Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2014, Síða 35

Læknablaðið - 01.04.2014, Síða 35
LÆKNAblaðið 2014/100 235 Ú R P E n n a S T J Ó R n a R M a n n a l Í Nýsköpun á heilbrigðissviði Stjórn lÍ Þorbjörn jónsson, formaður orri Þór ormarsson, varaformaður Magnús Baldvinsson, gjaldkeri Salome Á. Arnardóttir, ritari Björn Gunnarsson Guðrún jóhanna Georgsdóttir Magdalena Ásgeirsdóttir Ólöf Birna Margrétardóttir Þórarinn Ingólfsson Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Nýverið undirritaði Nýsköpunarmið- stöð Íslands samkomulag við Samband sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Samkomulagið kveður á um stuðning við frumkvöðla og sprota í heilbrigðistækni auk þróunar á heilbrigðistækniklasa. Um 40% af fyrirtækjum í hlutaeigu Nýsköp- unarsjóðs eru tengd heilbrigðismálum og í dag eru rekin fjögur frumkvöðlasetur á vegum sjóðsins. Markmið setranna er að veita frumkvöðlum aðstöðu, skapandi um- hverfi, tengslanet og faglega ráðgjöf til að vinna að nýsköpun. Hugtakið heilbrigðistækni er vítt og getur átt við allt sem tengist líf- og læknis- fræði og miðar að því að bæta líðan og heilsu manna, hvort sem það eru lyf, lækningatæki, tölvutækni eða búnaður er tengist greiningu eða meðferð. Með klasa í þessu samhengi er átt við þyrpingu fyrirtækja í tengdum atvinnu- greinum. Stjórnvöld, rannsóknastofnanir, fjárfestar og menntastofnanir tengjast svo þessum klösum. Dæmi um klasa á Norðurlöndum er Medicon Valley, heilbrigðisklasi á Skánar- og Kaupmannahafnarsvæðinu, með um 280 líf- og heilbrigðistæknifyrirtæki, auk tengsla við 32 spítala. Annað dæmi er svo Oslo Medtech sem hefur það að markmiði að styrkja þróun alþjóðlegs samkeppnis- hæfs heilbrigðistæknigeira í Noregi. Nýsköpun fer oftar en ekki í gegnum svokölluð sprotafyrirtæki. Fyrir utan aug- ljósa vísun í sprota, það er eitthvað sem vex og dafnar, hefur heitið líka lagalega og praktíska tilvísun. Sprotafyrirtæki fá endurgreiðslu frá skatti, afslætti hjá stofn- unum eins og Evrópsku lyfjastofnuninni og geta sótt um styrki í innlenda og erlenda sjóði. Grundvöllur fyrir nýsköpun með þátt- töku lækna er að mörgu leyti góður á Íslandi. Margar forsendur þess að skapa verðmæti byggð á vísindastarfi í tengslum við háskóla og heilbrigðisstofnanir eru til staðar. Hér á landi eru læknar vel mennt- aðir og við njótum þess að við fáum til landsins sérfræðilækna með menntun frá mismunandi löndum, sem eykur víðsýni. Hér er sterkt tengslanet milli manna og stofnana sem styttir og einfaldar öll sam- skipti. Það eru þegar allmörg sprotafyrirtæki sem tengjast læknum á Íslandi. Dæmi um slík eru: Kerecis: sárameðferð með fiskroði Lipid Pharmaceuticals: lyfjaþróun MentisCura: greining taugasjúkdóma Nox medical: svefnrannsóknir Oculis: augnlyfjarannsóknir Þessi listi er ekki tæmandi en hann gefur hugmynd um þá fjölbreytni sem er til staðar. Hvernig á að standa að nýsköpun og hverskonar umgjörð þarf að vera til þess að sprotafyrirtæki vaxi og dafni? Undirritaður hefur reynslu af nýsköpun í gegnum sprotafyrirtæki sem starfað hef- ur frá árinu 2009. Fyrirtækið var stofnað utan um verkefni sem óx útfrá rannsókn- um við Háskóla Íslands. Reynslan hefur sýnt að margt var gert rétt þegar farið var af stað með það. Bæði Háskólinn og Landspítali voru meðal stofnenda fyrirtækisins og eiga hlut í því. Sterkt fyrirtæki í iðnaði var fengið til samstarfs og í stjórn fyrirtækisins voru skipaðir einstaklingar með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu sem nýtt- ist við mismunandi hliðar verkefnisins. Frá upphafi voru sett skýr markmið. Strax var farið að huga að markaðsmálum og fengin ráðgjöf sérfræðinga bæði hér- lendis og erlendis til þess að móta stefnu fyrirtækisins, enda mikilvægt að þekkja eigin takmörk og gott samstarf við ráðgef- andi aðila er ómetanlegt. Fyrirtækið hefur notið styrkja frá opinberum sjóðum og lagt hefur verið til hlutafé. Enn sem komið er hefur ekki verið leitað í alþjóðlega sjóði en í tengslum við Evrópu- og Norðurlandasamstarf eru fjársterkir sjóðir sem veita styrki til samstarfsverkefna. Góð samskipti við lækna, fyrirtæki og stofnanir, svo sem Landspítala, Háskólann og Lyfjastofnun, er lykilatriði og mikil verðmæti felast í beinum tengslum sem myndast milli atvinnulífs og vísindastarfa háskóla og heilbrigðisstofnana þegar unnið er að sameiginlegu verkefni. Landspítalinn veitti nýlega í fyrsta skipti þrjá veglega nýsköpunarstyrki til starfsmanna spítalans. Það er hvatning fyrir lækna, og til þess gert að efla vísinda- og þróunarstarf innan spítalans. Ég hvet alla lækna til þess að stunda nýsköpun og þó að endastöðin sé óviss er ferðalagið bæði skemmtilegt og gefandi. Hafa verður þó í huga að nýsköpun kostar og árangur sprotafyrirtækja verður ekki til á einni nóttu. Þó svo að enginn beinn fjár- hagslegur ávinningur myndist í einstökum verkefnum, verður til þekking og reynsla sem getur nýst út fyrir verkefnið sjálft. Orri Þór Ormarsson Höfundur er barnaskurðlæknir á Landspítala og í stjórn Læknafélags Íslands. otormarsson@hotmail.com Cloxabix (celecoxib) er notað til meðhöndlunar á einkennum slitgigtar, iktsýki, og hryggiktar Góður liðstyrkur til meðferðar við gigt

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.