Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 39
LÆKNAblaðið 2015/101 327 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R skilmerki sem ættu betur við evrópskar aðstæður. Þeim var ætlað að vekja athygli á algengum mistökum í lyfjameðferð aldraðra. Sérstaklega var sjónum beint að óviðeigandi lyfjameðferð (sjá rammagrein), lyfjum sem auka byltuhættu og notkun sterkra verkjalyfja (ópíata). Skilmerkin áttu líka að greina tvöfaldar lyfjaávísanir, þar sem lyfjum úr sama lyfjaflokki er ávísað tvisvar, og vekja til umhugsunar um van- meðhöndlun. Útkoman úr þessari vinnu eru svokölluð STOPP/START skilmerki (sjá rammagrein) sem birtust fyrst 2008 en endurskoðuð 2. útgáfa kom út 2014. Þau auðvelda læknum að fara yfir flókna lyfja- lista með tilliti til ofangreindra þátta. Við skyndileit á Pubmed fundust um 80 birtar greinar um þessi skilmerki, þar af 5 eða 6 yfirlitsgreinar. Rannsóknir hafa sýnt að þessi skilmerki eru vel nothæf í klínískri vinnu og draga úr óviðeigandi lyfjameð- ferð. Þessi skilmerki hafa nú verið þýdd á íslensku sem hluti af SENATOR rann- sókninni. Landlæknisembættið hefur tekið vel í að birta þessi skilmerki á heimasíðu sinni, bætti Ólafur við. Klínískar leiðbeiningar um lyfjameð- ferð langvinnra sjúkdóma miðast yfir- leitt við einstaklinga með einn tiltekinn sjúkdóm. Aldraðir einstaklingar eru hins vegar oftar en ekki með marga langvinna sjúkdóma samtímis. – Þegar klínískum leiðbeiningum er beitt í blindni á fjölveika einstaklinga er hætt við óviðeigandi fjöl- lyfjameðferð þar sem lyf og sjúkdómar passa ekki endilega saman. Lyfin geta valdið aukaverkunum og milliverkunum milli lyfja og milli lyfja og sjúkdóma. Rannsóknir hafa sýnt að allt að fjórðung innlagna á sjúkrahús megi rekja til lyfja- tengdra vandamála. Það eykur líkur á heilsutjóni, lengir oft legutíma og eykur kostnað í heilbrigðiskerfinu, sagði Ólafur. Margvíslegur ávinningur Þeir félagar bæta því við að STOPP/START verði veigamikill þáttur í þeim ráðlegging- um sem SENATOR-hugbúnaðurinn gefur en taka fram að þetta séu ekkert annað en leiðbeiningar, það sé ekki ætlunin að taka ráðin af læknum sem ávallt taki ákvörðun um meðferð. Ávinningur Landspítala og íslensks heilbrigðiskerfis af rannsókninni verður væntanlega töluverður. Þar má nefna: ■ bætta þekkingu og greiningu á aukaverkunum lyfja hjá ört stækkandi sjúklingahópi, ■ vitneskju sem styður við úrbætur á gæðum meðferðar og öryggi sjúklinga, ■ stuðning við þróun klínískrar lyfja- fræði, ■ þýðingar á viðamiklum textum af ensku á íslensku, ■ hugbúnað sem bætir ráðleggingar um meðferð og lyfjagjöf, ■ tækifæri í vísindastarfi, auk þess sem niðurstöður nýtast við kennslu í læknisfræði, hjúkrun og lyfjafræði. Áhugasömum um þessa rannsókn er bent á heimasíðu hennar: www.senator- project.eu STOPP (Screening Tool of older People’s Prescriptions): Tæki til skimunar á lyfjanotkun eldra fólks (80 skilmerki) START (Screening Tool to Alert to Right Treatment): Tæki til skimunar fyrir rétta meðferð (34 skilmerki) Skilmerkin miðast við 65 ára og eldri, eru flokkuð eftir líffærakerfum og aukakaflar eru um ónæmisaðgerðir. Reiknað er með að skilmerkin verði endurskoðuð reglulega. Þau verða birt innan tíðar á heimasíðu landlæknis. Rannsóknarteymi SENATORs á Land- spítalanum, frá vinstri: Aðalsteinn Guðmundsson, Ást- rós Gunnarsdóttir, Ólafur Samúelsson og Sólveig Sigur- björnsdóttir. Pétur S. Gunnarsson klín- ískur lyfjafræðingur var fjarstaddur. Mynd: –ÞH

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.