Læknablaðið - 01.06.2015, Síða 3
LÆKNAblaðið 2015/101 291
læknablaðið
the icelandic medical journal
www.laeknabladid.is
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Gottfreðsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og
ljósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Sigdís Þóra Sigþórsdóttir
sigdis@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1800
Áskrift
12.400,- m. vsk.
Lausasala
1240,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu. Blað þetta má
eigi afrita með neinum hætti, hvorki að
hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and abst-
racted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
katrín agnes klar (f. 1985) hefur verið búsett lengi í
Þýskalandi þar sem hún stundaði listnám. Hún lauk námi
frá Akademie der bildenden Künste í München og þar
áður Hochschule für Gestaltung í Karlsruhe / ZKM. Eftir
útskrift árið 2013 hefur hún verið ötul
við sýningahald auk þess að gefa út
bók um eigin listsköpun og nú starfar
hún sem aðstoðarkennari við list-
kennslu í Þýskalandi. Katrín Agnes er
ein nokkurra listamanna sem tekur
þátt í sýningunni Birting í Gerðarsafni
um þessar mundir þar sem samtíma-
listamenn kallast á við verk Gerðar
Helgadóttur. Listamennirnir stilla
verkum sínum upp í samtali við glerverk
Gerðar sem byggjast einkum á sam-
spili ljóss og litar. Þau verk sem Katrín
Agnes sýnir í þessu samhengi eru
annars vegar ljósmyndir af himinhvolf-
inu þar sem við sjáum ólík blæbrigði lita
renna saman. Hins vegar eru til sýnis
verk unnin í tölvu og með iðnaðarefnum
sem bregðast við hreyfingum áhorf-
andans þannig að þau sýna ólíka liti eftir því hvar maður
stendur fyrir framan þau. Á forsíðu Læknablaðsins er
verk af fyrri gerðinni, ljósmynd sem sýnir litbrigði himins
í ljósaskiptunum. Þessa mynd geta sýningargestir í
Gerðarsafni haft með sér heim því að í safninu er stafli af
prentuðum eintökum í plakatastærð á gólfinu. Með þessu
vill listakonan dreifa myndinni út fyrir
listasafnið og þótti því kærkomið að
sýna hana á forsíðu blaðsins þar sem
hún myndi með því fara enn víðar. Hún
hefur áhuga á því að skoða möguleika
nýmiðla í verkum sínum og kanna eðli
þeirrar tækni sem umlykur okkur og
möguleika hennar í listrænum tilgangi.
Tvennt greinir ljósmyndina sem hér um
ræðir frá öðrum sambærilegum ljós-
myndum sem Katrín Agnes hefur unnið
að. Þær eru flestar teknar með ein-
földum farsíma en þessi mynd er tekin
með venjulegri myndavél. Þá sýnir
þessi einungis himin en neðst á hinum
myndunum má sjá glitta í sjóndeildar-
hringinn. Heiti þessarar verkaraðar er
Color Gradients og var hún unnin á
árunum 2013-14.
Markús Þór andrésson
L I S T A M A Ð U R M Á N A Ð A R I N S
Aðalfundur Læknafélags Reykjavíkur var haldinn
18. maí. Á fundinum var kjörinn nýr ritari stjórnar
félagsins til tveggja ára, Þórarinn Guðnason, en
Sigurður Ólafsson sem verið hafði ritari undan-
farin tvö ár gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Fyrir í stjórn voru Arna Guðmundsdóttir for-
maður, Reynir Arngrímsson varaformaður, Þórdís
Anna Oddsdóttir gjaldkeri og Guðmundur Örn
Guðmundsson meðstjórnandi. Formaður kynnti
skýrslu stjórnar LR fyrir liðið starfsár. Félagsmenn
sem greitt höfðu árgjald um áramót voru 751 og 11
félagsmenn létust á starfsárinu og minntist Arna
þeirra og vottuðu viðstaddir þessum kollegum
virðingu sína. Tveir almennir félagsfundir voru
haldnir á starfsárinu og voru vel sóttir. Sá fyrri
var haldinn 4. nóvember 2014 þar sem rædd voru
tryggingamál lækna. Annar almennur félags-
fundur var haldinn 17. mars 2015 þar sem málefni
heilsugæslunnar voru rædd, einkum hugsanlegar
breytingar á rekstrarformi. Þá ræddi Arna önnur
helstu mál starfsársins en kjaramál tóku mikinn
tíma. Lagði hún áherslu á að læknar yrðu áfram
virkir í þjóðfélagsumræðunni en mikilvægi þess
kom glöggt í ljós í kjarabaráttu lækna á liðnu
hausti.
Aðalfundur Læknafélags Reykjavíkur 2015
PRADAXA® - ÖRYGGISÞÆTTIR
OG FORVÖRN GEGN HEILASLAGI
ER NÚ EINNIG SKJALFEST
Í KLÍNÍSKU STARFI
134.000
65
SJÚKLINGAR:
Stór rannsókn frá FDA staðfestir verkun og
blæðingaöryggi Pradaxa samanborið við
Marevan® (warfarín) í klínísku star
ÁRA EÐA ELDRI:
Verkun og blæðingaöryggi
skjalfest hjá öldruðum
einstaklingum
FDA
MEDICARE
RANNSÓKNIN1 NIÐURSTÖÐUR RELY
2
niðurstöðurnar
staðfestar í
klínísku star
PR
A
-1
5-
01
-0
8
M
A
R1
5-
IS
ABCD
PRADAXA®
(150 mg tvisvar sinnum á sólarhring
eða 75 mg tvisvar sinnum á sólarhring)
samanborið við Marevan (warfarín)*
NIðurstöður í FDA
Medicare rannsókn
1
Heilaslag (minnkun)
Innankúpublæðingar (minnkun)
Dánartíðni (minnkun)
Bráð kransæðastía (engin aukin áhætta)
Blæðingar frá meltingarvegi (aukin áhætta)
Heimild 1: Graham er al. Circulation 2014; 131:157-164
Heimild 2: Connoly SJ, er al. N Engl J Med 2009;361:1139-1151
*Niðurstöðurnar eru byggðar á safngreiningu á bæði Pradaxa® (dabigatran) 150 mg x 2 og 75 mg x 2. Á Íslandi er Pradaxa 75 mg
ekki samþykkt ábending sem forvörn gegn heilaslagi og altæku segareki vegna gáttatifs. Sjúklingar 65 ára eða eldri með gáttatif
sem ekki tengist hjartalokum sem tóku þátt í rannsókninni hófu meðferð með Pradaxa® eða Marevan® (warfarín)
Í Bandaríkjunum hefur Medicare, sem er ker almannatrygginga undir stjórn alríkisstjórnarinnar, starfað síðan 1966, núna í samvinnu
við um 30 einkatryggingafélög um gjörvöll Bandaríkin. Mecicare veitir sjúkratryggingar Bandaríkjamönnum, 65 ára eða eldri, sem
hafa unnið og greitt iðgjöld í tryggingakerð.
Ábending: Fyrirbyggjandi meðferð gegn heilaslagi og segareki í slagæðum hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif sem ekki tengist
hjartalokum (NVAF) ásamt einum eða eiri áhættuþáttum, til að mynda að hafa áður fengið heilaslag eða tímabundna blóðþurrð
í heila (TIA); aldur ≥ 75 ára; hjartabilun (NYHA okkur ≥ II); sykursýki; háþrýstingur.