Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.04.2014, Qupperneq 42

Læknablaðið - 01.04.2014, Qupperneq 42
242 LÆKNAblaðið 2014/100 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Meðferð alvarlega veikra sjúklinga er stundum ábótavant á heilbrigðisstofnun- um þar sem starfsmönnum getur sést yfir merki um versnandi ástand sjúklinga, sem kemur í veg fyrir að þeir fái nauðsynlega meðferð í tæka tíð.1-4 Þetta getur átt við bráðadeildir jafnt sem legudeildir. Örfáar klukkustundir geta skipt sköpum fyrir sjúklinginn og samfélagið. Hætta á alvar- legum aukaverkunum getur margfaldast á skömmum tíma þar sem sjúklingurinn fær ekki rétta meðferð og kostnaður sam- félagsins getur aukist frá nokkrum tugum þúsunda króna upp í margar milljónir á sama tíma. Þótt það geti verið erfitt að greina alvarlegar breytingar á lífsmörkum í vissum tilvikum, er oft um að ræða þætti sem reglulega er fylgst með á sjúkrastofnunum, svo sem loftvegi, öndun og blóðrás.1,3 Í mörgum tilvikum þar sem ástand sjúklings er orðið það alvarlegt að bráðra endurlífgunaraðgerða er þörf, hefði verið hægt að bregðast við á tiltölulega einfaldan hátt, svo sem með súrefnisgjöf, sýklalyfjagjöf og/eða vökvagjöf í æð ef breyting á ástandi sjúklings hefði verið greind í tæka tíð.5,6 Skortur á þekkingu, færni og þjálfun til að átta sig á að um bráðhættulegt sjúkdómsástand geti verið að ræða og skortur á samskiptum milli heil- brigðisstarfsmanna og þess að yngri og óreyndari starfsmenn veigra sér við að bera ástand sjúklings undir reyndari heilbrigðisstarfsmenn, er meðal þess sem skýrir seinbúna greiningu og meðferð alvarlega veikra sjúklinga á heilbrigðis- stofnunum.1,7 Það er því mikilvægt að leggja áherslu á kennslu og þjálfun heilbrigðisstarfsfólks í greiningu og meðferð bráðveikra.1,7 Á síðustu árum hafa verið uppi háværar raddir víða um heim um að bæta slíka þjálfun, enda hefur fram að þessu fremur lítil áhersla verið lögð á slíka hæfni í námsefni hjúkrunarfræðinga og lækna.7-11 Bretar hafa skilgreint hvaða þekking og færni sé nauðsynleg í slíku námi (ACUTE) og í Bandaríkjunum hefur einnig verið unnið að bættri kennslu læknanema og unglækna á þessu sviði.1,12 Nýlega var sett á fót námskeið, kallað Very Basic, sem er sérsniðið fyrir læknanema á síðustu önn námsins (Basic Assessment & Support of Critically Ill Patients for Medical Students & Interns) og unglækna.7,9 Very Basic er svip- að uppbyggt og ALS-endurlífgunarnám- skeiðið með verklegum og munnlegum æfingastöðvum, en þetta námskeið leggur fyrst og fremst áherslu á greiningu og meðhöndlun alvarlegra veikinda áður en þau leiða til lostástands eða hjartastopps þótt einnig sé kennd endurlífgun. Það er því grundvallarmunur á Very Basic-námskeiðinu og ALS-endurlífgunar- námskeiðinu þar sem það fyrra beinist fyrst og fremst að fyrirbyggjandi aðgerð- um, snemmbúinni greiningu og meðferð, en það síðarnefnda er einskonar slökkvilið sem tekur við þegar í óefni er komið. Hér er þó ekki verið að gera lítið úr mikilvægi ALS-námskeiðsins heldur lögð áhersla á að námskeiðin eru ólík á margan hátt og bæði nauðsynleg fyrir kennslu og þjálfun læknanema og unglækna. Upphafsmenn þessa námskeiðs voru tveir prófessorar við svæfinga- og gjör- gæsludeild kínverska háskólans í Hong Kong. Þótt það sé upprunnið í Asíu er námskeiðið byggt á vestrænni læknis- fræði og stýrihópur BASIC er skipaður mörgum heimsþekktum læknum frá evrópskum háskólaspítölum. Þeir Charles Gomersall og Gavin Joynt (mynd 1) voru á ársfundi Skurðlækna- og Svæfinga- & gjörgæslulæknafélags Íslands í mars 2012 og þjálfuðu nokkra sérfræðilækna í að kenna BASIC-námskeiðið sem er fyrir deildarlækna í sérnámi í svæfinga- og gjörgæslulækningum. Einnig var haldið Basic-námskeið fyrir um 30 unglækna um sama leyti. Haustið 2012 fóru þrír sér- fræðilæknar til Hong Kong til þjálfunar í kennslu Very Basic-námskeiðsins eins og sagt var nýlega frá í þessu blaði.13 Fyrsta Very Basic-námskeiðið var haldið hér heima í apríl 2013 og tóku 25 læknanemar á 6. ári þátt í því. Námskeiðið fékk góðar viðtökur þátttakenda og var endurtekið í júní fyrir 20 læknanema og unglækna á Landspítala. Síðan var ákveðið að námskeiðið yrði hluti af námsefni læknanema í svæfinga- og gjörgæslulækningum haustið 2013. Very Basic-námskeiðið fjallar ekki bara um gjörgæslulækningar heldur er það ekki síður miðað við þarfir bráðalækna, lyf- lækna og skurðlækna. Ennfremur gagnast það heimilislæknum, ekki síst þeim sem starfa úti á landsbyggðinni. Það er því ætlun okkar sem staðið hafa að innleiðslu þessa náms fyrir læknanema og unglækna Þjálfun í greiningu og fyrstu meðferð bráðra alvarlegra veikinda Gísli Heimir Sigurðsson prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, yfirlæknir á svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítala gislihs@landspitali.is Mynd 1. Charles Gomersall og Gavin Joynt prófessorar í Hong Kong eru höfundar námskeiðanna Very Basic og Basic. Myndin er tekin á Þingvöllum 2012 þegar þeir komu og aðstoðuðu við að koma Basic-námskeiðinu af stað á Íslandi.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.