Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.2015, Side 21

Læknablaðið - 01.06.2015, Side 21
LÆKNAblaðið 2015/101 309 Y F i R l i T S G R E i n um skurðsjúklingum sem sýna fram á tengsl verkja og óráðs eftir aðgerð er ekki ólíklegt að verkir hafi sambærileg áhrif á hjarta- skurðsjúklinga. Afturskyggn lýsandi rannsókn á 100 inniliggjandi sjúklingum með óráð leiddi í ljós að hjá þeim sem voru útsettir fyrir óráði við innlögn voru ómeðhöndlaðir verkir líklegri til að ýta undir óráð heldur en aðrir áhættuþættir.8 Varhugavert er því að forðast með öllu sterk verkjalyf fyrir einstaklinga í óráði eða í hættu á óráði, heldur er beinlínis mikilvægt að veitt sé áhrifarík verkjameðferð. Óráð eftir opna hjartaaðgerð getur haft ýmsar afleiðingar í för með sér, svo sem hærri dánartíðni, lengri gjörgæsludvöl, lengri sjúkrahúsdvöl og auknar líkur á útskrift á annað sjúkrahús, öldr- unarstofnun eða endurhæfingardeild. Geta til að sinna daglegum athöfnum reyndist frekar skert hjá þeim sem fengu óráð. Aukin tíðni fylgikvilla á borð við sýkingar voru jafnframt algengari meðal þeirra sem fengu óráð. Aðrar rannsóknir á hjartaskurðsjúklingum hafa einnig sýnt fram á aukna sýkingarhættu hjá þeim sem fá óráð eftir hjartaaðgerð, meðal annars sýkingu í bringuskurði og aukna hættu á sýklasótt.57,63,64 Forvarnir gegn óráði beinast að því að draga úr þekktum áhættuþáttum, en marga þeirra er hægt að hafa áhrif á, svo sem að koma almennu líkamlegu ástandi í betra horf. Á þann hátt má fækka óráðstilfellum, draga úr einkennum og stytta tímann sem ástandið varir. Ráðgjöf öldrunar- eða óráðsteymis myndi jafnframt falla undir forvarnir65 en óráðsteymi hafa gagnast vel þar sem þau hafa verið starfrækt og reynst góð til að draga úr kostnaði og stytta legutíma.12 Mikilvægt er að greina þá sem eru í aukinni hættu á að fá óráð eftir skurðaðgerð og gagnlegt væri að hafa einhvers konar áhættu- mat í höndum, sambærilegt við það sem hefur verið þróað til að meta hættu á óráði hjá hjartaskurðsjúklingum.52,60 Slíkt áhættu- mat hefur einnig verið þróað fyrir aðra hópa skurðsjúklinga, svo sem þá sem fara í mjaðmaaðgerð.19 Hollendingar hafa rannsakað áhættuþætti óráðs hjá hjartaskurðsjúklingum í yfir áratug og hafa greint fjölda áhættuþátta hjá þessum sjúklingahópi.34 Þá þekkingu má nota til að hanna gátlista sem metur hættu á óráði. Með því að greina þá sem eru í áhættu væri hægt að hafa sérstakar gætur á þeim hópi og veita markvissa fyrirbyggjandi meðferð. Þarna gætu komið inn þættir eins og að skima markvisst fyrir vitrænni skerð- ingu hjá sjúklingum sem leggjast inn til aðgerða. Það hefur sýnt sig að reglubundin skimun fyrir óráðseinkennum hjá sjúklingum í áhættuhóp eykur líkur á því að vandamálið greinist snemma og flýtir þar af leiðandi fyrir viðeigandi íhlutun en forvörn er einkum mikilvæg fyrir það að lyfjameðferð við óráði sem þegar er fram komið er ekki árangursrík.16 Nokkrar meðferðir hafa verið þróaðar með það markmið að draga úr óráðstilfellum. Meðal þeirra er HELP-forvarnarmeðferðin (Hospital elder life program)66 en sýnt hefur verið fram á góðan árangur af henni. HELP miðar meðal annars að hreyfingu fljótt eftir aðgerð, eflingu hugarstarfs og góðri næringu.66 HELP hefur verið prófuð á litlu úrtaki hjartaskurðsjúklinga (n=32) þar sem niðurstöður sýndu fram á fækkun áhættuþátta óráðs hjá þeim sem fengu þá meðferð.67 Aðrar sambærilegar forvarnarmeðferðir hafa verið þróaðar og prófaðar65 meðal annars ráðgjöf frá öldrunar- hjúkrunarfræðingi og öldrunarlækni þar sem áhersla var meðal annars á að efla hugarstarf, bæta skynjun, auka áttun og hreyfingu, veita eftirlit með vökva- og næringarinntekt og aðstoða við að leysa verkja- og svefnvandamál. Nýverið voru gefnar út Klínískar leið- beiningar um greiningu, forvarnir og meðferð við óráði á Land- spítala32 en þær byggja á leiðbeiningum NICE (National Institute of Clinical Excellence). Þar er áhersla lögð á að greina áhættuþætti fyrir óráði innan sólarhrings frá innlögn, skima eftir einkennum óráðs hjá þeim sem teljast í áhættuhóp og veita þeim fjölþætta fyrirbyggjandi meðferð.32 Samantekt Óráð er algengt en jafnframt alvarlegt vandamál sem getur komið upp eftir opnar hjartaaðgerðir. Meðal áhættuþátta eru hár aldur, vitræn skerðing, bráðaaðgerð, lágt útfall hjarta, lengri tími á hjarta- og lungnavél, gáttatif og sýkingar. Afleiðingar óráðs eru fjölmargar og geta verið varanlegar. Óráð er hægt að fyrirbyggja að einhverju leyti með því að sporna við þekktum áhættuþáttum. Það er því mikilvægt að þekkja þá og greina snemma svo hægt sé að veita fyrirbyggjandi meðferð.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.