Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.2014, Blaðsíða 29

Læknablaðið - 01.06.2014, Blaðsíða 29
LÆKNAblaðið 2014/100 349 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R alltaf nálægur á bráðasjúkrahúsi dag sem nótt og þessi heimur, sérstaklega gjörgæsl- unnar, hentar vel sem umgjörð utan um þá hluti sem ég nefndi.“ Bókin var í smíðum í fimm og hálft ár að sögn höfundarins. „Ég byrjaði haustið 2008 og lauk henni ekki fyrr en fyrir nokkrum vikum,“ segir Ari. „Því veldur að bæði kunni ég lítið til verka og svo hafði ég ekki mikinn tíma aflögu. En ég held að þessi langi ritunartími geti verið kostur því með honum fékk sagan tíma til að þroskast.“ Læknaróman með snúningi Sagan hefst árið 2008 og henni lýkur 2011 þannig að hún gerist samhliða hruninu og kannski vissri endurreisn líka. „Það er ákveðin speglun í sögunni sem ég get ekki sagt frá því þá er ég að ljóstra of miklu upp,“ segir Ari. Hann kveðst oft fá spurn- ingu um hverskonar bók þetta sé en eiga erfitt með að skilgreina hana. „Ég hef sagt að þetta sé læknaróman með snúningi en þá er vægt til orða tekið. Hún er að hluta til spennusaga, blanda af þessu tvennu og fleira til. Lífsmörk er viðburðarík saga og í henni verða heilmikar sviptingar.“ Ég spyr Ara hvort honum hafi þótt vanta sögu þar sem tilfinningalegar að- stæður lækna væru í fókus. „Ég vil ekki segja að það hafi verið upphaflegi tilgangurinn en núna þegar ég lít yfir söguna held ég að margt í henni kallist á við vaxandi umræðu í samfé- laginu um heilsu lækna, ekki síst andlega heilsu. Í síðasta tölublaði Læknablaðsins kom fram að heilsa lækna hefur verið til umræðu á fjórum fundum það sem af er þessu ári. Þar eru vaxandi blikur á lofti með hluti eins og kulnun í starfi sem virðist vera mjög útbreidd og alls ekki fara minnkandi. Þar kom fram að læknar hafa tilhneigingu til að leita sér ekki hjálpar heldur greina og meta sjálfa sig, oft með hörmulegum árangri, og eru hræddir við að sýna veikleikamerki. Þetta kemur að einhverju leyti fram í sögunni. Hún er þó ekki ádeila á Landspítalann eða eitthvað slíkt en hún hlýtur samt að bregða ljósi á kerfi sem krefst mikilla afkasta, óeðlilegs vinnutíma og heldur kannski aldrei alveg nógu vel utan um starfsfólkið. Þannig að- stæður bjóða upp á kulnun.“ Aðalsöguhetjan er afburðamaður á sínu sviði en Ari segir hetjur ekki áhugaverðar nema í þeim sé einhver brotalöm og það sé tilfellið með okkar mann. „Ég tek það þó fram að bókin er ekki bara um lækna því við sögu koma ýmsar stéttir og hún gerist ekki bara á Landspítalanum, heldur mjög víða,“ segir hann. „Þannig breytist sviðs- myndin þegar líður á söguna og staðir eins og Laugarvatn, Ölfus, Tórontó, Bos- ton, Róm og Austurlönd koma við sögu. Og fjölskylda söguhetjunnar fær eðlilega mikið rúm.“ Gerir strangar kröfur á ritvellinum Af því sem ég er búin að lesa í bókinni tek ég eftir að Ari notar þar fjölbreytt orðalag. Er hann alinn upp við það? „Ég er alinn upp við áhuga á íslensku máli. Faðir minn, Jóhannes Arason útvarpsþulur, var hreintungumaður og ég bý auk þess að því að hafa haft góða íslenskukennara í menntaskóla.“ Ég bið Ara að segja svolítið frá fólkinu sínu. „Pabbi var frá Ytra-Lóni á Langanesi og móðir mín, Elísabet Einarsdóttir, var frá Kárastöðum í Þingvallasveit. Ég er kvænt- ur Jóhönnu F. Jóhannesdóttur hjúkrunar- framkvæmdastjóra á Heilbrigðisstofnun Vesturlands og á fjóra stráka, tvo af fyrra hjónabandi, Jóhannes og Árna Gaut og tvo með Jóhönnu, Egil og Teit,“ svarar hann og tekur fram að eldri drengirnir séu orðnir fjölskyldumenn og þeir yngri séu í föður- húsum. En eru rithöfundar og skáld í ætt- inni? „Ekki nálægt mér. Ég er reyndar, að því er talið er, 6. ættliður frá séra Jóni Þorláks- syni á Bægisá í móðurætt. Ætt föður míns kvíslast um Þingeyjarsýslur og þar eru auðvitað allir skáld!“ Inntur eftir öðrum áhugamálum en ævistarfinu og skriftunum svarar Ari: „Ég hef lagt stund á hestamennsku í nokkuð langan tíma en síðasta árið hefur hún orðið að þoka fyrir skrifunum. En ég er svolítið farinn að ríða út aftur þessa dagana.“ Dreymir hann um að verða einhvern- tíma bara rithöfundur? „Ég er nú kannski að brenna inni með það vegna aldurs. En ég held örugglega áfram að stunda skapandi skrif. Það hefur reyndar hentað mér ágætlega að sinna þeim í hjáverkum. Þar hef ég haft þá stefnu að líta á mig sem atvinnurithöfund í hlutastarfi, frekar en bara tómstundarithöfund. Þar með geri ég strangar kröfur til mín á ritvellinum líka, sem er kannski ein af ástæðum þess að sagan Lífsmörk var fimm ár í smíðum.“ Kápuna á kiljunni hannaði Alexandra Buhl. Forlagið gaf bókina út á dögunum. Ekta sumarlesning fyrir lækna, heilbrigðisstarfsmenn og aðra landsmenn.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.