Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.2014, Page 7

Læknablaðið - 01.06.2014, Page 7
LÆKNAblaðið 2014/100 327 R i T S T J Ó R n a R G R E i n Á hverju ári koma nokkur þúsund manns á bráðadeild Landspítalans með áverka á höfði. Flestir koma með yfirborðsáverka án þess að um áverka á heila sé að ræða. Nokkur hópur er hins vegar með áverka á heila sem eru misalvarlegir. Oft og tíðum getur verið mjög erfitt að átta sig á hvort um raunverulegan áverka á heila sé að ræða í vægari höfuðáverkunum. Í þessu tölublaði Læknablaðsins birtist athyglisverð grein um komur á bráðadeild Landspítala vegna áverka á höfði.1 Sérstaða hennar umfram flestar aðrar sambærilegar rann- sóknir felst í því að þýðið eru allir íbúar Reykjavíkur sem komu með höfuðáverka á bráðadeild Landspítala á rannsóknartíma- bilinu. Flestar sambærilegar rannsóknir skoða ákveðinn hóp, til að mynda þá sem fá alvarlega áverka og eru lagðir inn á spítala. Í þessari rannsókn, sem er aftur- skyggn, koma fram margar mikilvægar staðreyndir um höfuðáverka. Í niðurstöð- unum kemur fram hvað vel hefur verið gert til þess að fækka höfuðáverkum. Að mínu mati er gildi rannsóknarinnar mikið fyrir frekari skipulagningu forvarna vegna höfuðáverka. Niðurstöðurnar benda til þess að mikið hafi áunnist í að fækka áverkum á höfuð síðustu áratugi. Mikið hefur verið unnið í forvarnarmálum og bættu öryggi við leik og störf einstaklinga, ásamt samgöngu- málum. Langar mig sérstaklega að minnast á hjálmanotkun. Notkun hjálma við skíða- iðkun og útreiðar er orðin almenn, einnig hefur notkun reiðhjólahjálma stóraukist. Samkvæmt nýlegri könnun VÍS nota í dag 88% hjólreiðafólks hjálma.2 Bætt öryggi við ýmisskonar atvinnustarfsemi eins og sjó- mennsku og byggingariðnað hefur fækkað höfuðáverkum við vinnu, meðal annars með öryggishjálmanotkun. Rannsóknir og reynsla þeirra sem þekkja til höfuðáverka staðfesta að hjálmar fækka alvarlegum höf- uðáverkum.3 Hjálmar koma þó ekki í veg fyrir alla áverka. Einstaka sinnu m heyrast efasemdaraddir um gildi hjálma en fáfræði um eðli höfuðáverka á stóran þátt í þeim efasemdaröddum. Mikilvægasta baráttu- málið fyrir fækkun höfuðáverka eru for- varnir! Lítið finnst mér hafa borið á umræðu í þjóðfélaginu um einn stóran áhættuþátt fyrir höfuðaáverkum, sem er áfengi og önnur vímuefni. Ölvaður einstaklingur útsetur sig fyrir margfalt meiri áhættu fyrir höfuðáverkum og áverkum almennt en sá sem er allsgáður við sömu athafnir.4 Helgarnætur á bráðamóttökum sem geta yfirfyllst af ölvuðu fólki sem hefur slas- ast, eru til marks um þetta. Þar getur slys eða ofbeldisáverki undir áhrifum áfengis gjörbreytt lífi einstaklings til frambúðar. Áherslur á forvarnir innan þessa mála- flokks eru mjög mikilvægar. Hvað varðar matið á alvarleika höfuð- áverka gætir oft misskilnings. Áverkar sem teljast vægir við bráðamat eftir slys, eins og heilahristingur, eru stundum alls ekki svo vægir þegar litið er til langs tíma. Heilahristingur er áverki á heila og veldur truflun á starfsemi heilans. Oftast er þessi truflun tímabundin en stundum eru afleið- ingarnar og einkennin langvarandi. Erfitt getur verið að átta sig á því í byrjun hverjir sleppa vel og hverjir ekki. Hér á landi eru heilaskaðateymi bæði á Grensásdeild og Reykjalundi þar sem einstaklingar með eftirköst eftir höfuðáverka geta leitað. Stór hluti þeirra sem fá áverka á höfuð samkvæmt rannsókninni eru börn. Heila- hristingur hjá börnum þar sem heilinn er í þroska getur leitt til þroska- og hegðunar- vandamála fyrir barnið. Leitum því allra leiða til að minnka líkur á að börnin okkar verði fyrir áverkum á höfuð. Að auki eru í þessum hópi börn sem orðið hafa fyrir áverkum sem teljast til ofbeldisáverka (non accidental head injury). Það er sérstaklega mikilvægt að missa ekki af slíku þar sem hættan á endurteknum áverkum, oft lífs- hættulegum, er veruleg. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar- innar stöndum við okkur betur á Íslandi hvað tíðni áverka á höfuð varðar en flest lönd sem við miðum okkur við. Markmiðið hlýtur þó að vera að standa sig enn betur. Lengi getur gott batnað! 1. Gísladóttir EH, Kárason S, Sigvaldason K, Úlfarsson E, Mogensen B. Komur á bráðadeild Landspítala vegna áverka á höfði. Læknablaðið 2014; 100: 331-5. 2. vis.is/umvis/frettir/frett/2014/05/23/Hjolreidafolki- med-hjalm-fjolgar/ - maí 2014. 3. Thompson DC, Rivara FP, Thompson R. Helmets for preventing head and facial injuries in bicyclists. Cochrane Database Syst Rev 2000; 2: CD001855. 4. Kool B, Ameratunga S, Jackson R. The role of alcohol in unintentional falls among young and middle-aged adults: a systematic review of epidemiological studies. Inj Prev 2009; 15: 341-7. We can do better to prevent head injuries Ingvar Hákon Ólafsson, neurosurgeon, Landspítali University Hospital, Reykjavík, Iceland. Assistant professor, Faculty of Medicine, University of Iceland. Gerum betur - fækkum höfuðáverkum Ingvar Hákon Ólafsson heila- og taugaskurðlæknir á Landspítala, stunda- kennari við læknadeild Háskóla Íslands ingvarh@landspitali.is Meðferð við ofnæmiskvefi1 Meðferð við ofnæmiskvefi1 flútíkasónfúróat Hver sem ástæðan er, hver sem árstíðin er * Notist eingöngu í nef Ja nú ar 2 01 4 IS /F F/ 00 01 d/ 12 (1 ) AVAMYS nefúði, dreifa. Hver úðaskammtur gefur 27,5 míkrógrömm af flútíkasónfúróati. Ábendingar: Avamys er ætlað til notkunar hjá fullorðnum, unglingum og börnum (6 ára og eldri), Avamys er ætlað til meðferðar við einkennum ofnæmiskvefs. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og unglingar (12 ára og eldri): Ráðlagður upphafsskammtur er tveir úðaskammtar í hvora nös einu sinni á dag. Þegar fullnægjandi stjórn á einkennum hefur náðst gæti minni skammtur, einn úðaskammtur í hvora nös, nægt til viðhaldsmeðferðar. Skammturinn skal stilltur á minnsta skammtinn sem viðheldur fullnægjandi stjórn á einkennum. Börn (6 til 11 ára): Ráðlagður upphafsskammtur er einn úðaskammtur í hvora nös einu sinni á dag. Sjúklingar sem sýna ekki fullnægjandi svörun við einum úðaskammti í hvora nös einu sinni á dag geta notað tvo úðaskammta í hvora nös einu sinni á dag. Þegar fullnægjandi stjórn á einkennum hefur náðst er mælt með því að minnka skammtinn niður í einn úðaskammt í hvora nös, einu sinni á dag. Börn yngri en 6 ára: Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum yngri en 6 ára. Öryggi og verkun hjá þessum hópi hafa ekki verið vel staðfest. Aldraðir sjúklingar og sjúklingar með skerta nýrnastarfsemi: Engin þörf er á aðlögun skammta hjá þessum hópum. Sjúklingar með skerta lifrarstarfsemi: Engin þörf er á aðlögun skammta þegar um væga eða miðlungsmikla skerðingu á lifrarstarfsemi er að ræða. Engar upplýsingar liggja fyrir um sjúklinga með mikið skerta lifrarstarfsemi. Frábendingar Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. MARKAÐSLEYFISHAFI: Glaxo Group Ltd, 980 Great West Road, Brentford, Middlesex, TW8 9GS, Bretland. Fulltrúi markaðsleyfishafa: GlaxoSmithKline ehf. Þverholti 14, 105 Reykjavík, Ísland, Sími 530 3700, Dagsetning endurskoðunar textans: apríl 2013. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá –www.serlyfjaskra.is Pakkningar og verð (janúar 2014) Avamys nefúði 27,5 mcg/sk 120 skammtar R,G 2.849 kr Aukaverkanir má tilkynna á vef Lyfjastofnunar: www.lyfjastofnun.is/Aukaverkanir/tilkynna eða til GlaxoSmithKline í síma 530 3700. Heimildir: 1. www.serlyfjaskra.is. Nykær 68 DK-2605 Brøndby T +45 36 35 91 00 F +45 36 35 91 01 www.glaxosmithkline.dk

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.