Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 41

Læknablaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 41
LÆKNAblaðið 2014/100 609 Ú R P E n n a S T J Ó R n a R M a n n a l Í Bólusetningar, getum við lært af sögunni? Á aðalfundi Læknafélags Íslands þann 25. september síðastliðinn voru tveir læknar kjörnir heiðursfélagar, þau Sigurbjörn Sveinsson og Margrét Guðnadóttir. Þau eru bæði vel að þessu komin. Þrátt fyrir að vera orðin hálfníræð er Margrét enn að og vinnur af sama eldmóði og undanfarna áratugi. Fáir læknar á Ís­ landi hafa lagt eins mikið til heilbrigðis þjóðarinnar og Margrét. Hún hefur verið ötull talsmaður bólusetninga og þannig komið í veg fyrir alvarleg veikindi, örkuml og dauða. Mörg plágan hefur riðið yfir Ísland í aldanna rás og tekið sinn toll, stórir far­ aldrar, spænska veikin, lömunarveiki og rauðir hundar, svo eitthvað sé nefnt. Mér er það minnisstætt þegar ég barnung kom í kirkjugarð norður í landi í tengslum við ættarmót. Þar hvíldu fjögur systkini afa míns, sem létust í byrjun árs 1909 úr barnaveiki. Þegar ég barnið spurði um þessa barnaveiki fékk ég svarið: Nú í dag eru börn bólusett og ekkert barn deyr lengur úr þessari veiki. Dóttir þessa afa míns var barnshafandi árið 1964 og fékk rauða hunda. Sonur hennar, frændi minn og næstum jafnaldri, fæddist heyrnar­ skertur. Mínar fyrstu minningar um hann tengjast því að skoða heyrnartækin og stóra kassann sem hann hafði um hálsinn. Ég man líka þegar við frændsystkinin fórum í feluleik. Hann varð útundan og skiljanlega sár og reiður, því hann heyrði engin hó. Þessum frænda mínum hefur vegnað vel í lífinu, en ég er viss um að hann hefði lifað betra lífi, hefði hann haft fulla heyrn og sloppið við allt það aðkast sem hann hefur orðið fyrir um ævina vegna heyrnarskerðingarinnar. Ef ein­ hver í minni fjölskyldu hefur minnstu efasemdir um ágæti bólusetninga er fjöl­ skyldusagan rifjuð upp, sorgir og missir forfeðranna og bætt við að þetta myndi ekki að gerast í dag. Sem lungnalæknir rekst ég líka á fólk sem var á unga aldri þegar síðasti lömunarveikifaraldur fór um Ísland upp úr 1950. Þetta fólk fékk varanleg mein af sjúkdómnum, svo sem gríðarlega hrygg­ skekkju (kyphoscoliosis). Þegar aldurinn færist yfir berst þetta fólk við öndunar­ bilun, almennt minnkaða færni og skert lífsgæði. Árið 1998 birtist grein í Lancet eftir meltingarlækninn Andrew Wakefield um tengsl MMR­bólusetningar og aukinnar tíðni á einhverfu. Þessi tíðindi fóru eins og eldur í sinu um hinn vestræna heim og foreldrar vildu ekki láta bólusetja börnin sín. Seinna kom í ljós að rannsóknarniður­ stöður voru ekki bara rangar, heldur fals­ aðar. Í ritstjórnargrein BMJ 15. mars 2011; 342 stendur: „Clear evidence of data sho­ uld now close the door on this damaging vaccine scare.“ Þessa dagana virðist alheimsfaraldur ebóla í uppsiglingu. Í fréttum heyrir maður að Norðmenn hafi keypt síðasta skammtinn af tilraunabóluefni og vikur eða mánuðir muni líða þar til næstu skammtar verði tilbúnir. Það er ekki laust við að ugg setji að manni. Við fagfólkið eigum að vita að bólusetn­ ingar bjarga mannslífum. Efasemdaraddir heilbrigðisstarfsfólks, hvort heldur þær koma frá læknum eða hjúkrunarfræð­ ingum, eru í mínum huga hrein afglöp. Það er okkar að fræða, upplýsa og hvetja almenning til að mæta í bólusetningar, sérstaklega með börnin, sem við fullorðna fólkið berum ábyrgð á. Við megum ekki sofna á verðinum. Smitsjúkdómar verða alltaf til en þeim hættulegu smitsjúkdómum sem við getum útrýmt verðum við að útrýma að fullu. Við megum ekki lenda aftur á byrjunarreit hvað þessa vágesti varðar, sem okkur hefur orðið svo vel ágengt með á undan­ förnum áratugum. Við verðum að upplýsa yngri kynslóðirnar áður en það er um seinan og þessir sjúkdómar ná að geisa aftur í faröldrum og útrýma okkur. Magdalena Ásgeirsdóttir lungnalæknir á Reykjalundi, ritari Læknafélags Íslands Magdalena@REYKJALUNDUR.is Læknar í verkfall Það er sögulegt móment þegar tekin er mynd af fyrstu verkfallsvakt lækna mánudagsmorguninn 27. október 2014. Hún stillir sér upp grá eða blá fyrir járnum, á hraðri leið úr Hlíðasmára og út á akurinn. Konurnar á vaktinni voru galvaskar að morgni dags og búnar að fá skýr fyrirmæli um það frá formanni, framkvæmdastjóra og lögfræð­ ingi Læknafélagsins að hverju beri að gá og hafa eftirlit með á verkfallsvakt. Það er ekki á hverjum degi sem launamenn standa frammi fyrir svona verkefni, og það hefur aldrei gerst áður í sögunni að komið hafi til verkfalls lækna hérlendis. Frá vinstri eru heimilislæknarnir Þórdís Anna Odds­ dóttir, Björg Þ. Magnúsdóttir, Sigríður Ýr Jens­ dóttir og Elínborg Bárðardóttir. Mynd VS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.