Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.2014, Page 14

Læknablaðið - 01.06.2014, Page 14
334 LÆKNAblaðið 2014/100 Áverkar á höfði eru ein algengasta ástæða áunninnar fötlunar hjá ungu fólki og orsök þriðjungs allra dauðsfalla vegna slysa.6 Því er brýnt að halda áfram með og efla forvarnarstarf gegn slysum. Í rannsókninni okkar voru flestir áverkanna orsakaðir af slysum og öðrum óhöppum. Börn yngri en 10 ára hlutu áverka á höfði nær undantekningarlaust vegna slysa eða annarra óhappa. Í aldurshópnum 15-29 ára var hlutfallið komið niður í 64% og nærri þriðjungur orsakaður af slagsmálum og ofbeldi. Sjúkdómar orsökuðu nær 10% af áverkum á höfði hjá 75 ára og eldri. Yfirlið eru algeng ástæða fyrir slysum og áverkum eldri borgara.19 Þetta er mikilvægt að hafa í huga þegar kemur að forvarnarstarfi en misjafnt er á milli aldurshópa hvers kyns forvarnir skila bestum árangri. Slysaforvarnir eru þó stærsti og mikilvægasti þátturinn í öllum aldurshópum, en sýnu mest hjá yngstu kynslóðinni. Einnig er mikilvægt að efla forvarnir gegn ofbeldi hjá ungu fólki, til dæmis með aukinni fræðslu og bættri löggæslu. Að lokum þarf að huga að forvörnum fyrir eldri borgara með tilliti til sjúkdóma og bylta. Styrkleikar þessarar rannsóknar eru stórt þýði almennings, langt tímabil og gæði skráningar. Í Reykjavík sinnir bráðamóttaka Landspítala slysum og áverkum en minna en 1% rannsóknar- þýðisins leitaði þó á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins. Rann- sóknin hefur nokkrar takmarkanir. Val á viðeigandi greiningar- kóðum getur misfarist og rangur kóði verið skráður. Um var að ræða afturskyggna rannsókn svo skráning gagna var ekki jafn áreiðanleg og ef um væri að ræða framskyggna rannsókn. Rann- sóknartímabilið var brotið upp, þar sem ekki var búið að skrá gögn frá árunum 2006 og 2007. Fólk með minniháttar höfuðáverka getur einnig leitað á heilsugæslustöð til aðhlynningar og höfum við ekki upplýsingar um þær komur í þessari rannsókn. Norræna orsaka- skráningu vantaði hjá 1,5% þýðisins og eingöngu helmingur þess hóps voru börn er leituðu á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins þar sem ekki er gerð slík skráning. Í þessari rannsókn var áverkastigun og áverkaskor notuð til að meta alvarleika áverkanna, þar sem langflestir hlutu yfirborðs- eða augnáverka.9,10 Áhugavert hefði verið að hafa með upplýsingar um Glasgow coma skala (GCS) til að meta meðvitund sjúklinga. GCS er betri mælikvarði en AIS og ISS til að meta innankúpuáverka en yfirgnæfandi meirihluti þýðisins er ekki með slíka áverka í þessari rannsókn. Rannsóknin hefur sérstöðu að því leyti að flestar aðrar rann- sóknir skoða aðeins þann hóp er leggst inn á sjúkrahús. Rann- sóknin gefur því skýrari heildarmynd af höfuðáverkum í samfé- laginu. Eins og sást í okkar rannsókn voru algengustu ástæður fyrir komum á bráðamóttöku opin sár á höfði, en hlutfallslega al- gengasta orsök innlagna var innankúpublæðing. Á Íslandi virðist vera nokkuð lágt nýgengi áverka á höfði og hefur það farið lækk- andi undanfarin ár, en lengi má gott bæta. Mikilvægt er að halda áfram öflugu forvarnarstarfi og stuðla með því að frekari fækkun slíkra áverka. Þakkir Bestu þakkir fá Össur Ingi Emilsson læknir, Sveinn Gunnlaugsson tölfræðingur og Ingibjörg Richter kerfisfræðingur. Heimildir 1. Jennett B. Epidemiology of head injury. J Neurol Neurosurg Psychiatry 1996; 60: 362-9 2. Tagliaferri F, Compagnone C, Korsic M, Servadei F, Kraus J. A systematic review of brain injury epidemiology in Europe. Acta Neurochir (Wien) 2006; 148: 255-68; discus- sion 268. 3. Kraus JF, McArthur DL. Epidemiologic aspects of brain injury. Neurol Clin 1996; 14: 435-50. 4. Jennett B. Epidemiology of head injury. Arch Dis Child 1998; 78: 403-6. 5. Halldorsson JG, Flekkoy KM, Arnkelsson GB, Tomasson K, Gudmundsson KR, Arnarson EO. The prognostic value of injury severity, location of event, and age at injury in pediatric traumatic head injuries. Neuropsychiatr Dis Treat 2008; 4: 405-12. 6. Einarsson A, Sigvaldason K, Nielsen NC, Hannesson B. Alvarlegir höfuðáverkar á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur 1994-1998. Læknablaðið 2000; 86: 25-9. 7. Halldorsson JG, Flekkoy KM, Gudmundsson KR, Arnkelsson GB, Arnarson EO. Urban-rural differences in pediatric traumatic head injuries: A prospective nation- wide study. Neuropsychiatr Dis Treat 2007; 3: 935-41. 8. Guðmundsson K. Alvarlegir höfuðáverkar. Sjúklingar vistaðir á gjörgæsludeild Borgarspítalans 1973-1980. Læknablaðið 1987; 73: 113-20. 9. The Abbreviated Injury Scale. Des Plaines, Ill : American Association for the Advancement of Automotive Medicine 1990 revision, update 1998. 10. Baker SP, O‘Neill B, Haddon W Jr, Long WB. The injury severity score: a method for describing patients with multiple injuries and evaluating emergency care. J Trauma 1974; 14: 187-96. 11. NOMESCO: Nomesco classification of external causes of injuries. 3rd revised edition 1997. 12. Banaslysum í umferðinni fækkar. rnu.is/default.asp?sid_ id=30281&tre_rod=002%7C&tId=2&fre_id=133828&- meira=1; - ágúst 2013. 13. Slysaskýrsla Umferðarstofu 2012. us.is/files/slysa- skyrsla2012.pdf; - ágúst 2013. 14. Ísland með hæstu einkunn í slysavörnum barna. forvarna- husid.is/files/2009_7_23_V%C3%9E_H%C3%A6staEin- kunn.pdf; - ágúst 2013. 15. Sigvaldason K, Tryggvason FT, Pétursdóttir G, Snorrason H, Baldursson H, Mogensen B. Slys meðal sjómanna á Íslandi árin 2001-2005. Læknablaðið 2010; 96: 29-35. 16. Heskestad B, Baardsen R, Helseth E, Romner B, Waterloo K, Ingebrigtsen T. Incidence of hospital referred head injuries in Norway: a population based survey from the Stavanger region. Scand J Trauma Resusc Emerg Med 2009; 17: 6. 17. Kleiven S, Peloso PM, von Holst H. The epidemiology of head injuries in Sweden from 1987 to 2000. Inj Control Saf Promot 2003; 10: 173-80. 18. Karason S, Johannsson R, Gunnarsdottir K, Asmundsson P, Sigvaldason K. Líffæragjafir á Íslandi 1992-2002. Læknablaðið 2005; 91: 417-22. 19. Marrison VK, Fletcher A, Parry SW. The older patient with syncope: practicalities and controversies. Int J Cardiol 2012; 155: 9-13. R a n n S Ó k n

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.