Læknablaðið - 01.06.2014, Qupperneq 29
LÆKNAblaðið 2014/100 349
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
alltaf nálægur á bráðasjúkrahúsi dag sem
nótt og þessi heimur, sérstaklega gjörgæsl-
unnar, hentar vel sem umgjörð utan um þá
hluti sem ég nefndi.“
Bókin var í smíðum í fimm og hálft ár
að sögn höfundarins. „Ég byrjaði haustið
2008 og lauk henni ekki fyrr en fyrir
nokkrum vikum,“ segir Ari. „Því veldur
að bæði kunni ég lítið til verka og svo
hafði ég ekki mikinn tíma aflögu. En ég
held að þessi langi ritunartími geti verið
kostur því með honum fékk sagan tíma til
að þroskast.“
Læknaróman með snúningi
Sagan hefst árið 2008 og henni lýkur 2011
þannig að hún gerist samhliða hruninu
og kannski vissri endurreisn líka. „Það er
ákveðin speglun í sögunni sem ég get ekki
sagt frá því þá er ég að ljóstra of miklu
upp,“ segir Ari. Hann kveðst oft fá spurn-
ingu um hverskonar bók þetta sé en eiga
erfitt með að skilgreina hana. „Ég hef sagt
að þetta sé læknaróman með snúningi en
þá er vægt til orða tekið. Hún er að hluta
til spennusaga, blanda af þessu tvennu og
fleira til. Lífsmörk er viðburðarík saga og í
henni verða heilmikar sviptingar.“
Ég spyr Ara hvort honum hafi þótt
vanta sögu þar sem tilfinningalegar að-
stæður lækna væru í fókus.
„Ég vil ekki segja að það hafi verið
upphaflegi tilgangurinn en núna þegar
ég lít yfir söguna held ég að margt í henni
kallist á við vaxandi umræðu í samfé-
laginu um heilsu lækna, ekki síst andlega
heilsu.
Í síðasta tölublaði Læknablaðsins kom
fram að heilsa lækna hefur verið til
umræðu á fjórum fundum það sem af er
þessu ári. Þar eru vaxandi blikur á lofti
með hluti eins og kulnun í starfi sem
virðist vera mjög útbreidd og alls ekki fara
minnkandi. Þar kom fram að læknar hafa
tilhneigingu til að leita sér ekki hjálpar
heldur greina og meta sjálfa sig, oft með
hörmulegum árangri, og eru hræddir við
að sýna veikleikamerki. Þetta kemur að
einhverju leyti fram í sögunni. Hún er þó
ekki ádeila á Landspítalann eða eitthvað
slíkt en hún hlýtur samt að bregða ljósi á
kerfi sem krefst mikilla afkasta, óeðlilegs
vinnutíma og heldur kannski aldrei alveg
nógu vel utan um starfsfólkið. Þannig að-
stæður bjóða upp á kulnun.“
Aðalsöguhetjan er afburðamaður á sínu
sviði en Ari segir hetjur ekki áhugaverðar
nema í þeim sé einhver brotalöm og það sé
tilfellið með okkar mann. „Ég tek það þó
fram að bókin er ekki bara um lækna því
við sögu koma ýmsar stéttir og hún gerist
ekki bara á Landspítalanum, heldur mjög
víða,“ segir hann. „Þannig breytist sviðs-
myndin þegar líður á söguna og staðir
eins og Laugarvatn, Ölfus, Tórontó, Bos-
ton, Róm og Austurlönd koma við sögu.
Og fjölskylda söguhetjunnar fær eðlilega
mikið rúm.“
Gerir strangar kröfur á ritvellinum
Af því sem ég er búin að lesa í bókinni
tek ég eftir að Ari notar þar fjölbreytt
orðalag. Er hann alinn upp við það? „Ég er
alinn upp við áhuga á íslensku máli. Faðir
minn, Jóhannes Arason útvarpsþulur, var
hreintungumaður og ég bý auk þess að
því að hafa haft góða íslenskukennara í
menntaskóla.“
Ég bið Ara að segja svolítið frá fólkinu
sínu.
„Pabbi var frá Ytra-Lóni á Langanesi og
móðir mín, Elísabet Einarsdóttir, var frá
Kárastöðum í Þingvallasveit. Ég er kvænt-
ur Jóhönnu F. Jóhannesdóttur hjúkrunar-
framkvæmdastjóra á Heilbrigðisstofnun
Vesturlands og á fjóra stráka, tvo af fyrra
hjónabandi, Jóhannes og Árna Gaut og tvo
með Jóhönnu, Egil og Teit,“ svarar hann og
tekur fram að eldri drengirnir séu orðnir
fjölskyldumenn og þeir yngri séu í föður-
húsum. En eru rithöfundar og skáld í ætt-
inni?
„Ekki nálægt mér. Ég er reyndar, að því
er talið er, 6. ættliður frá séra Jóni Þorláks-
syni á Bægisá í móðurætt. Ætt föður míns
kvíslast um Þingeyjarsýslur og þar eru
auðvitað allir skáld!“
Inntur eftir öðrum áhugamálum en
ævistarfinu og skriftunum svarar Ari:
„Ég hef lagt stund á hestamennsku í
nokkuð langan tíma en síðasta árið hefur
hún orðið að þoka fyrir skrifunum. En
ég er svolítið farinn að ríða út aftur þessa
dagana.“
Dreymir hann um að verða einhvern-
tíma bara rithöfundur? „Ég er nú kannski
að brenna inni með það vegna aldurs.
En ég held örugglega áfram að stunda
skapandi skrif. Það hefur reyndar hentað
mér ágætlega að sinna þeim í hjáverkum.
Þar hef ég haft þá stefnu að líta á mig sem
atvinnurithöfund í hlutastarfi, frekar en
bara tómstundarithöfund. Þar með geri ég
strangar kröfur til mín á ritvellinum líka,
sem er kannski ein af ástæðum þess að
sagan Lífsmörk var fimm ár í smíðum.“
Kápuna á kiljunni hannaði
Alexandra Buhl. Forlagið gaf
bókina út á dögunum. Ekta
sumarlesning fyrir lækna,
heilbrigðisstarfsmenn og aðra
landsmenn.