Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 50

Læknablaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 50
618 LÆKNAblaðið 2014/100 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R Félag íslenskra röntgenlækna efnir til málþings með veglegri dagskrá um myndgreiningu á alþjóðlegum degi myndgreiningar þann 8. nóvember og fagnar því að í ár eru liðin 100 ár frá því röntgenmyndatökur hófust hér á landi. Formaður félagsins, Maríanna Garðars­ dóttir yfirlæknir á röntgendeild Land­ spítala, segir myndgreiningu vera falda sérgrein sem gegnir lykilhlutverki í nútímalæknisfræði. „Sjúkdómsgreiningar í dag byggja að mun stærri hluta á myndgreiningu en fyrir bara 10­15 árum síðan og stafar það að miklu leyti af betra aðgengi að mynd­ greiningarrannsóknum, en einnig styttri rannsóknartíma og auðveldari rannsókn­ um fyrir skjólstæðinga okkar. Stór hluti myndgreiningar og eftirlits í Reykjavík fer í dag fram utan Landspítalans, en öflugar röntgendeildir eru reknar í Domus og Orkuhúsinu,“ segir Maríanna í upphafi. „Myndgreining er lykilgrein í nú­ tímalæknisfræði. Nánast allar sérgreinar reiða sig á myndgreiningar í lausn sinna verkefna. Eftirspurnin eftir þjónustu myndgreiningardeilda eykst ár frá ári og vissulega er það jákvætt að læknar vilji nýta tæknina til að finna rétta greiningu og lausn fyrir sjúklinga sína. Læknar og sjúklingar treysta líka núorðið mjög á nið­ urstöður myndgreiningarrannsókna enda er hraðinn mikill og plássin fá. Klínísk greining kallar á nægan tíma sem sjaldn­ ast er til staðar á undirmönnuðu sjúkra­ húsi og auðvitað er sjálfsagt að styðjast við þá tækni sem er í boði. Okkur finnst við vera mikilvægur hlekkur í þjónustunni við sjúklingana, skjólstæðinga okkar, og má segja að við fylgjum þeim frá vöggu til grafar, en við komum jafnframt að flókn­ ari sjúkdómsgreiningum á fósturskeiði og aðstoðum við réttarmeinafræðilegar rann­ sóknir eftir skyndileg eða jafnvel voveifleg andlát. Þannig að starfið er mjög fjölbreytt, en á þessum vinnustað er álagið heldur meira en þolanlegt er og því verða rann­ sóknir og jafnvel kennsla og þjálfun náms­ lækna útundan, því þjónusta við sjúklinga er ávallt sett í fyrsta sæti.“ Örar tækniframfarir og breytingar á starfsmöguleikum Hún segir framfarir í faginu mjög örar og mikilvægt að fylgjast vel með, en fyrstu áratugina hafi þróunin í myndgreiningu, eða geislalækningum eins og sérgreinin hét upphaflega, verið hæg hér á landi. „Vissulega batnaði tækjabúnaður eftir því sem árin liðu og framfarir urðu í takt við löndin í kringum okkur. En í grundvallaratriðum var að mestu notast við röntgengeisla, hvort sem var til að gera gegnumlýsingu, sem var grundvallarað­ ferð í fyrstu, taka myndir eða gera flóknari rannsóknir eins og æðamyndatökur, allt fram í lok sjötta áratugar síðustu aldar þegar tölvutæknin kom til sögunnar. Stafræn myndgerð var þróuð í kringum 1970 og er sú aðferð sem notuð er í dag fyrir myndatöku og myndgeymslu. Þróun tölvusneiðmynda hélst í hendur við þróun tölvutækninnar og sér engan veginn fyrir endann á þeirri þróun í dag. Síðan um 1970 hafa orðið gríðarlegar framfarir, bæði í röntgenrannsóknunum sjálfum en einnig með tilkomu tölvusneiðmyndatækja, segulómunar, stafrænnar myndatöku og hreyfimyndatöku, stafrænnar geymslu gagna og gagnaflutnings. Með stafrænni tækni hefur myndgreining tekið stór stökk, engar filmur eru notaðar lengur nema á einstaka stöðum á landsbyggðinni og hægt að senda myndir hvert í veröldina sem er, ef tæknin er fyrir hendi.“ Þetta hefur valdið gjörbreytingu á starfsmöguleikum röntgenlækna. Þeir þurfa ekki lengur að flytjast búferlum þó þeir ráði sig í vinnu annars staðar í veröld­ inni. „Nú er svo komið að mörg sjúkrahús erlendis nýta sér þessa möguleika og senda myndir til úrlestrar í önnur lönd eða jafnvel önnur tímabelti til að flýta fyrir niðurstöðum eða þegar vinnuálagið er óhóflegt og ekki næst að vinna úr þeim rannsóknum sem liggja fyrir innan við­ unandi tímaramma. Slíkt er þó ekki gert hér á Landspítala þar sem engar reglur um fjarlækningar eru til staðar á Íslandi. Hver ber ábyrgðina á myndgreiningarrannsókn sem framkvæmd er á Landspítala en lesið úr á Indlandi eða Ástralíu? Vissulega eru það útlærðir röntgenlæknar sem sinna úrlestri á hverjum stað, en það má aldrei gleyma mannlega þættinum, samskiptum við sjúklinginn og einkum við lækni sjúk­ lingsins, því oft koma nýjar upplýsingar fram sem geta breytt forsendum fyrir niðurstöðu rannsókna eða að myndgrein­ ingarrannsóknir eru túlkaðar á annan hátt þegar heildarmyndin er skoðuð.“ Maríanna segir að hérlendis séu röntgenlæknar sem hafa tekjur af því að lesa úr myndum fyrir erlend sjúkrahús bæði austan hafs og vestan. „Það er auð­ vitað þægilegt að geta setið við skrifborðið heima hjá sér með kaffibollann en fyrir mig persónulega skipta samskiptin við kollegana og sjúklingana mestu. Þegar vinnuálagið er orðið of mikið og undir­ mönnun er regla en ekki undantekning, er eðlilegt að fólk leiti annað og er það vel skiljanlegt og í raun jákvætt að hafa val um tilhögun vinnunnar fyrir hvern og einn. Æ fleiri hafa minnkað við sig vinnuna á spítalanum og vinna við það að hluta til að lesa úr fyrir önnur lönd og það er kosturinn við þetta starf hversu létt er að laga vinnutímann og vinnutilhögun að óskum hvers og eins. Atvinnumöguleik­ arnir eru óþrjótandi og nú til dags er mun minna mál að starfa í einu landi og búa Falin sérgrein í lykilhlutverki ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.