Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 53

Læknablaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 53
LÆKNAblaðið 2014/100 621 l Ö G F R æ ð i 1 1 . P i S T i l l Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við ritstjórn eða pistlahöfund ábendingum um efni sem þeir vilja að fjallað verði um. dögg Pálsdóttir lögfræðingur Læknafélags Íslands DoggP@lis.is Miðað við stöðu mála þegar þessar línur eru ritaðar (22. október 2014), bendir fátt til annars en að boðuð verkföll lækna hefjist hinn 27. október. Eins og fram hefur komið eru verkföllin í þremur lotum, vikurnar 27. október til 6. nóvember, 10. til 20. nóvem­ ber og 8. til 11. desember. Ekki er um alls­ herjarverkfall að ræða heldur fara læknar á hverjum stað sem verkfall nær til hverju sinni í verkfall í tvo daga. Í skilningi laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986 eru bæði Læknafélag Íslands (LÍ) og Skurð­ læknafélag Íslands (SKÍ) stéttarfélög og sem slíkum er þeim heimilt að efna til verkfalla í þeim tilgangi að stuðla að fram­ gangi krafna sinna í deilu um kjarasamn­ ing með þeim skilyrðum og takmörkunum sem lögin setja. Í fyrsta sinn í sögunni hafa þessi félög boðað til verkfalla og voru þau samþykkt í báðum félögum með yfir 90% greiddra atkvæða. Samstaðan er því sterk meðal lækna þegar kemur að boðuðum verk­ fallsaðgerðum, enda telja þeir að þeir séu með þeim ekki eingöngu að stuðla að framgangni krafna sinna í kjaradeilu við ríkisvaldið heldur einnig að berjast fyrir framtíð heilbrigðisþjónustunnar. En verkfallsréttur lækna er takmark­ aður lögum samkvæmt. Þessi takmarkaði verkfallsréttur birtist í 5. tölulið 1. mgr. 19. gr. laganna þar sem segir að almenna verkfallsheimildin nái ekki til þeirra sem starfa við nauðsynlegustu heilbrigðis­ þjónustu. Takmörkunin birtist í því að fyrir 1. febrúar ár hvert skulu fjármála­ og efnahagsráðherra og sveitarfélög, að undangengnu samráði við viðkomandi stéttarfélög, birta skrár um þau störf sem falla undir takmarkanirnar á verkfalls­ réttinum. Nýjasta auglýsingin um slíka skrá er nr. 101/2014 og eftir henni verður starfað í komandi verkföllum. LÍ og SKÍ hafa á síðustu árum lagt mikla vinnu í að fara yfir þessar skrár um störf sem falla undir takmarkanirnar á verkfallsréttinum. Þegar þessi vinna hófst að ráði fyrir réttum fjórum árum síðan var mönnun í verkfalli skv. eldri skrám víða svo mikil að hún var jafnvel meiri en á venjulegum vinnudögum. Svo mikil hefur fækkun lækna orðið frá hruni. Þá voru skrárnar ófullkomnar að því leyti að það vantaði víða að gera greinarmun á dagvinnu, vinnu á bundnum vöktum og gæsluvöktum. Þessi vinna hefur skilað því að skráin nr. 101/2014 er að meginstefnu til með mönnun sem samrýmist því sem tíðkast með mönnun á sjúkrahúsum um helgar og á öðrum frídögum. Í heilsugæslu er fyrirkomulagið með þeim hætti að einungis yfirlæknar eru í dagvinnu víðast hvar. Áðurnefnd lög gera ráð fyrir því að í verkfalli starfi sérstök undanþágunefnd. Í nefndinni eiga sæti tveir einstaklingar, einn tilnefndur af stéttarfélagi og einn til­ nefndur af ríkinu. Nefndin tekur afstöðu til undanþágubeiðna og eru ákvarðanir nefndarinnar endanlegar. Um starf nefndarinnar er fjallað í 20. gr. laganna, sem heimilar að kalla starfsmenn í verk­ falli tímabundið til vinnu í þeim tilgangi að afstýra neyðarástandi. LÍ hefur litið svo á að nefndinni sé einnig heimilt að veita undanþágur til að tryggja „nauðsynlegustu heilbrigðis­ þjónustu“. Sem dæmi má nefna að frá því að auglýsingin var birt í byrjun þessa árs hafa ýmsar breytingar orðið á heilbrigðis­ stofnunum landsins. Þannig sameinuðust allnokkrar heilbrigðisstofnanir hinn 1. október síðastliðinn. Mögulega hafa þær skipulagsbreytingar haft í för með sér að skráin tekur ekki mið af því skipulagi sem gildir verkfallsdagana. Í þeim tilvikum þarf að leiðrétta skrána og lítur LÍ svo á að það sé undanþágunefndinni heimilt, fall­ ist hún á rök viðkomandi stofnunar fyrir breytingu frá skránni. Í þessum tilvikum þurfa stjórnendur viðkomandi stofnunar því að sækja um undanþáguna með rök­ stuðningi. Það er mikilvægt að allir geri sér grein fyrir því að í verkfalli á eingöngu að sinna „nauðsynlegustu heilbrigðisþjónustu“. Í því felst að þeir læknar sem starfa, eiga þrátt fyrir verkfall ekki að ganga til daglegra starfa heldur einvörðungu sinna bráðatilvikum. Mikilvægt er þó í vafa­ tilvikum að láta sjúklinga njóta vafans í þessu efni. Það gefur auga leið að það verður tals­ verð röskun á heilbrigðisþjónustu sjúkra­ húsa og annarra heilbrigðisstofnana með­ an á verkfalli lækna stendur. Sem dæmi má nefna að bókuð viðtöl á heilsugæslu­ stöðvum og göngudeildum sjúkrahúsa falla niður. Bókaðar valkvæðar aðgerðir falla niður. Fjölmargar spurningar um framkvæmd verkfallsins hafa vaknað í að­ draganda þess. LÍ hefur leitast við að svara þeim eins ítarlega og mögulegt er og birt afstöðu sína til þeirra á innri vef heima­ síðu félagsins og vísast til hennar varðandi nánari upplýsingar. Verkfall lækna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.