Læknablaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 53
LÆKNAblaðið 2014/100 621
l Ö G F R æ ð i 1 1 . P i S T i l l
Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við ritstjórn eða
pistlahöfund ábendingum um efni sem þeir vilja að fjallað verði um.
dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Íslands
DoggP@lis.is
Miðað við stöðu mála þegar þessar línur
eru ritaðar (22. október 2014), bendir fátt til
annars en að boðuð verkföll lækna hefjist
hinn 27. október. Eins og fram hefur komið
eru verkföllin í þremur lotum, vikurnar 27.
október til 6. nóvember, 10. til 20. nóvem
ber og 8. til 11. desember. Ekki er um alls
herjarverkfall að ræða heldur fara læknar
á hverjum stað sem verkfall nær til hverju
sinni í verkfall í tvo daga.
Í skilningi laga um kjarasamninga
opinberra starfsmanna nr. 94/1986 eru
bæði Læknafélag Íslands (LÍ) og Skurð
læknafélag Íslands (SKÍ) stéttarfélög og
sem slíkum er þeim heimilt að efna til
verkfalla í þeim tilgangi að stuðla að fram
gangi krafna sinna í deilu um kjarasamn
ing með þeim skilyrðum og takmörkunum
sem lögin setja.
Í fyrsta sinn í sögunni hafa þessi félög
boðað til verkfalla og voru þau samþykkt
í báðum félögum með yfir 90% greiddra
atkvæða. Samstaðan er því sterk meðal
lækna þegar kemur að boðuðum verk
fallsaðgerðum, enda telja þeir að þeir séu
með þeim ekki eingöngu að stuðla að
framgangni krafna sinna í kjaradeilu við
ríkisvaldið heldur einnig að berjast fyrir
framtíð heilbrigðisþjónustunnar.
En verkfallsréttur lækna er takmark
aður lögum samkvæmt. Þessi takmarkaði
verkfallsréttur birtist í 5. tölulið 1. mgr.
19. gr. laganna þar sem segir að almenna
verkfallsheimildin nái ekki til þeirra sem
starfa við nauðsynlegustu heilbrigðis
þjónustu. Takmörkunin birtist í því að
fyrir 1. febrúar ár hvert skulu fjármála
og efnahagsráðherra og sveitarfélög, að
undangengnu samráði við viðkomandi
stéttarfélög, birta skrár um þau störf sem
falla undir takmarkanirnar á verkfalls
réttinum. Nýjasta auglýsingin um slíka
skrá er nr. 101/2014 og eftir henni verður
starfað í komandi verkföllum.
LÍ og SKÍ hafa á síðustu árum lagt
mikla vinnu í að fara yfir þessar skrár um
störf sem falla undir takmarkanirnar á
verkfallsréttinum. Þegar þessi vinna hófst
að ráði fyrir réttum fjórum árum síðan
var mönnun í verkfalli skv. eldri skrám
víða svo mikil að hún var jafnvel meiri
en á venjulegum vinnudögum. Svo mikil
hefur fækkun lækna orðið frá hruni. Þá
voru skrárnar ófullkomnar að því leyti
að það vantaði víða að gera greinarmun á
dagvinnu, vinnu á bundnum vöktum og
gæsluvöktum. Þessi vinna hefur skilað því
að skráin nr. 101/2014 er að meginstefnu
til með mönnun sem samrýmist því sem
tíðkast með mönnun á sjúkrahúsum um
helgar og á öðrum frídögum. Í heilsugæslu
er fyrirkomulagið með þeim hætti að
einungis yfirlæknar eru í dagvinnu víðast
hvar.
Áðurnefnd lög gera ráð fyrir því að í
verkfalli starfi sérstök undanþágunefnd.
Í nefndinni eiga sæti tveir einstaklingar,
einn tilnefndur af stéttarfélagi og einn til
nefndur af ríkinu. Nefndin tekur afstöðu
til undanþágubeiðna og eru ákvarðanir
nefndarinnar endanlegar. Um starf
nefndarinnar er fjallað í 20. gr. laganna,
sem heimilar að kalla starfsmenn í verk
falli tímabundið til vinnu í þeim tilgangi
að afstýra neyðarástandi.
LÍ hefur litið svo á að nefndinni sé
einnig heimilt að veita undanþágur til
að tryggja „nauðsynlegustu heilbrigðis
þjónustu“. Sem dæmi má nefna að frá því
að auglýsingin var birt í byrjun þessa árs
hafa ýmsar breytingar orðið á heilbrigðis
stofnunum landsins. Þannig sameinuðust
allnokkrar heilbrigðisstofnanir hinn 1.
október síðastliðinn. Mögulega hafa þær
skipulagsbreytingar haft í för með sér að
skráin tekur ekki mið af því skipulagi sem
gildir verkfallsdagana. Í þeim tilvikum
þarf að leiðrétta skrána og lítur LÍ svo á að
það sé undanþágunefndinni heimilt, fall
ist hún á rök viðkomandi stofnunar fyrir
breytingu frá skránni. Í þessum tilvikum
þurfa stjórnendur viðkomandi stofnunar
því að sækja um undanþáguna með rök
stuðningi.
Það er mikilvægt að allir geri sér grein
fyrir því að í verkfalli á eingöngu að sinna
„nauðsynlegustu heilbrigðisþjónustu“.
Í því felst að þeir læknar sem starfa,
eiga þrátt fyrir verkfall ekki að ganga til
daglegra starfa heldur einvörðungu sinna
bráðatilvikum. Mikilvægt er þó í vafa
tilvikum að láta sjúklinga njóta vafans í
þessu efni.
Það gefur auga leið að það verður tals
verð röskun á heilbrigðisþjónustu sjúkra
húsa og annarra heilbrigðisstofnana með
an á verkfalli lækna stendur. Sem dæmi
má nefna að bókuð viðtöl á heilsugæslu
stöðvum og göngudeildum sjúkrahúsa
falla niður. Bókaðar valkvæðar aðgerðir
falla niður. Fjölmargar spurningar um
framkvæmd verkfallsins hafa vaknað í að
draganda þess. LÍ hefur leitast við að svara
þeim eins ítarlega og mögulegt er og birt
afstöðu sína til þeirra á innri vef heima
síðu félagsins og vísast til hennar varðandi
nánari upplýsingar.
Verkfall lækna