Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.2014, Síða 9

Læknablaðið - 01.06.2014, Síða 9
R i T S T J Ó R n a R G R E i n LÆKNAblaðið 2014/100 329 Heilbrigðistengd rannsóknarstarfsemi á Landspítala er gróskumikil og byggir á traustum grunni samstarfs við innlenda og erlenda aðila. Starfsmenn leggja mikið á sig til þess að sinna vísindaverkefnum sam- hliða öðrum störfum þótt ekki sé gert ráð fyrir fráteknum tíma til slíks. Ár hvert er þessum starfsmönnum þakkað sérstaklega á viðburðinum Vísindi á vordögum. Þessi dagur er í senn uppskeruhátíð þar sem farið er yfir árangur liðins árs og veittar viðurkenningar, en um leið er úthlutað meira en 100 styrkjum til þeirra vísinda- manna sem lagt hafa fram bestu hugmynd- irnar að nýjum verkefnum. Nú þegar þessi ánægjulegi dagur er að baki gefst færi á að meta stöðuna í vísindastarfi á Landspítala í dag, blikur á lofti og tækifæri næstu ára til frekari sóknar. Vísindadeild Landspítala hefur komið á verklagi til þess að mæla afrakstur vísinda- starfsins, auk þess að starfa með NordForsk að slíkri tölfræði fyrir Norðurlöndin. Þær tölur sýna að fjöldi birtra vísindagreina frá spítalanum eykst ár frá ári. Þetta bendir til þess að sú framsýni sem stjórn Land- spítala sýndi með því að skera ekki niður framlög til vísindastyrkja í þrengingum undanfarinna ára hafi skilað sér. En sitt er hvað, magn og gæði, og því þarf að svara hvort þetta tvennt haldist í hendur. Nord- Forsk hefur nú birt sína nýjustu skýrslu1 um vísindastarf á Norðurlöndum og beitir við þá vinnu vandaðri aðferðafræði. Þegar fjöldi birtra greina er talinn er tekið tillit til fjölda höfunda frá hverri stofnun miðað við heildarfjölda höfunda greinar þannig að ef stofnun á einn höfund af 25 telst hún aðeins hafa birt 0,04 greinar. Þegar tilvitn- anir eru svo taldar eru allar sjálfstilvitnanir útilokaðar og fjölda tilvitnana í hverja grein er deilt í meðalfjölda tilvitnana í greinar á heimsvísu í sama fagi. Þannig fæst mæli- kvarði þar sem talan 1 merkir að fjöldi til- vitnana í grein er jafn heimsmeðaltalinu. Þessi mælikvarði gerir kleift að bera vís- indastarf á Íslandi beint saman við önnur Norðurlönd og heiminn allan án nokkurrar forgjafar vegna smæðar landsins eða ann- arra þátta. Með öðrum orðum: hér eru gæði mæld beint en ekki miðað við höfðatölu. Það er ánægjulegt að greina frá því að árin 2000-2003 og 2004-2007 var Landspít- ali með hæstu tilvitnanaeinkunn af öllum háskólasjúkrahúsum á Norðurlöndum, eða 1,31 og 1,33 á þeim kvarða sem lýst var hér að framan. Hins vegar er áhyggju- efni að tímabilið 2008-2011 hefur þessi einkunn lækkað í 1,07. Þótt einkunnin sé yfir heimsmeðaltali hefur Landspítali nú fallið í 15. sæti af 21 háskólasjúkrahúsi á Norðurlöndum og er undir meðaleinkunn Norðurlandanna. Þó að hjá smárri einingu á borð við spítalann geti sveiflur milli tímabila verið umtalsverðar er óráðlegt að horfa framhjá þessum niðurstöðum. Þegar gögnin eru greind nánar kemur í ljós að líklega er hallinn aðallega á sviði þess sem skilgreint er sem heilbrigðisvísindi (health sciences) en þar er átt við klínískar og far- aldsfræðilegar rannsóknir, en síður á sviði lífvísinda (biomedicine). Það er mikilvægt að styðja áfram rannsóknir starfsmanna spítalans í lífvísindum. En sóknarfæri í styrkingu rannsókna á Landspítala liggja ekki síður í rannsóknum á sviði heilbrigðis- vísinda. Þar er lykilatriði að bæta aðgengi rannsakenda að rannsóknargögnum. Rannsakendur á sviði heilbrigðisvísinda þurfa greiðan, öruggan og ódýran aðgang að gögnum. Nú er því svo háttað að vegna rannsóknar getur þurft að senda gögn milli stofnana með kennitölum, mismun- andi aðferðum er beitt við samtengingar, og vísindamaðurinn ber stundum sjálfur ábyrgð á að tengja saman gögn og gæta persónuöryggis. Engin leið er að gera fyrir- spurnir í rannsóknargrunna án atbeina sérfræðinga sem forrita hverja spurningu sérstaklega. Þetta ferli felur í sér götótta persónuvernd, er dýrt, tímafrekt og sama vinnan er endurtekin. Einkafyrirtækið Ís- lensk erfðagreining hefur leyst þetta mál fyrir sína rannsakendur. Þar er þess gætt að fyrirtækið og rannsakendur þess hafi aldrei aðgang að persónuauðkennum með því að láta þriðja aðila um samtengingar og dulkóðun. Jafnframt fá rannsakendur fyrirtækisins beinan aðgang að kerfi sem gerir ópersónugreinanlegar rannsóknar- fyrirspurnir mögulegar. Til þess að allir íslenskir vísindamenn geti notið sams konar aðstæðna þarf að skipuleggja ferli sem gegnir því hlutverki að dulkóða, hreinsa og samtengja rannsóknargögn og afhenda vísindamönnum þau án persónu- auðkenna. Einnig þarf að gera vísinda- mönnum kleift að gera sjálfir fyrirspurnir í rannsóknargrunnum. Nýlega samþykkt lög um vísindarannsóknir, lífsýnasöfn og söfn heilbrigðisupplýsinga auðvelda slíka uppbyggingu, ekki síst ákvæði um leitar- grunna. Rannsakendur á Landspítala vinna vís- indastörf þar sem magn og gæði standast alþjóðlegan samanburð. En nú er tækifæri til að sækja fram með því að vinna eftir skipulegri sýn þegar kemur að notkun vísindamanna á gögnum til rannsókna. Þannig tryggjum við persónuöryggi, gæði og hagkvæmni heilbrigðisvísinda á Íslandi. 1. Comparing Research at Nordic Universities using Bibliometric Indicators. NordForsk 2014. ISSN 1504-8640 Þorvarður Jón Löve gigtarlæknir vísindadeild Landspítala, kennslustjóri og lektor í lækna- deild Háskóla Íslands thorvardur@gmail.com Research at landspitali University Hospital – Compar- ison with the nordic Countries and new Opportunities Þorvarður jón Löve MD, MMSc, PhD Rheumatologist, Landspitali University Hospital Assistant Professor and Director of Education, Faculty of Medicince, University of Iceland Vísindastarf á Landspítala – samanburður við Norðurlönd og sóknarfæri Fyrsti ß -örvinn vi ð ofvirkri þvagblö ðru 3 Heimildir: 1. Sérly�atexti Betmiga 2. Khullar et al. Eur Urol 63: (2013); 283�295. 3. Nitti et al. J Urol 2013;189:1388�1395 ,Nýr verkunarháttur² ³ Áhrif á öll aðaleinkenni ,ofvirkrar þvagblöðru² ³ Munnþurrkur sambærilegur ,og við notkun ly�eysu² ³ SEM SLAKAR Á ÞVAGBLÖÐRUNNI NÝTT LYF

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.