Læknablaðið - 01.06.2014, Blaðsíða 36
356 LÆKNAblaðið 2014/100
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Ráðstefna brjóstaskurðlækna sem haldin
var í Hörpu 8. og 9. maí síðastliðinn verður
lengi í minnum höfð og hefur ef til vill sett
nýjan tón.
Yfirskriftin var RRS, Risk Reducing
Strategies, eða áhættuminnkandi meðferð-
ir hjá einstaklingum í aukinni áhættu á
að fá brjósta- eða eggjastokkakrabbamein,
annaðhvort vegna ættgengra stökkbreyt-
inga eða vegna mikillar fjölskyldusögu.
Aukin áhætta vegna BRCA-stökkbreytinga
var að sjálfsögðu í brennidepli. Hug-
myndin að ráðstefnunni og aðalskipu-
leggjandinn var Kristján Skúli Ásgeirsson
en hann naut stuðnings félags norrænna
brjóstaskurðlækna (nORBS-Nordic group
of Oncoplastic and Reconstructive Breast
Surgeons) og samskonar samtaka breskra
skurðlækna (ORBS).
Skurðaðgerðir í beinni
Eitt af því sem gerði þessa ráðstefnu svo
eftirminnilega voru tvær skurðaðgerðir
sem framkvæmdar voru í beinni útsend-
ingu. Kristján Skúli Ásgeirsson skurð-
læknir hafði undirbúið skurðaðgerðirnar
og myndatöku sem var varpað frá skurð-
stofu Landspítala yfir í Hörpu. Hann lýsti
því sem gert var jafnharðan og þáði góð
ráð og uppástungur frá fundargestum
ásamt því að spjalla við þá um það sem
upp á kom í skurðaðgerðunum. Í annarri
skurðaðgerðinni var skurðlæknir frá Há-
skólasjúkrahúsinu í Helsinki, Susanna
Kauhanen, með Kristjáni Skúla í aðgerð-
inni. Hlé var gert á útsendingu á meðan
fyrirlestrar voru fluttir.
Annað sem vakti athygli var að tekin
höfðu verið viðtöl við nokkrar konur
sem gengið hafa gegnum áhættumat og
tekið ákvörðun um brjóstnám með eða án
þess að hafa fengið brjóstakrabbamein.
Kostir og gallar voru ræddir, ferlið að
ákvörðunartöku rakið, líðan fyrir og eftir
aðgerð og ýmislegt fleira. Viðtölin voru
að hluta bundin í ramma með ákveðnum
spurningum en viðmælandi hafði
möguleika á að ræða nær hvað sem henni
þótti þurfa.
Bæði innlendir og erlendir fyrirlesarar
fjölluðu ítarlega í erindum sínum um aðrar
leiðir en skurðaðgerð til áhættuminnkun-
ar. Laufey Tryggvadóttir hóf þá umræðu,
Anne Irene Hagan frá Noregi fór yfir það
hvernig BRCA-arfberum sem ekki fara í
aðgerð farnast og Lovise Mæhle, einnig
frá Noregi, ræddi um segulómskoðun og
aukið eftirlit sem mótvægi við aðgerð.
Vigdís Stefánsdóttir kynnti svo krabba-
meinserfðaráðgjöf á Landspítala.
Stöðugar framfarir eru í lyfjameðferð
þeirra BRCA-arfbera sem fá brjóstakrabba-
mein en nýlegar rannsóknir benda til þess
að í sumum tilfellum kunni að vera rétt að
meðhöndla þessar konur með sérhæfðum
lyfjum, jafnvel öðrum lyfjum en gefin eru
þegar ekki er um BRCA-arfbera að ræða.
Niklas Loman frá Svíþjóð fór ítarlega yfir
rannsóknir á þessu efni í sínum fyrirlestri.
Steven Narod frá Toronto, Kanada,
hefur verið í forsvari fjölmargra merkra
rannsókna á BRCA-arfberum sem hafa
víða vakið athygli. Hann fór ítarlega yfir
niðurstöður nýjustu rannsókna sinna og
lýsti því yfir að hann teldi áhættuminnk-
andi meðferð vera þá meðferð sem hefði
hvað mest áhrif á að bæta horfur arfbera,
þegar til lengri tíma (20 ára eftirfylgni-
tíma) væri litið.
Uppbygging og áhrif brottnáms
Brjóstauppbyggingar voru líka mikið til
umræðu á ráðstefnunni en flestar konur
sem fara í brjóstnám í fyrirbyggjandi eða
áhættuminnkandi skyni fara samtímis í
brjóstauppbyggingu. Ræddar voru ýmsar
nýjar leiðir til að bæta árangurinn, bæði
til skemmri og lengri tíma, en einnig var
til umræðu ný tækni af ýmsum toga sem
nú er víða notuð til að gera aðgerðirnar
öruggari og útkomuna fyrirsjáanlegri.
Um þessi efni fjölluðu sérfræðingar frá
Vigdís Stefánsdóttir
vigdisst@landspitali.is
RRS Iceland - norræn ráðstefna
brjóstaskurðlækna