Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.2014, Blaðsíða 31

Læknablaðið - 01.06.2014, Blaðsíða 31
LÆKNAblaðið 2014/100 351 1904. Þessa árganga gaf Guðmundur Hannesi syni sínum sem lét binda þá inn í bók sem Helga dóttir hans færði blaðinu og félaginu til varðveislu og eignar. Fyrir og eftir hina skipulögðu dagskrá léku tvær ungar tónlistar- konur, Anna Sigurðardóttir og Eyrún Engilbertsdóttir, á píanó og saxófón. Einnig birtust á sviðinu þau Ragnheiður Gröndal söngkona og Pálmi Guðmundsson og fluttu nokkur lög við fögnuð gesta. Eins og vaninn er leystist samkvæmið svo upp í almennt spjall og huggu- legheit þar til gestir héldu aftur út í vorblíðuna. Gerður Gröndal lyflæknir, Kristín Sigurðardóttir bráðalæknir, María Soffía Gott- freðsdóttir og Valgerður Rúnarsdóttir fíknlæknir, - þær virðast gleymdar í formalíni og hafa yfirbugað öldrun. Sigurður Yngvi Kristinsson blóðsjúkdómalæknir og Hjalti Már Björnsson bráðalæknir, fyrir aftan þá er Gunnar Bjarni Ragnarsson krabbameinslæknir að reikna út snittufjölda. Ásgeir B. Ellertsson taugalæknir, kona hans Eiríka Urbancic og Hildur Viðarsdóttir heilsugæslulæknir. Framkvæmdastjóri LÍ er Sólveig Jóhannsdóttir og með henni er Védís ritstjórnar- fulltrúi. Baksviðs er Hávar Sigurjónsson blaðamaður Læknablaðsins og Inga Þráins- dóttir hjartalæknir sem sat í ritstjórn blaðsins 2009-2011. Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ árin 1999 til 2007 og Örn Bjarnason ritstjóri Lækna- blaðsins 1976-1993 með viðurkenningu fyrir framlag sitt til blaðsins. Ungliðar í læknastétt áttu fulltrúa, frá vinstri: Anna Stefánsdóttir, Karen Eva Hall- dórsdóttir, Margrét Edda Örnólfsdóttir og Kristrún Aradóttir.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.