Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 9
LÆKNAblaðið 2014/100 577 R i T S T J Ó R n a R G R E i n Framfarir í læknisfræði og skyldum greinum byggja á samfellu í virðisaukandi keðju grunnvísinda, klínískra rannsókna og hagnýtingu þeirrar þekkingar sem skapast. Þetta endurspeglast svo í auknum skilningi á sjúkdómum, betri greiningu og nýjum meðferðarúrræðum. Til að viðhalda þessari keðju er mikilvægt að styrkja rann­ sóknainnviði sem nauðsynlegir eru til að halda úti öflugum grunnrannsóknum. Vísinda­ og tækniráð var stofnað í nú­ verandi mynd með lögum frá Alþingi árið 2003. Ráðið mótar stefnu til þriggja ára í senn og hefur umsjón með helstu sam­ keppnissjóðum stjórnvalda. Útdeiling á fé úr samkeppnissjóðum byggir á jafningja­ mati sem er besta leiðin til að efla vísindi og hagnýtingu þekkingar. Um þetta eru langflestir sammála, bæði vísindamenn og stjórnmálamenn. Í Vísinda­ og tækniráði sitja vísinda­ menn og 6 ráðherrar, meðal annars mennta­ og menningarmálaráðherra og forsætis ráðherra, sem er formaður ráðsins. Frá upphafi hefur Vísinda­ og tækniráð lagt fram metnaðarfullar vísindastefnur þar sem mikilvægi samkeppnissjóða hefur verið í öndvegi. Þrátt fyrir að Vísinda­ og tækniráð sé fjölskipað ráðherrum með öllu því pólitíska valdi sem því fylgir, hefur stefnu ráðsins aldrei verið framfylgt eins og lagt er upp með. Sérstaklega hefur gengið illa að efna loforð um að efla samkeppnis­ sjóðina. Þann 29. ágúst 2014 var kynnt á Rann­ sóknaþingi Vísinda­ og tækniráðs ný úttekt á íslensku vísinda­ og nýsköpunarumhverfi sem gerð var af hálfu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins að beiðni íslenskra stjórnvalda. Skýrslan sem ber heitið „Peer review of the Icelandic Research and In­ novation System: Time to take responsibility and act!“ er mjög opinská um aðstæður í íslensku vísinda­ og nýsköpunarumhverfi. Þar vegur einna þyngst gagnrýni á íslensk stjórnvöld fyrir langvarandi aðgerðaleysi í málefnum vísinda og nýsköpunar þar sem kallað er eftir pólitískri ábyrgð og að­ gerðum á grunni þeirrar stefnumörkunar­ vinnu sem unnin er á vegum Vísinda­ og tækniráðs. Skýrslan bendir á marga veika punkta í íslenska kerfinu, meðal annars að samkeppnissjóðir séu of veikir með of lágt hlutfall af heildarfjármagni sem rennur hér til vísinda og að styrkupphæðir úr þeim séu of lágar. Í skýrslunni er jafnframt tekið fram að vísindamenn og stjórnmálamenn viti nákvæmlega hvað er að og hverjar lausnirnar séu. Nú virðast stjórnvöld vera að taka við sér því í nýrri og metnaðarfullri aðgerða­ áætlun Vísinda­ og tækniráðs fyrir árin 2014­2016 er stefnt að því að auka fram­ lag til samkeppnissjóða um 2,8 milljarða. Þar af er 800 milljóna króna aukning nú þegar sýnileg í fjárlögum fyrir 2015. Þetta er afar ánægjulegt og mun án efa styrkja rannsókna umhverfið, ekki síst hjá þeim sem stunda rannsóknir í heilbrigðis­ og líf­ vísindum. Samkeppnissjóðir Vísinda­ og tækniráðs hafa nú sem áður verið öflugustu rann­ sóknasjóðirnir á Íslandi og hafa vísinda­ menn í líf­ og læknisfræði sótt í þessa sjóði með góðum árangri. Helstu sjóðirnir eru Rannsóknasjóður, Tækniþróunarsjóður og Innviðasjóður (áður Tækjasjóður). Umræða um eflingu sjóðanna hefur að mestu snúist um Rannsóknasjóð og Tækniþróunarsjóð en minna um Innviðasjóð þrátt fyrir aug­ ljóst mikilvægi hans. Innviðasjóður veitir styrki til uppbyggingar á kjarnaeiningum (core facilites) þar með talið kaupum á rann­ sóknatækjum, gagnagrunnum og hug­ búnaði ásamt öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framgang og framfarir í rannsóknum. Rannsóknastofnanir á Ís­ landi hafa litla sem enga fjármuni til að byggja upp rannsóknainnviði fyrir grunn­ rannsóknir og treysta því á Innviðasjóð. Hlutverk sjóðsins hefur verið útvíkkað en áður veitti sjóðurinn eingöngu styrki til tækjakaupa. Framlög til Innviðasjóðs hafa þó ekkert aukist í áratug og hefur verðgildi hans í raun rýrnað til muna þrátt fyrir að hlutverk sjóðsins hafi verið víkkað og því brýnt að framlög til sjóðsins verði efld á næstu misserum. Við Lífvísindasetur Háskóla Íslands hafa verið byggðar upp öflugar kjarnaein­ ingar (lifvisindi.hi.is/core­facilities) með styrkjum úr Innviðasjóði og samstilltu átaki fjölda rannsóknahópa frá mismun­ andi stofnunum. Þessar kjarnaeiningar miða að því að koma upp sameiginlegri aðstöðu þvert á greinar innan lífvísinda og þvert á stofnanir og búa þannig til frjótt umhverfi og óheft aðgengi vísinda­ manna að bestu mögulegri aðstöðu hverju sinni. Þessar kjarnaeiningar hafa nú þegar sannað gildi sitt og og leitt til öflugri rann­ sókna, aukinna samskipta vísindamanna og hagræðingu í kringum aðferðafræði, tækjakaup og rekstur. Meðal kjarnaein­ inga Lífvísindaseturs er smásjáreining, frumuflæðieining, frumuræktunareining, genatjáningareining, svip erfða/ utan gena­ eining og svipgerðargreiningarsetur. Þess­ ar einingar eru staðsettar á ólíkum stöðum eins og á Landspítala, í Læknagarði, í Öskju, á Keldum og í Háskólanum í Reykjavík. Öflugir rannsóknainnviðir eru gríðar­ lega mikilvægir og gera aðgengi vísinda­ manna að bestu mögulegu aðstöðu greiða, óháð því hvaða stofnun menn tilheyra. Til að rannsóknainnviðir sem þessir geti náð að blómstra og eflast er nauðsynlegt að hlúð verði að Innviðasjóði og hann efldur til muna á næstu misserum. Þórarinn Guðjónsson prófessor í vefjafræði við læknadeild Háskóla Íslands tgudjons@hi.is Importance of competitive funds from Science and Technology Policy Council for health- and life science research Thorarinn Gudjonsson, PhD, professor, Stem Cell Research unit, Biomedical Center, university of Iceland Samkeppnissjóðir Vísinda­ og tækniráðs og rannsóknir í heilbrigðis­ og lífvísindum Xarelto® (rivaroxaban) ein tafla á dag Varnar heilablóðfalli og segareki að lágmarki til jafns við warfarín Sambærileg blæðingarhætta og í meðferð með warfaríni en marktækt færri innankúpublæðingar og dauðsföll vegna blæðinga Að taka lyf einu sinni á dag við hjarta- og æðasjúkdómum eykur líkur á því að lyfið sé leyst út af sjúklingi eykur líkur á því að sjúklingur taki lyfið eykur líkur á því að lyfið sé tekið á réttum tíma samanborið við lyf sem taka þarf oftar ♦♦ ♦♦ ♦♦ *sem fyrirbyggjandi meðferð gegn heilablóðfalli og segareki hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif án lokusjúkdóms og einn eða fleiri áhættuþætti, svo sem hjartabilun, háþrýsting, aldur ≥ 75 ára, sykursýki, sögu um heilablóðfall eða skammvinnt blóðþurrðarkast1 Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto. 2. Patel MR et al. N Engl J Med 2011; 365:883-891. 3. Bae JP et al. Am J Manag Care 2012; 18:139-146. 4. Craig IC et al. Curr Med Res Opin 2012; 28:669-680. Fyrsti beini hemillinn á storkuþátt Xa til inntöku 3 2 2 *1 4 4 L.IS.09.2014.0083
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.