Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 22
590 LÆKNAblaðið 2014/100 líklegi til að hafa lent í vinnuslysi en stelpur. Hvorki aldurs­ né kynjamunur er hins vegar til staðar hvað varðar lengd fjarveru vegna slyss. Erfitt er að fullyrða hvort algengara sé að íslensk ung­ menni lendi í vinnuslysi og/eða þau lendi í alvarlegri slysum held­ ur en jafnaldrar þeirra í nágrannalöndunum vegna þess að ólík rannsóknarsnið torvelda samanburð. Rannsókn Guðbjargar Lindu Rafnsdóttur2 frá árinu 1998 sem náði til allra Norðurlandanna sýndi ekki hærra hlutfall vinnuslysa meðal íslenskra ungmenna en hærra hlutfall alvarlegra slysa. Niðurstöðurnar um aldurs­ og kynjamuninn hníga í sömu átt og erlendar rannsóknarniðurstöður en vert er þó að benda á að samkvæmt þeim eru bæði aldur og kyn víkjandi þættir í vinnuslysaáhættu ungmenna. Það eru fyrst og fremst þættir tengdir vinnustaðnum sem spá fyrir um áhættuna.10 Þar sem ekki var spurt um vinnuaðstæður í þessari rannsókn er ekki hægt að leggja mat á það hér. Samkvæmt Hagstofu Íslands bjuggu 23.542 einstaklingar á aldrinum 13­17 ára hérlendis í lok árs 2007.27 Séu niðurstöður rann­ sóknarinnar heimfærðar uppá þjóðina má því gera ráð fyrir að um 3300 þessara einstaklinga hafi orðið fyrir vinnuslysi það ár. Sama ár voru 602 vinnuslys 15­19 ára einstaklinga skráð í Slysaskrá Ís­ lands22 og 90 slys einstaklinga 18 ára og yngri í Vinnuslysaskrá.21 Með öðrum orðum bendir rannsóknin til þess að mörg minnihátt­ ar vinnuslys ungmenna séu ekki skráð í opinberar skrár. Niður­ stöðurnar sýna að eitthvað sem er í vegi fyrir hinum unga starf­ manni, beitt áhald, heitt áhald eða vökvi og fall þungs hlutar eru algengustu slysavaldarnir og valda meira en fjórum af hverjum tíu slysanna. Skurður, tognun og brunasár valda hins vegar oftast fjarveru. Það eru þó ekki þessir áverkar sem leiða til lengstrar fjar­ veru frá vinnu heldur eru það bakáverkar og beinbrot. Það sem helst veldur svo alvarlegum áverkum er að ungi starfsmaðurinn lyftir eða ber þungan hlut, þungur hlutur fellur á hann eða að hann rennur á sleipu undirlagi. Bakáverkar og beinbrot eru ekki eingöngu alvarlegir áverkar í þeim skilingi að þeir valdi langri fjarveru frá vinnu heldur er einnig hætta á að slíkir áverkar valdi ungum starfsmönnum varanlegu heilsutjóni.28 Rannsóknin vekur upp spurningar um hvort fyrirbyggjandi aðgerðum og öryggisþjálfun ungmenna á vinnustað sé ábótavant. Samkvæmt vinnuverndarlögum ber atvinnurekendum skylda til að sjá til þess að allir starfsmenn fái nauðsynlega öryggisþjálfun (14. gr.). Ekki var spurt um öryggisþjálfun í þessari rannsókn. Rannsóknir frá Bandaríkjum sýna að þrátt fyrir að nokkur hluti þarlendra ungmenna fái öryggisþjálfun sé hún oft ófullnægj­ andi.15,29 Þjálfunin beinist ekki að þeim þáttum sem helst ógna öryggi þeirra,15,29 ekki er tekið tillit til þess að líkamlegur og and­ legur þroski ungmenna er ekki sá sami og fullorðinna og ekki eru notaðar þjálfunaraðferðir sem henta ungmennum.16 Vert er að vekja athygli á að fyrirbyggjandi aðgerðir gegn vinnuslysum geta náð út fyrir vinnustaðinn. Í nýlegri norrrænni skýrslu um vinnuöryggi ungmenna er því haldið fram að skólakerfið hafi í því samhengi mikilvægu hlutverki að gegna og bent er á að evrópskar vinnueftirlitsstofnanir hafi sett mikið af kennsluefni og upplýs­ ingum á netið.30 Það á einnig við um íslenska Vinnueftirlitið, en talsvert magn upplýsinga um vinnuvernd barna og ungmenna er að finna á heimasíðu þess. Fleira en fyrirbyggjandi aðgerðir innan og utan vinnustaðarins gæti þó þurft að koma til, eigi að tryggja vinnuöryggi barna og ungmenna. Erlendar rannsóknir sýna að ungt starfsfólk telur stöðu sína oft veika og að það hindri þau í að koma áhyggjum sínum og vitneskju um slysahættur og slæmar vinnaðstæður á framfæri við yfirmenn.17­20 Íslensk ungmenni telja einnig að staða þeirra á vinnumarkaði sé veik.1 Auk þess að skoða öryggisþjálfun, þurfa framtíðarrannsóknir því að beinast að því hvort staða þeirra á vinnumarkaði ógni í reynd öryggi þeirra og ef svo er, hvernig hægt væri að bæta þar úr. Rannsókn þessi hefur þær takmarkanir að lágt svarhlutfall dregur úr alhæfingargildi niðurstaðnanna. Þá verður að taka niðurstöðurnar um slysavalda og um tegund áverka með þeim fyrirvara að þær voru unnar upp úr opinni spurningu og að óljós svör voru gefin um annan hvorn þáttinn í um og yfir fimmtungi tilfella. Einnig var spurt aftur í tímann og minni svarenda gæti því í einhverjum tilfellum hafa brugðist. Vert er að benda á að rannsóknin var gerð þegar mikil þensla var í íslensku efnahagslífi og aðgengi ungmenna að vinnu var gott. Það auðveldaði þeim að skipta um vinnu, til dæmis ef þeim fannst aðbúnaður slæmur.1 Það er hins vegar óljóst hvort staða barna og ungmenna í atvinnulífinu hafi eflst eða veikst í kjölfar efnahagsþrenginganna 2008. Því er brýnt að endurtaka þessa rannsókn og gera frekari rannsóknir á vinnuslysum aldurshópsins. R a n n S Ó k n Tafla V. Algengasti og næstalgengasti slysavaldur slysaáverka. Tegund áverka Algengasti slysavaldurinn n (%) Næst algengasti slysavaldurinn n (%) Skurður Beitt áhald 18 (44) Annað 6 (15) Tognun Venjuleg líkamshreyfing 7 (37) Féll eða hoppaði niður af einhverju 5 (26) Brunasár Heitt áhald/vökvi 15 (100) - - Bakáverki Lyfti eða bar þungan hlut 5 (39) Hálka/sleipt gólf 3 (23) Mar og/eða bólga Eitthvað sem klemmir 4 (33) Nokkrir slysavaldar - Beinbrot Fall þungs hlutar 2 (25) Annað 2 (25) Annar áverki Annað 6 (55) Eitthvað í veginum 3 (27) Svar óljóst Slysavaldur óljós 11 (28) Eitthvað í veginum 11 (28)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.