Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 58

Læknablaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 58
Blogg er fréttamiðill á netinu sem hver sem er getur stofnað án þess að hafa mikla tækniþekkingu. Þetta auðveldar mjög einstaklingsframtak og margir læknar nota blogg til að koma frá sér alls konar kennsluefni. Með bloggi er auðvelt að birta myndir, hljóð og myndbönd og því eru þau mörg hver notuð til að hýsa læknis­ fræðilegt margmiðlunarefni, til dæmis hlaðvörp (podcast). Það er mér ánægja að kynna fyrsta til­ fellablogg íslenskra lækna, Emergency Medicine Iceland, sem samanstendur fyrst og fremst af tilfellum af bráðamóttöku Landspítala og umræðum kringum þau. Tilgangurinn er ekki að kynna sjaldgæfa kvilla eins og í læknisfræðitímaritunum heldur hversdagsleg vandamál þannig að allir geti lært af. Bráðalækningar snúast að miklu leyti um hraða og örugga greiningu og fyrstu meðferð og hefur því snertiflöt við allar sérgreinar. Gegnum tilfellin kynnast læknar vinnu bráðalækna en einn tilgangur bloggsins er að kynna þessa ungu sérgrein fyrir lækn­ um á Íslandi. Það er skrifað á ensku til að höfða einnig til erlendra lækna og kynna fyrir þeim stöðu bráðalækninga á Íslandi. Til gamans má geta þess að á einu ári hafa okkur borist þrjár fyrirspurnir erlendis frá um vinnu á bráðamóttöku. Loks notum við bloggið til að vísa í annað frábært kennsluefni á netinu og hvetjum þannig íslenska kollega okkar til að kynnast frekar heimi FOAM (Free Online Accessible Medical Education). Það er einmitt áðurnefndur einfaldleiki sem gerir lækna tortryggna um innihald og gæði efnis á bloggum þar sem hver sem er getur skrifað um hvað sem er. Það er samdóma álit lækna í bloggheimum erlendis að skrif undir nafni og aðgengi­ legar upplýsingar um höfunda og tilgang bloggsíðunnar ásamt gæðavottun HON (Health on the Net Foundation) sjái til þess að þetta er ekki vandamál, sbr: „HON‘s mission is to guide Internet users to reliable understandable accessible and trustworthy sources of medical and health information.“ Möguleiki lesenda til að tjá sig undir nafni um staka bloggpósta (umræður) tryggir enn frekar að höfundur vandar skrif og frágang en útbreiðsla bloggsíð­ unnar er undir lesendunum komið. Stofnun tilfellabloggsins fylgir sama ferli og undirritaður rataði í gegnum við háskólasjúkrahúsið í Lundi þar sem svona blogg var rekið. Það var gert eftir samráð við lögfræðing og yfirmenn sjúkrahússins og sænska læknablaðið. Eins og þegar til­ felli eru birt í Læknablaðinu er séð til þess að engin persónugreinanleg atriði séu til staðar og áhersla lögð á faglega fram­ setningu. Tilfellabloggið hefur verið kynnt fyrir framkvæmdastjórn Landspítala og yfirlæknir bráðamóttöku samþykkt það. Fyrsta tilfellið er unnið í samvinnu við lungnalækni og framkvæmdastjóra lækn­ inga spítalans. Slóðin er http://emergencymedicineiceland.blogspot.com Emergency Medicine iceland - fyrsta íslenska tilfellabloggið davíð b. Þórisson sérfræðingur í bráðalækningum bráðamóttöku Landspítala, Fossvogi david.thorisson@gmail.com 626 LÆKNAblaðið 2014/100 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að tilkynna allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist lyfinu. Selincro® nalmefen Selincro 18 mg filmuhúðaðar töflur. H. Lundbeck A/S. ATC flokkur N07BB05. Samantekt á eiginleikum lyfs – styttur texti SmPC. Virkt innihaldsefni: nalmefen 18,06 mg (sem hýdróklóríð díhýdrat). Ábendingar: Selincro er ætlað til að draga úr áfengisneyslu hjá fullorðnum sjúklingum sem haldnir eru áfengissýki og hafa mikla heilsufarslega áhættu af drykkju (DRL), eru án líkamlegra fráhvarfseinkenna og þurfa ekki bráða afeitrun. Einungis á að ávísa Selincro ásamt samfelldum sálfélagslegum stuðningi sem beinist að með- ferðarheldni og að draga úr áfengisneyslu. Einungis á að hefja Selincro meðferð hjá sjúklingum sem hafa áfram mikla heilsufarslega áhættu af drykkju tveimur vikum eftir upphafsmat. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Sjúklingar: sem eru að taka ópíóíð verkjalyf; sem haldnir eru ópíóíðafíkn eða hafa nýlega verið það; með bráð ópíóíða fráhvarfseinkenni; sem grunaðir eru um nýlega neyslu ópíóíða; með alvarlega skerta lifrarstarfsemi (Child-Pugh skilgreining); með alvarlega skerta nýrnastarfsemi (eGFR <30 ml/mín. á 1,73 m2); sem nýlega hafa fengið bráð fráhvarfseinkenni vegna áfengis (að ofskynjunum, krömpum og drykkjuóráði (delirium tremens) meðtöldu). Skammtar: Taka á Selincro eftir þörfum. Sjúklingur á að taka eina töflu hvern þann dag sem hann finnur fyrir hættu á áfeng- isneyslu, helst 1-2 klst. fyrir þann tíma sem búast má við að drykkjan hefjist. Hafi sjúklingur hafið áfengisneyslu án þess að taka Selincro, á hann að taka eina töflu eins fljótt og auðið er. Hámarksskammtur Selincro er ein tafla á dag. Taka má Selincro með eða án fæðu. Selincro er til inntöku. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is Pakkningastærðir og leyfilegt hámarksverð í smásölu (september 2014): 14 stk.: 12.530, 28 stk.: 23.822. Sjúkratryggingar taka almennt ekki þátt í kostnaði við lyfið. Lyfið er lyfseðilskylt. Dagsetning síðustu samþykktar SmPC sem þessi stytti texti er byggður á: 28. ágúst 2013. Nánari upplýsingar um lyfið fást hjá umboðsaðila á Íslandi sem er Vistor hf., Hörgatúni 2, 210 Garðabæ, sími 535 7000. Ath. textinn er styttur. Sjá nánari upplýsingar í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.