Læknablaðið - 01.06.2014, Qupperneq 30
350 LÆKNAblaðið 2014/100
Aldarafmæli hlýtur að vera að minnsta kosti einnar messu virði.
Það þótti aðstandendum Læknablaðsins og buðu því til síðdegis-
hófs í Iðnó við Tjörnina einn fagran vordag, 15. maí. Fjölmargir
þáðu boðið og sýndu sig og sáu aðra í gamla leikhús salnum. Þar
voru læknar að sjálfsögðu í yfirgnæfandi meirihluta en núverandi
og fyrrverandi starfsmenn létu líka sjá sig ásamt öðrum velunn-
urum blaðsins.
Núverandi ritstjóri blaðsins, Engilbert Sigurðsson, ávarpaði
samkvæmið og má lesa orð hans hér í næstu opnu. Hann kall-
aði til sín ýmsa sem komið hafa við sögu blaðsins og er á engan
hallað þótt nafn Arnar Bjarnasonar fyrrverandi ritstjóra sé nefnt
fyrst. Hann fékk bók og blóm og aðrir voru líka leystir út með
gjöfum.
Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands fékk einnig
orðið, óskaði blaðinu til hamingju og greindi frá ákvörðunum
stjórnar LÍ um afmælisgjafir til blaðsins. Þar kemur tvennt til.
Annars vegar ætlar félagið að styrkja skönnun og innsetningu
Læknablaðsins frá upphafi á vefinn timarit.is og er það verk þegar
langt komið. Hins vegar er ætlunin að fjárfesta í hugbúnaðinum
ScholarOne til þess að halda utan um ritrýni og aðra vinnslu
fræðigreina sem birtast eiga í blaðinu og í framhaldi af því verður
annað efni einnig unnið í sama gagnagrunni.
Helga Hannesdóttir færði blaðinu og félaginu að gjöf fjóra ár-
ganga af fyrirrennara Læknablaðsins sem afi hennar, Guðmundur
Hannesson prófessor og fyrsti ritstjóri Læknablaðsins, hand-
skrifaði, fjölritaði og sendi til allra lækna landsins á árunum 1901-
Aldarafmæli lang lífasta
fagtímarits Íslands
fagnað í Iðnó
■ ■ ■ Þröstur Haraldsson
Páll Ásmundsson fyrrum ritstjóri blaðsins (1972-1976) og Birna Þórðardóttir sem lengi
þjónaði blaðinu sem ritstjórnarfulltrúi (1986-2001).
Ásgeir Haraldsson barnalæknir, systkinin Magnús smitsjúkdómalæknir og María
Soffía augnlæknir Gottfreðsbörn, Védís Skarphéðinsdóttir ritstjórnarfulltrúi og
Þröstur Haraldsson sem hefur lagt gjörva hönd á hvaðeina á Læknablaðinu, þó ekki
borið blaðið út til áskrifenda.
Ragnheiður Gröndal og Pálmi Gunnarsson þöndu sína strengi á sviðinu í Iðnó.
Lj
ós
m
yn
di
r A
rn
al
du
r H
al
ld
ór
ss
on