningum og styðja hvort annað,“ segir
Vincent.
„Læknisfræðin hefur tileinkað sér
aðferðir og staðla við mat á öryggi úr
farþegaflugi en sú grein hefur verið í
fararbroddi hvað öryggi varðar. En þegar
eitthvað fer úrskeiðis er ekki leitað að
sökudólgi heldur farið í saumana á
því hvað gerðist og reynt að skoða og
ræða mistökin af hreinskilni og endur-
skipuleggja í kjölfarið verklagsreglur svo
mistökin endurtaki sig ekki. Í okkar sér-
grein þurfum við að hafa tékklista yfir
grundvallaratriði en um leið að gæta að
því að slíkir listar verði ekki of langir eða
smámunasamir. Þá hætta þeir að þjóna
tilgangi sínum. Ekki er síður mikilvægt að
halda opnum samskiptum á milli okkar
sem vinnum að lækningum rétt eins og
flugstjóri og flugmaður vinna saman og
gæta hvor að öðrum. Hjúkrunarfræðingur
er í mínum huga mjög mikilvægur hluti
teymisins og ég kann sannarlega vel að
„Þurfum að efla teymisvinnu“
Segir Jean-Louis Vincent heiðursgestur á
þingi norrænna svæfinga- og gjörgæslulækna
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson