Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.2015, Síða 18

Læknablaðið - 01.06.2015, Síða 18
306 LÆKNAblaðið 2015/101 er óráð skilgreint sem „vefrænt heilaheilkenni af ósértækum upp- runa, sem einkennist af truflunum á meðvitund og athygli, skynj- un, hugsun, minni, skynhreyfivirkni, tilfinningum og svefn- og vökumynstri. Ástandið varir mislengi og getur verið allt frá vægu til alvarlegs ástands“.20 Amerísku geðlæknasamtökin (American Psychiatric Association, APA) skilgreina óráð sem „skammvinna, vefræna geðröskun sem lýsir sér sem truflun á meðvitund með minnkaðri getu til að halda einbeitingu eða veita athygli. Breyt- ingar verða á vitrænni getu, svo sem skert minni, ruglingslegar hugsanir og truflanir á tali eða aðrar breytingar, sem ekki eru til komnar vegna heilabilunar. Einkennin þróast á stuttum tíma og eru breytileg yfir sólarhringinn“.1 Greiningarviðmið óráðs sam- kvæmt DSM-IV eru: 1. Truflun á meðvitund og minnkuð árvekni eða athygli á um- hverfið, með minnkaðri getu til að veita og viðhalda athygli. 2. Truflun á vitrænni getu, svo sem skert minni, óáttun, truflun á tali eða skyntúlkun. Þessar breytingar eru ekki tilkomnar vegna heilabilunar. 3. Truflunin verður á stuttum tíma, vanalega dögum eða klukku- stundum og er breytileg yfir sólarhringinn. 4. Vísbendingar koma fram í heilsufarssögu sjúklings, líkams- skoðun eða rannsóknarniðurstöðum, sem sýna að truflunina má rekja til lífeðlisfræðilegra afleiðinga almenns sjúkdóms- ástands eða notkunar lyfja. Nýlega kom út 5. útgáfa DSM þar sem greiningarviðmiðum um óráð hefur verið lítillega breytt og er í henni lögð minni áhersla á breytingu á meðvitund. Hér verður þó stuðst við 4. útgáfuna þar sem hún er til grundvallar í þeim rannsóknum sem hér voru teknar saman. Orsakir óráðs Orsakir óráðs eru ekki að fullu þekktar en líklega er um samspil margra þátta að ræða.21-23 Sumar orsakir er auðvelt að skilja og má þar nefna beina áverka á heilann, svo sem súrefnisskort, heilablóð- fall, lyfjaáhrif og efnaskiptatruflanir.23 Aðrar orsakir er erfiðara að skilja til fulls, eins og væga sýkingu eða áverka utan heilans. Í þeim tilvikum mætti tala um óeðlilega streitusvörun heilans. Með „streitu“ er átt við bólguviðbrögð og ýmis hormónaviðbrögð lík- amans og með „óeðlilegu“ er átt við að svörunin er ýkt og kemur meðal annars fram sem óráð.23 Margar rannsóknir hafa sýnt að óráð orsakast hugsanlega af bólgusvörun sem verður meðal annars vegna streituviðbragða líkamans við skurðaðgerð.21,22 Áhrif bólgumiðla á heilann fela í sér breytingar á flutningi taugaboða og frumudauða. Bólgumiðlar, eins og interleukin-1β, TNF-α og interleukin-6, hafa áhrif á mið- taugakerfið þar sem þeir geta borist yfir blóðheilaþröskuldinn og stuðlað að bólgusvörun í heila. Miklir áverkar, alvarleg veikindi og skurðaðgerð geta aukið gegndræpi blóðheilaþröskuldsins sem annars ver heilann fyrir slíku áreiti.21 Heili aldraðra virðist bregð- ast frekar við þessari bólgusvörun en heili yngra fólks. Þetta gæti einnig skýrt hvers vegna aldraðir eru útsettari fyrir óráði.21 Óráð í kjölfar hjartaaðgerðar hefur í sumum rannsóknum verið skýrt með örsmáum blóðtöppum (microemboli)24 en aðrar rannsóknir hafa ekki sýnt það með óyggjandi hætti.27 Truflun taugaboðefna, og þá helst acetýlkólíns, er talin vera meðal orsaka óráðs.26 Acetýlkólín minnkar með hækkandi aldri og það skýrir að hluta hvers vegna aldraðir eru útsettari fyrir óráði en þeir yngri. Súrefnisskortur og lágur blóðsykur leiða til minni framleiðslu á acetýlkólíni og hafa báðir þessir þættir verið nefndir sem áhættuþættir fyrir óráð.21,22,26 Truflun á sambandi acetýlkólíns og annarra taugaboðefna, svo sem dópamíns og serótóníns, virðist einnig hafa hlutverki að gegna í óráði.21,22, 23 Áhættuþættir óráðs eftir skurðaðgerð Áhættuþáttum má í raun skipta í tvo flokka, annars vegar útsetj- andi áhættuþætti (predisposing factors) og hins vegar útleysandi áhættuþætti (precipitating factors).5,22 Útsetjandi áhættuþættir eru þeir þættir sem gera einstaklinginn viðkvæmari eða móttækilegri fyrir ýmsum vandamálum. Þetta eru áhættuþættir sem oft eru til staðar við innlögn á sjúkrahús. Sem dæmi um slíka áhættuþætti óráðs má nefna háan aldur, vitræna skerðingu, alvarleg veikindi og sjón- og heyrnarskerðingu.18,19,28,29 Útleysandi áhættuþættir eru hvers kyns truflun eða skaðvaldar tilkomnir vegna heilsufars- ástands, meðferðar eða umhverfis, sem hrinda frekar af stað vandamálinu. Breytingar verða á líkamsástandi og umhverfi ein- staklingsins við skurðaðgerðir og geta ýmsir útleysandi áhættu- þættir, svo sem verkir, truflanir á vökva- og saltbúskap, fasta og gjörgæsludvöl, fylgt í kjölfarið.1,30 Bráð skurðaðgerð getur haft aukna hættu á óráði í för með sér umfram valaðgerð19 Þeir einstak- lingar sem eru útsettari fyrir óráði vegna hás aldurs, heilabilunar eða annarra undirliggjandi áhættuþátta þurfa mun minna áreiti til að fá óráð en þeir sem ekki hafa undirliggjandi áhættuþætti.22,27,28 Tafla I. Samanburður einkenna óráðs og heilabilunar.25 Óráð Heilabilun Einkenni byrja skyndilega Hægur gangur sjúkdóms Breytileg yfir sólarhringinn, oft verri á kvöldin og að nóttu til Hæg versnun einkenna yfir langan tíma Breytilegt meðvitundarástand Meðvitund óbreytt Trufluð athygli Athygli oft óbreytt Hugsun óskipulögð, brengluð, samhengislaus, órökrétt, of hæg eða of hröð Rökhugsun lakari, hugsun fátækleg, dómgreind slök, málstol algengt Skynjun: brengluð, ímyndanir, misskynjanir, ofskynjanir, veruleikabrenglun Skyntruflanir ekki eins algengar Nærminni og langtímaminni skert Nærminni og langtímaminni skert Áttun oftast skert, breytileg frá einum tíma til annars Áttun getur verið skert Varir oft stutt, frá klst og upp í mánuð, sjaldan lengur Varir í mánuði/ár Breytt árvekni Árvekni oft óbreytt Framvinda ófyrirsjáanleg Einkenni vaxa með tímanum Y F i R l i T S G R E i n

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.