Læknablaðið - 01.04.2014, Qupperneq 50
250 LÆKNAblaðið 2014/100
NOMESKO (Nordisk Medicinalstatistisk
Komité; nowbase.org) er nefnd undir
Norrænu ráðherranefndinni sem safnar
gögnum um lyfjasölu og fleiri þætti heil-
brigðismála á Norðurlöndum og gefur
út í bæklingum og á netinu. Þessi gögn
gera samanburð á lyfjasölu milli Norður-
landanna mögulegan. Einnig er hægt að
skoða lyfjanotkun í Danmörku á med-
stat.dk en slíkur aðgangur er ekki í boði
annars staðar á Norðurlöndum. Á vegum
OECD eru einnig gefnar út skýrslur um
lyfjanotkun sem ná til mun fleiri landa.
Ekki er öruggt að beitt sé nákvæmlega
sömu aðferðafræði í öllum löndunum en
samt gefa þessar upplýsingar þokkalega
góða mynd.
Fram kemur í nýjustu skýrslu NO-
MESKO að heildarsala allra lyfja er mest í
Svíþjóð og Finnlandi en Ísland sker sig úr
með mestri sölu tauga- og geðlyfja.
Í þessum pistli er fjallað um nokkra
valda lyfjaflokka en öðrum verða gerð skil
síðar.
Lyf við sykursýki
Í frumbernsku lyfjafaraldsfræði kom í ljós
að lyf við sykursýki, bæði insúlínháðri
og fullorðinssykursýki (tegund 1 og 2),
voru mun minna notuð á Íslandi en í
nálægum löndum. Þetta vakti ugg um að
sjúkdómurinn væri vanmeðhöndlaður
hér á landi. Við nánari skoðun kom hins
vegar í ljós að sykursýki er sjaldgæfari hér
en í samanburðarlöndunum. Þetta skýrði
muninn í lyfjanotkun og hann hefur ekki
breyst mikið síðan.
Verkjalyf
Þessi lyf eru mikið notuð við alls kyns
verkjum og bólgum og hluti lyfjanna
er seldur án lyfseðils. Ekki er mikill
munur milli Norðurlandanna í heildar-
notkun þessara lyfja, mest er notkunin í
Danmörku, minnst í Noregi og hin löndin
liggja þar á milli. Mikil notkun díklófen-
aks (Voltaren og fleira) á Íslandi vekur
þó athygli en þetta lyf er í raun coxíb og
hefur meiri aukaverkanir en sum önnur
verkjalyf.
Sterk verkjalyf af flokki ópíata eru
notuð við meðalsvæsnum og miklum
verkjum. Á Norðurlöndum er heildar-
notkun þessara lyfja minnst í Finnlandi
en nokkru meiri og svipuð í öllum hinum
löndunum. Morfín er mest notað, þá
tramadól en fentanýl og búprenorfín reka
lestina.
Svefnlyf og róandi lyf
Þegar kemur að svefnlyfjum og ró-
andi lyfjum, ATC-flokkunum N05CD
(benzódíazepín) og N05CF (z-lyfjunum
zópíklón og zolpíden), hefur Ísland
verulega sérstöðu. Heildarnotkun þess-
ara lyfja er minnst í Danmörku (árið
2012: 18 DDD/1000 íbúa/dag) en lang-
mest á Íslandi (74 DDD/1000 íbúa/dag)
og hin löndin eru með 40-50 DDD (skv.
NOMESKO). Við erum þannig með 2-3
sinnum meiri notkun þessara lyfja en hin
Norðurlöndin. Þarna vega z-lyfin þyngst
og mest notaða lyfið er zópíklón (Imovane
og fleiri). Árið 2012 var notkun z-lyfja
næstum fimm sinnum meiri á Íslandi en í
Danmörku (skv. NOMESKO).
Þessi mikla notkun svefn- og róandi
lyfja á Íslandi á sér að minnsta kosti 35
ára sögu og er verulegt áhyggjuefni. Þessi
lyf eru ekki og voru aldrei ætluð nema til
skammtímanotkunar. Í Sérlyfjaskrá segir
um Imovane: „Meðferð á ekki að vara
lengur en í 2-4 vikur“. Það eru hins vegar
dæmi um marga einstaklinga þar sem
lyfin eru notuð mánuðum og jafnvel árum
saman án hléa, sem eykur mjög hættu á
þolmyndun, ávana og fíkn. Ef notkun er
hætt skyndilega koma fráhvarfseinkenni
sem geta verið mikil og jafnvel hættuleg.
Þessi lyf henta illa gömlu fólki og valda
iðulega rugli og öðrum geðrænum
einkennum hjá þeim aldursflokki og geta
aukið hættu á byltum og beinbrotum.
Samtímis notkun áfengis eykur verulega
á verkanir lyfjanna, stundum með mikilli
ölvun og minnisleysi. Margar aðrar erfiðar
aukaverkanir fylgja þessum lyfjum og þó
að þau hjálpi fólki að sofa rýra þau svefn-
gæði. Að endingu má benda á að notkun
lyfja af þessum flokki gerir fólk sljótt og
dregur úr viðbragðsflýti sem skapar hættu
við akstur og stjórnun eða vinnu við alls
kyns vélar.
Flest bendir til að svefnlyf og róandi lyf
hafi verið ofnotuð og misnotuð á Íslandi
áratugum saman og heildarnotkunin
hér er margföld á við það sem þekkist í
nálægum löndum.
Ofnotkun lyfja kallar á skýringar.
Hvaða skýringar liggja að baki þessari
miklu notkun svefnlyfja og róandi lyfja
sem lýst er að ofan? Einungis er mögulegt
að velta fyrir sér þeim möguleikum sem
virðast nærtækastir. Skýringin virðist
meðal annars liggja í meiri fjölda sjúklinga
auk stærri meðalskammta (samanburður
við Danmörku). Skýringarnar gætu líka að
hluta til legið í of mikilli sjálfvirkni í lyfja-
ávísunum, meðal annars vélskömmtun, og
þar með skorti á utanumhaldi. Fleira gæti
einnig komið til.
Hvað er til ráða?
Meðan við þekkjum ekki orsakir þess-
arar miklu notkunar svefnlyfja og róandi
lyfja hér á landi er erfiðara að vinna gegn
henni. Þess vegna er brýnt að gerðar verði
nauðsynlegar rannsóknir sem gætu út-
skýrt sérstöðu Íslands og afleiðingar óhóf-
legrar lyfjanotkunar.
Hvað læknaráp varðar þá bindur Emb-
ætti landlæknis miklar vonir við aukinn
aðgang lækna að lyfjasögu einstaklinga en
telur þó að fleira þurfi að koma til.
Í þessari stöðu er einungis hægt að
brýna fyrir læknum að sýna aðgát og
aðhald í lyfjaávísunum, ávísa hóflegum
skömmtum til takmarkaðs tíma, vera á
varðbergi fyrir lyfjafíklum og læknaráp-
urum og leita lausna án lyfja.
Eru sum lyf ofnotuð á Íslandi?
Magnús Jóhannsson
læknir
magnus@landlaeknir.is
Ólafur b. Einarsson
sérfræðingur
lárus S. Guðmundsson
lyfjafræðingur
leifur bárðarson
læknir
F R Á E M b æ T T i l a n d S l æ k n i S 4 . p i s t i l l